Dagur - 25.10.1997, Page 6
22- LAUGARDAGVR 2S.OKTÓBER 1997
rD^tr
LÍFIÐ I LANDINU
Bryndís Hlödversdóttir
alþingiskona er
nýkomin heim af
fæðingardeildinni en
drengimirhennar tveir
vom teknirmeð
keisaraskurði jyrir
þremurvikum.
Bryndís greindifrá því
í vorað þau hjónin
hefðufengið aðstoð
glasafrjóvgunardeildar
Landspítalans.
„Þeir hafa verið ótrúlega sáttir
við tilveruna. Þeir eru einstak-
lega afslappaðir og góðir og
mamman er öll að skríða saman.
Það tekur sinn tíma að jafna sig
og það sem því fylgir. Mér Iíður
betur núna"og við erum í óða
önn að aðlagast nýju og breyttu
lífi,“ segir Brjmdís Hlöðversdótt-
ir, alþingiskona Alþýðubanda-
lags, en hún og maður hennar,
Hákon Gunnarsson, eignuðust
tvo drengi, Hlöðver Skúla og
Magnús Nóa, á Landspítalanum
í byrjun október.
Óborganleg hjálp frá
systnuuun
Drengirnir voru teknir með keis-
araskurði 9. október og reyndust
langir og grannir við fæðingu.
Hlöðver Skúli var 11,5 mörk og
51 sentimetri að lengd og
Magnús Nói var 11 merkur og
50 sentimetrar. Þeir fæddust svo
grannir því að blóðflæðið gegn-
um fylgjuna til þeirra var ekki
nógu mikið undir það síðasta -
sem gerði það að verkum að þeir
fengu full lítið af næringu frá
móður sinni síðustu vikur fyrir
fæðingu. Bryndís var gengin ná-
kvæmlega 37 vikur með þegar
keisaraskurðurinn var gerður en
tvíburar fæðast oft tveimur til
Ijórum vikum fyrir tímann eða
þegar móðirin er gengin 36-38
vikur með.
Bryndís er nú komin heim af
fæðingardeildinni með drengina
sína tvo og braggast strákarnir
vel. Hún segir að þeir hafi verið
hraustir og staðið sig vel til
þessa, verið værir og góðir og
leyft foreldrum sínum að átta sig
á breyttum aðstæðum í ró og
næði. Faðir þeirra hefur tekið
sér frí frá vinnu til að vera
heima og systur drengjanna,
Steinunn og Dagbjört Hákonar-
dætur, 9 og 13 ára, hafa komið
og hjálpað til við að gæta drengj-
anna, skipta á bleium og hugsa
um þá.
Aldrei frí í pólitíkmni
— Bryndfs vakti einmitt athygli
fyrir dugnað sinn og pólitíska
virkni þegar hún lá inni fyrir fæð-
inguna. Þá skrifaði hún greinar í
dagblöð og beitti sér í pólitíkinni
eins og ekkert væri. Er hún
kannski farin að vinna aftur
þremur vikum eftir fæðinguna?
„Nei. Eg á fullt í fangi með
móðurhlutverkið ennþá. En í
pólitík fer maður aldrei alveg í
frí. Eg fylgist að sjálfsögðu vel
með en er ekki farin að vinna
aftur. Eg ætla að gefa strákun-
um þann tíma sem þeir þurfa á
næstunni. Landsfundur Alþýðu-
bandalagsins er reyndar í byrjun
nóvember og ég verð fulltrúi þar
enda stóru málin í stjórnmálum
þar á dagskrá. Við ætlum meðal
annars að ræða sameiningarmál
vinstri manna og ég vil alls ekki
missa af þeirri umræðu. Eg vona
að Alþýðubandalagið taki þar
skýra afstöðu til þess hvort við
ætlum að vera með í þeirri þró-
un sem er að eiga sér stað í
stjórnmálunum í dag. Umræðan
er komin það langt að það verð-
ur ekki lengur beðið með að
leggja skýrar línur og ég vona að
Alþýðubandalagið verði mótandi
afl í nýju framboði í næstu þing-
kosningum. Annars ætla ég að
Iáta það ráðast hvenær ég fer
aftur til starfa," svarar hún.
Tvíburamæður eiga rétt á níu
mánaða fæðingarorlofi enda full
þörf á því. Feður hafa ekki sama
rétt og mæður til greiðslna í
fæðingarorlofi, sem er vissulega
ólíðandi fyrir feður sem vilja
taka sér fæðingarorlof. Það er
því ijárhagsleg spurning hvort
þeir taki sér harneignarfrí. Há-
kon, maður Bryndísar, hefur
verið heima undanfarið að ann-
ast strákana. Bryndís segir að
hann hafi hug á að taka sér fæð-
ingarorlof en það verði bara að
ráðast hversu langt það verði.
Þakkir til starfsfólksins
Athygli vakti í vor þegar Bryndís
greindi á opinskáan hátt frá því
þegar hún gekk í gegnum glasa-
frjóvgunarmeðferð og nú vilja
þau Hákon koma á framfæri
þakldæti sínu til starfsfólks
Landspítalans á Kvennadeild,
meðgöngudeild, fæðingardeild,
vökudeild og ekki síst á glasa-
fijóvgunardeild. Sérstaldega vilja
þau þó þakka Guðmundi Ara-
syni kvensjúkdómalækni sem
reyndist þeim „einstaklega vel í
gegnum þennan tíma. Landspít-
alinn hefur einstaklega hæft
starfsfólk sem gerði það að verk-
um að þessi tími var eins nota-
legur og mögulegt var fyrir okk-
ur,“ segir hún að lokum. -GHS