Dagur - 25.10.1997, Side 9
LAUGARDAGUR 2 5. OKTÓBER 19 9 7 - 25
Xk^ítt-..
LtFIÐ í LANDINU
saman um pólitík. Við nýtum
samverustundir okkar í annað.
Það skiptir miklu máli að and-
inn á heimilinu sé jákvæður og
það er hann sannarlega hjá okk-
ur. Eg hef séð stjórnmálamenn
og aðra sem áttu góða framtíð
fyrir sér verða fyrir því að bak-
landið hrundi. Um leið misstu
þeir fótfestuna og glötuðu þeim
tækifærum sem virtust bíða
þeirra."
Þið hjón eigið einn son. Hefð-
irðu ekki viljað eigafleiri höm?
“Þetta æxlaðist nú svona og
við erum forsjóninni þakklát fyr-
ir son okkar. En ég er ekki viss
um að það hefði verið rétt að
bjóða stórfjölskyldu upp á þá til-
veru sem líf stjórnmálamanns
byggir á.“
Heldurðu ekki að það sé erfitt
fyrir son þinn að vera sonur eins
dherandi manns og þú ert?
“Hann hefur aldrei minnst á
það. Sé svo geymir hann það hjá
sér.“
En það eru fleiri í fjölskyld-
unni en þið þrjú, þið hafið hæði
hund og kött.
“Nú er læðan dáin, varð tæp-
lega 16 ára. Þetta var villiköttur
alla tíð, erfið við gesti og ókunn-
uga, en góð við heimilisfólkið.
Hundurinn Tanni lifir enn, orð-
inn 11 ára. Hann er sannur
höfðingi og mikill vinur minn.
Oflugur mjög, traustur, skyn-
samur og hefur vit á pólitík."
Þú virðist vera sammála því
sem ég ætlaði að spyrja þig um,
sem sagt þvt að dýr hafi karakter.
“Mikinn karakter. Kötturinn
stjórnaði hundinum allt fram á
síðasta dag á karakterstyrknum
einum saman. Það gerðist
margoft þegar við hjónin sátum
niðri í stofu og hundurinn með
okkur, að Iæðan kom niður og
náði í hundinn. Hún tók hann
með sér á efri hæðina og sigaði
honum á ketti sem komist höfðu
í garðinn. Henni datt ekki í hug
að aðhafast nokkuð sjálf, heldur
stóð á svölunum og horfði á
kettina leggja á flótta undan
hundinum upp í næstu tré.
Tanni er mikil persóna og skyn-
ugur. Þegar menn koma heim til
mín með hugmyndir eða tillögur
sem þeir vilja ræða sé ég mjög
gjarnan á hundinum hvort
menn eru komnir í frómum til-
gangi. Hann ber sig að á sér-
stakan hátt þegar honum þykja
aðstæður tortryggilegar. Hann
hefur reynst æði glöggur."
Vinátta og stjómmál
Er ekki erfitt að mynda vináttu-
tengsl í heimi stjómmálanna?
“Eg held að það sé erfitt. Þar
er svo hætt við togstreitu og
hagsmunaárekstrum. í mínu
starfi hljóta menn að hafa efa-
semdir um það af hvaða tilefni
vinahót er sprottin. I slíkri stöðu
mynda menn ekki tengsl svo
auðveldlega, verða varir um sig
og koma sér upp skel. En gömul
vinátta heldur mjög oft og verð-
ur æ meira virði.“
Það er gróin vinátta með ykkur
Birni Bjamasyni, er ekki svo?
“Milli okkar er mikil vinátta.
Björn er samkvæmur sjálfum
sér, segir ekki eitt í dag og annað
á morgun. Hann er ekki vin-
sældarhlaupari, heldur lang-
hlaupari í þeim efnum, eins og
sést best innan flokksins þar
sem staða hans hefur mjög
styrkst á liðnum árum. Vinnu-
semi hans og góðar gáfur munu
skila honum langt. Hann er
einnig trygglyndur og það er
dyggð sem maður metur ætíð í
fari manna.“
Hvemig em samskipti ykkar
Friðriks Sóphussonar?
“Þar hefur þróast vinátta enda
hefur Friðrik góðan mann að
geyma. Við höfum unnið mjög
vel saman, ekki alltaf verið sam-
mála en aldrei hafa orðið eftir-
köst.“
Eimir ekki enn eftir af sárind-
um tnilli ykkar Þorsteins Pálsson-
ar?
“Ekki verð ég var við það, en
vissulega fylgdu formannslagn-
um heilmikil átök.“
En hvað með vináttu manna í
óltkum stjómmálaflokkum?
Menn vita til dæmis af vináttu
ykkar Össurar og því er jieygt að
þú hafir átt þátt t að hjarga mál-
unum þegar dóttir hans tveggja
mánaða fékk ekki vegabréfsárit-
un til að komast heim gegnum
Bandaríkin.
“Össur sendi neyðarkall og ýtt
var á rétta hnappa. Eg hefði gert
það fyrir alla. Þau Arný hafa ver-
ið heppin með barnið og þar er
bjart yfir, svo Birtu nafnið virðist
vera vel til fundið."
Útlegð A-flokkaima
Snúum okkur að ríkisstjóminni,
ertu ánægður með samstarfið
þar?
“Afar ánægður, og sérstaklega
ánægður með samstarfið við
Halldór Asgrímsson. Þar hefur
engan skugga borið á.“
En nú er því haldið fram að þú
mótir utanríkisstefnu landsins til
jafns við utanríkisráðherra.
“Það hefur alla tíð verið
þannig að forsætisráðherra hef-
ur komið að utanríkismálum og
allt er það með eðlilegum hætti.
