Bókasafnið - 01.03.1990, Blaðsíða 44
Þátttakendurá 14. samnorrænu ráðstefnu bókasafnsfræðinema.
3. Hvernig hafa mismunandi safnategundir brugðist við
breyttum aðstæðum?
4. Bætt þjónusta í krafti þjónustugjalds.
5. Nýjar upplýsingalindir.
6. Siðfræðin á bak við bókasafnsþjónustu.
7. Er stéttaskipting vegna upplýsingaflæðis?
8. Bókasafnsfræðingar - hvað eru þeir?
Um kvöldið var kvöldvaka á Hallveigarstöðum þar
sem margt var sér til gamans gert.
Sunnudagurinn var notaður til að kynna niðurstöður
hópanna. Þá kom í ljós að oft höfðu verið vandræði með
að skilgreina hugtök og að menn lögðu í þau mismunandi
merkingu. Einn hópur reyndist orðlaus og setti í staðinn
upp bráðskemmtilegan látbragðsleik. Eftir hádegið voru
almennar umræður og fyrirspurnir. Helstu niðurstöður
eftir umræður voru að fara mætti mismunandi leiðir til
gjaldtöku eftir safnategundum, einnig var mikið rætt um
vanmat samfélagsins á vinnuframlagi og menntun bóka-
safnsfræðinga og um það hvernig þeir gætu sannað að
hæfni þcirra er oft meiri en tölvukarlanna sem eru að gera
það gott á frjálsum markaði. Allir voru sammála um
mikilvægi siðfræði. Skiptar skoðanir voru um hvort nauð-
synlegt væri að skilgreina siðfræði út frá starfsgrein, hvort
almenn siðfræði dygði ekki til. Hluta af hópnum fannst
nauðsynlegt að setja fram siðfræðireglur til að renna
stoðum undir bókasafnsfræðina sem starfsgrein. Einnig
kom fram sú skoðun að mismunandi siðfræðireglur giltu
eftir því um hvaða safnategund væri að ræða, til dæmis
hvað varðar upplýsingaþjónustu.
Lokaatriði ráðstefnunnar var að setja fram gagnrýni á
það hvernig til hefði tekist og ákveða næsta fundarstað
sem verður Kaupmannahöfn. Ráðstefnunni var slitið
formlega síðdegis. Samt var ekki öllu lokið því að um
kvöldið borðuðu allir saman í Risinu við Hverfisgötu og
skemmtu sér fram á nótt.
Lokaorð
Allur undirbúningur og ráðstefnan sjálf gekk vel.
Aðstaðan í Odda vakti hrifningu þátttakenda, þó þótti
þeim skrítið að við nemar ættum ekki sérherbergi í húsinu
fyrir félagsstarfið.
Markmið samnorrænnar ráðstefnu bókasafnsfræði-
nema er í fyrsta lagi að efla tengsl á milli bókavarðaskól-
anna á Norðurlöndunum og í öðru lagi að virkja nema til
faglegrar umræðu um námið og fagið.
Gildi ráðstefnuhalds fyrir nema er margþætt. Þeim
gefst kostur á að öðlast reynslu af ráðstefnuhaldi, bæði
sem þátttakendur og skipuleggjendur. Á ráðstefnum fara
fram bein skoðanaskipti milli nema, þar sem ólíkar
skoðanir og áherslur koma fram. Við kynnumst öðrum
bókasafnsfræðinemum, fólki sem við eigum væntanlega
eftir að hitta á öðrum norrænum ráðstefnum. Síðast en
ekki síst eykur ráðstefnan gildi námsgreinarinnar, bæði í
hugum okkar og annarra. fslensku nemarnir sem stóðu að
ráðstefnunni eru allir sammála um að þessi reynsla hafi
verið á við heils árs nám.
Að lokum viljum við nota tækifærið og þakka öllum
þeim sem studdu okkur fjárhagslega eða á annan hátt í að
gera þessa ráðstefnu að veruleika.
SUMMARY
Nordic conference oflibrary science students
The Association of Students in Library and Information Science at thc
University of Iccland hosted the annual Nordic conference of library
science students in Reykjavík in October 1989. Thc main themc of the
conference was ethical questions concerning libraries and librarians. The
topic was first presented in lcctures which were later followcd by group
discussions. The report describes the preparations for the conference,
the actual program as well as the conclusions drawn by the hosts.
44
BÓKASAFNIÐ