Dagur - 25.10.1997, Síða 2
T
18-LAUGARDAGUR 2 S.OKTÓBER 1997
LÍFIÐ í LANDINU
Heimsraaöiuiiui, rithöfundurinn og
myndlistarmaöurirai HaHgrímur Helga-
son dvelur nú í París þar sem hann mun
innan skamms opna einkasýningu á
myndlistarverkum sfnum. Hallgrímur er
ekki væntanlegur heim íyrr en eftir ára-
mót. Hallgrímur er ekki mcó bók á jóla-
markaðnum þetta árið en hann er önnmn
kafinn við að vinna að skáldsögu sem
væntanlega mun koma á markað
þamæstu jól. Bókin mim vera í gaman-
sömum stfl, og kemur svosem ekki á óvart
þegar þessi landskunni húmoristi á í hlut.
Jónína Ben troðfyllti matsal íþróttahallar-
innar á Akureyri i fyrrakvöld þegar hún bauð
kónum á fyrirlesturinn „Barbí er dauð.“
Gellan gerði sér litiö fyrir og hélt sahium
föngnum í tvo tíma og talaði blaðlaust. Aliir
höfðu gagn og gaman að nema ef vera skildi
ámátlegur ljósmyndari Dags sem var skotinn
niður ineð setningunni: „Hvað ert þú að gera
hér, sendi Stefán Jón þig.“ Á eftir fylgdi:
„Stefán Jóu er sko ömurlegur vinur, ef ég segi
honum eitthvað er það samstundis komið í
Jónína Benediktsdóttir. þctta blað, hvað heitir það nú aftur - Dagur
cða Nótt.“
Úr Firðininn heyrist að Jóhann G. Berg-
þórsson, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, sé
kominn á fullt með að kanna liðsstyrk
sinn og stefni að því að taka þátt í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins i lok nóvember.
Sömuleiðis er sagt að nánasti samstarfs-
maður Jóa, Ellert Borgar Þorvaldsson
skólastjóri, fylgi honum fast á eftir. Jó-
hami er reyndar erlcndis sem stendur en
kemur heim í byrjun næstu viku, rétt í
tæka tíð til að skila inn framboði áður en
fresturinn remiur út.
Annars er búist við iniklum bræðravígum í
Firðinum fyrir prófkjörið. Ljóst er að Magnús
Gunnarsson ætlar í framboð og sömuleiðis
mmi gamla handboltahctjan Þorgils Óttar
Mathiesen vera staðráðhm í að vhma fyrsta
sætið og leiða flokkinn til sigurs í næstu
kosningum. Einnig ku Valgerður Sigurðar-
dóttir, frænka Óttars og bæjarfulltrúi, ætla
að bjóða fram. Það mun þvi ýmislegt ganga á
í Hafnarfirði þcgar hða tckur á nóvember.
Hinn gamalreyndi
fréttahaukur, Atli
Steinarsson, cr nú genginn í raðh Smm
lenska fréttablaðsins. Atli og Anna
Bjamason, eiginkona hans, hafa sett sig
niður á Flúðum - en aðalstarf Atla um
þessar mundir er aö skrifa fréttir um
karla og kerlingar á Suðurlandi eftir að
hafa verið tíðhidamaður Moggans og Út-
varpsins vestur í Bandaríkunum síðustu
árin.
Atli Steinarsson.
Þorgils Óttar Mathiesen.
Það stefnir í harðan slag á útvarpsmark-
aði á Suðurlandi á næstumii. Útvarp Suðurlands, sem fór í loftið í
sumar, hefur náð að festa sig í sessi og ætla forráðamenn þess sér
ekki síst að ná góðum árangri í auglýsingasölu fyrir jólin. Allt frá ár-
inu 1991 hefur Einar Þór Bárðarsson, skemmtanakóngur á Selfossi,
sem nú er við nám f inarkaðsfræðum í Bandaríkjunum, starfrækt
Endastöðina i desember á ári hverju og náð þar ágætum árangri. Að
því er heyrst hefur í helgarpottinum kcmur Einar heim fyrir jólin til
að starfrækja sína endastöö - sem nú hefur fengið harða samkeppni,
við öllu má búast.
Að vissu leyti komið nóg
Ungfrú Norðurlönd
kemurfrá Norðurhndi
þó hún sé ungfrú
Reykjavík.
„Eg er ættuð frá Akureyri og
báðar fjölskyldurnar mínar koma
þaðan,“ segir Ungfrú Norður-
lönd, Dagmar íris Gylfadóttir.