Utanríkisráðherra hefur sömu-
leiðis tjáð sig um sjávarútvegs-
mál, lífeyrissjóðsmál og stóriðju.
Allt eru þetta mál sem heyra
ekki undir utanríkisráðuneytið,
en en það er sjálfsagt að utan-
ríkisráðherra ræði þau, og
reyndar væri skaði ef hann gerði
það ekki. Ráðherrar eiga að tjá
sig um aðra málaflokka en þá
sem heyra beint undir þá. Þar
Med eiginkonu sinni Ástriöi sem hann segir hafa verið sér stoð og stytta í tilverunni og hundinum Tanna sem hefur meira vit á pólitik
en margur maðurinn. mynd: gva
„Ég skrifa uppkast i flugvélum, / sumarbústaðnum eða heima á kvöldin. Efmér líkar hugmyndin reyni ég að
gefa mér tima til að vinna hana til fullnustu. Einstaka sinnum hef ég vaknaði upp um nætur með hugmynd að
sögu, rokið á fætur til að skrifa söguna og setið við fram á morgun." mynd: lól.
með er ekki sagt að þeir séu að
taka völdin.“
Er væntanleg uppstokkun á
ríkisstjóminni?
“Eg sé ekki fyrir mér neinar
breytingar á þessu ári. Eg skal
ekkert um það segja hvort þær
verða á næsta ári. Það hefur
ekki verið ákveðið.11
Allt bendir til sameiginlegs
framhoðs A-flokkanna í næstu al-
þingiskosningum, hvemig sérð
þú þaðferli?
“Mér finnst ósvífni að halda
því fram að þessir flokkar eigi að
sameinast af því þar ríki engin
málefnalegur ágreiningur. Eg sé
ekki eitt einasta mál sem þeir
eru sammála um. Ég hef enga
trú á því að
slíkur listi yrði
talinn hæfur
kostur í stjórn-
arsamstarfi,
hvorki hjá
Sjálfstæðis-
flokki eða
Framsóknar-
flokki. Ég held
að hann muni
dæma sig í ei-
lífa útlegð og
harma það svo
sem ekki.“
Nú virðist
hálfgerð forystu-
kreppa á vinstri
vængnum en
Össur Skarp-
héðinsson sagði
nýlega í viðtali
að hann útilok-
aði ekki að
keppa einhvem
tímann að því
að verða formaður Alþýðuflokks-
ins. Hvemig list þér á?
“Hann hefur marga kosti til
þess. Ég sagði honum einu sinni
að ef hann ætlaði sér það yrði
hann að hafa hemil á grallaran-
um í sér, en ég veit að það er
mjög erfitt fyrir hann. Ef hann
kærir sig ekki um formannssæt-
ið er um að gera fyrir hann að
beisla ekki grallarann." Segjum
svo að Sjálfstæðisflokkurinn lenti
í stjómarandstöðu eftir næstu
kosningar. Mundir þú þá sitja
sem þingmaður í stjómarand-
stöðu eða finna þér annan starfs-
vettvang?
“Ég býst við að ég myndi í
fyrstu sitja sem þingmaður í
stjórnarandstöðu. Svo gæti vel
verið að ég myndi í framhaldinu
komast að þeirri niðurstöðu að
tími væri kominn til að gera eitt-
hvað annað. Einhvern tímann
gerist það.“
Gætirðu hugsað þér að verða
sendiherra?
“Nei, það hentar mér ekki. Ég
er ekki að gera Iítið úr þeim
störfum, en ég vil hvergi vera
nema hér á landi."
Finnst þér þú hafa tekið rétta
ákvörðun þegar þú hvarfst frá
þeirri hugmynd að fara í forseta-
framboð?
“Það var algjörlega rétt
ákvörðun. Ég held að öll önnur
niðurstaða hefði verið ákaflega
vitlaus."
Ntí hefur Sjálfstæðisflokkurinn
ekki eignast sterkan leiðtoga í
borgarmálum síðan þú fórst úr
sæti borgarstjóra. Er það ekki
vandræðamál fyrir flokkinn?
“Ég vona að prófkjör flokksins
skili ágætum niðurstöðum. Ég
hef trú á því að Arni Sigfússon
muni reynast farsæll sem leið-
togi listans og vonandi borgar-
stjóri.“
Gerirðu þér vonir um að Sjálf-
stæðisflokkurinn vinni borgina?
“Ég vonast til þess og held það
yrði til stórra bóta. Það hefur Iít-
ið gerst í tíð núverandi meiri-
hluta."
Engin pólití sk þreyta
Þú verður fimmtugur á næsta
ári, varst borgarstjóri, ert formað-
ur flokks þins og forsætisráð-
herra. Er eftir einhverju fleiru að
sækjast?
“Stundum heyrist sagt að það
sé galli á mér að ég sé ekki það
sem kallað er ástríðustjórnmála-
maður, eins og sumir kalla sig.
Ég gef mig allan í mitt pólitíska
starf meðan ég er í því, en ég er
ekki þeirrar skoðunar að ísland
geti ekki án mín verið eða ég Iif-
að án stjórnmálanna. Ég myndi
ekki harma hlut Islands og
ógæfu þess þótt ég yrði ekki
iengur í störfum á opinberum
vettvangi. Ég mundi heldur ekki
harma mitt hlutskipti, hvorki
opinberlega eða í leyni. Ég
ímynda mér að það myndi reyn-
ast mér andlega létt ef þar yrði
breyting á.“
Þetta hefur verið öruggur ferill,
áttu von á þvt' að svo verði áfram?
“Vonandi á ég eftir mörg ár í
tilverunni, hvort sem hún verður
pólitísk eða ekki. Pólitísk þreyta
er sannarlega ekki komin í mig,
en guð og gæfan verða að eiga
síðasta orðið.“