Bókasafnið - 01.03.1990, Síða 59
félagsstarfi. Það er eins og fólk á suðvesturhorninu mikli
fyrir sér að starfa með landsbyggðarfólki. Það gleymir
möguleikunum á símafundum, tölvupósd og telexi, fyrir
utan hvað samgöngur hafa stórbatnað.
- Er samvinna milli bókasafna á Akureyrí?
Já, mjög góð og vaxandi. Bókasafnsfræðingar á Akur-
eyri hittast auk þess reglulega í óformlegum samstarfs-
hópi og skiptast á fréttum og skoðunum.
- Nú varst þú iðnrekandi og verslunareigandi á ísa-
firði, geturðu nýttþér þá reynslu ínúverandi starfi?
Já, tvímælalaust, þetta er í eðli sínu svipað. Við stofnun
verslunar og iðnfyrirtækis aflar maður viðskiptavina,
býður fram vörur, byggir upp þjónustu, kannar markaði,
vinnur að fjárhagsáætlanagerð o.fl. Þetta gera bókaverðir
líka.
- Eru einhverjar óskir ofaríega íhuganum?
Já, það er margt sem má betur fara hjá okkur íslend-
ingum í bókasafnamálum. Samskráning einhvers konar er
mér ofarlega í huga. Ég hef skráð sömu bækur 5-6 sinnum
á mismunandi stöðum frá því að ég hóf störf á bókasöfn-
um. Það er kominn tími til að hætta svoleiðis vitleysu.
Við verðum að reyna að fara að vinna skynsamlega að
lausn þessara mála. Bókfræðin hefur verið hornreka hjá
okkur íslendingum undanfarin ár. Við höfum bara yppt
öxlum og sagt: „Það er verst hvað lítið er til af íslenskum
bókfræðiritum."
En það er von til að breyting verði á því að í undirbún-
ingi er ráðstefna sem haldin verður á Akureyri í september
nk. Þá verður íslensk bókfræði tekin föstum tökum, staða
hennar könnuð og mörkuð stefna til framtíðar.
- Pú hefurgreinilega haftnóg aðgera. Hvaða verkefni
eru fyrirliggjandi í náinni framtíð?
Ég hef verið niðursokkin í öflun efnis, skráningu og
önnur grundvallarstörf hingað til. Þó að ekki sjái fyrir
endann á því verð ég að snúa mér að frekari þróun þjón-
ustunnar, stefnumörkun fyrir bókasafnið og þess háttar
innan tíðar.
SUMMARY
Interview with Sigrún Magnúsdóttir
university librarian in Akureyri
The interview spans all aspects of library work and services at the re-
cently established University of Akureyri. The university offers educa-
tion in thc areas of nursing, economic and business management and fish-
erics. The librarian describes the process and the difficulties ofselecting
and ordcring matcrials, choosing classification systems like Dewey and
NLM and deciding on computer software (Procite). Special emphasis is
laid on thc use of automation and computer links in managing a modern
library. CD-ROM, a relatively new technology which the library intro-
duced in some limited areas is particularly praised forits potentials. The
librarian's conclusive remarks center on the necessity to improve bibli-
ographic control in Iceland.
EINFALT
EITT HEFTI FRÁ MIÐLUN OG ÞÚ MISSIR EKKI AF NEINU.
MIÐLUN LÆTUR EKKERT FRAM HJÁ SÉR FARA!
Kemst þú yfir aö lesa allt sem blöðin
birta um starfsgrein þína eöa helstu
áhugamál? Missir þú e.t.v. af grein
sem heföi getaö breytt viðhorfum
þínum - eöa jafnvel áformun? Þaö
kostar tíma og fyrirhöfn aö fylgjast
meö en hjá því verður ekki komist.
Eitt lítiö hefti frá Miölun tekur af þér
ómakiö og eyðir óvissu þinni. Lesarar
Miðlunar leita upplýsinga í u.þ.b. eitt
hundrað dagblööum, landsmálablöð-
um, tímaritum og opinberum útgáf-
um.
Efniö er flokkað og sent reglulega
til meira en eitt þúsund áskrifenda
um allt land.
Þaö er sama hvort áhugaefni þitt
er almennt eöa sérhæft, fiskeldi
eöa tiltekið fyrirtæki - lesarar
Miðlunar eru ávallt reiöubúnir
aö leita fyrir þig. Þannig öðlast
þú góöa yfirsýn á örskammri
stundu.
Ægisgötu 7, pósthólf 155, 121 Reykjavík. Sími: 91-62 22 88
BÓKASAFNIÐ
59