„Eg bjó á Akureyri þar til ég var
tíu ára en þá fluttum við til
Reykjavíkur. Onnur fjölskyldan
mín býr ennþá á Akureyri en hin
er nánast öll flutt suður.“
Kærastiim líka frá Akureyri
„Já, ég á gamla vini og kunn-
ingja á Akureyri," segir hún,
„...en það er ótrúlega fljótt að
slitna upp úr slíkum vinskap
þegar maður flytur á þessum
aldri. Eg held samt alltaf sam-
bandi við nokkra vini mína þar.
Síðan er það nú þannig að ég
kem alltaf reglulega til Akureyr-
ar þvf að kærastinn minn, Sigfús
Jónsson, er þaðan. Við förum
alltaf norður vegna hans.“ Hún
talar um að sér finnist gott að
koma til Akureyrar. „Það er al-
veg æðislegt. Þar er svo miklu
rólegra og ótrúlega gott að kom-
ast úr stressinu í Reykjavík. Það
er alltaf stress hérna.“
Þessi keppni annars eðlis
Aðspurð um fegurðarsamkeppn-
ina Ungfrú Norðurlönd segir
Dagmar Iris að það hafi verið
áhugavert að taka þátt í þeirri
keppni. „Það var spennandi að
taka aftur þátt í keppni. Eftir
Ungfrú Island í vor var allt búið
í tengslum við keppnirnar hér
heima. Þar sem ég lenti í þriðja
sæti þá átti ég að taka þátt í ein-
hverri keppni úti og var send f
þessa núna. Það var að vísu
hálft í hvoru ákveðið að ég færi í
hana en ég var samt aldrei alveg
með það á hreinu. Þetta var
mjög gaman og líka spennandi
að fara til Finnlands.“
Keppnin Ungfrú Norðurlönd
er ekki sama eðlis og þær feg-
urðarsamkeppnir sem eru
haldnar á Islandi. „Það er ekki
lagt eins mikið upp úr henni
varðandi sviðsframkomu og æf-
ingar. Hér heima var æft í tvo
mánuði og líkamsræktin í fyrir-
rúmi. En í Finnlandi var allt
saman gert fyrir sjónvarpið. Allt
ákveðið á einum degi, sviðið út-
búið og æfingarnar fóru bara
fram þann dag. Glæsileikinn var
því allt annar. Svo var það líka
annað að .við fengum ekki að
ráða því í hverju við værum í
keppninni. Það voru styrktarað-
ilar sem sáu um fötin þannig að
maður var bara heppinn að vera
í fötum sem maður var ánægður
með. Ég var reglulega sátt við
það sem ég lenti f miðað við hin
fötin.“
Alveg örugglega búlð núna
Dagmar íris veit ekki ennþá
hvort hún græðir eitthvað á titl-
inum. ;,Satt að segja veit ég það
ekki. Ég fékk að vísu samning
við símafyrirtæki úti, á að kynna
nýjan síma sem það er að senda
frá sér. Svo er ýmislegt hér
heima eins og fyrir No Name.
Þetta vekur allavegana einhverja
athygli. En það góða er að það
fýlgja titlinum engar kvaðir. Ég
fer reyndar út einhvern tímann
á árinu til að vera í myndatökum
fyrir aðstandendur keppninnar
en að öðru leyti þarf ég bara að
fara út eftir eitt ár að krýna arf-
taka minn.“
Hún segir að þessar keppnir
hafi verið skemmtilegar en „...ég
held alveg örugglega að þetta sé
búið núna og það er að vissu
leyti komið nóg. En samt sem
áður ef ég væri beðin um að
taka þátt í annarri keppni þá
myndi ég nú gera það. Svona
eftir á.“ Það sem er framundan
hjá henni er að koma sér í skól-
ann aftur, „...ég hef haft það
mikið að gera síðan ég kom
heim að ég verð að fara að koma
lífinu aftur í rétt horf.“ HBG
Maðui vikuiinar
Vegfarendur á ferð um Húna-
vatnssýslur heyra ekki í kátrýút-
varpi Hallbjörns Hjartarsonar
fyrst um sinn, að minnsta kosti.
Efri hæð Kántrýhæjar brann í
vikunni þannig að dugmikla
endurreisnarmenn þarf nú til
starfa. - En það er von í myrkr-
inu, því fjöldi fólks hefur sett sig
í samband við Hallbjörn og heit-
ið honum fjárframlögum reisi
hann Kantrýbæ úr öskustónni.
Hallbjörn er maður vikunnar og
hann brosir í gegnum tárin.