Dagur - 25.10.1997, Side 12
28-laugakdagur 2 s.október 1997
LÍFIÐ í LANDINU
Það erýmislegtsem þatfað
hafa í huga þegarungafólkið
ætlar sér stóra hluti í eldhús-
inu.
Áhugi barna og unglinga á eldamennsku
og bakstri er mikill þó einn réttur sé tví-
mælalaust vinsælli en annar. Pizzan góða.
Unga fólkið veigrar sér hins vegar ekki
við að elda þjóðlegan mat og því finnst
allur matur góður, þ.e.a.s. ef það fær að
elda hann sjálft.
Leyfa krökkimum að hjálpa til
Marína Sigurgeirsdóttir er heimilisfræði-
kennari við Glerárskóla á Akureyri. Hún
segir áhuga krakkanna mikinn í heimilis-
fræðinni og þá almennt duglega að elda
og baka. Það sé þó jhnislegt sem þurfi að
hafa í huga áður en farið er af stað í eld-
húsinu og nauðsynlegt sé að foreldrar og
forráðamenn láti krakkana hjálpa til og
leyfi þeim að dunda með, t.d. búa til
hrásalat.
Það er um 12 ára aldur sem krakkar
geta farið að stússa sjálf í eldhúsinu án
hjálpar sér eldri. Þau þurfa samt sem
áður að hafa fengið hjálp og Ieiðsögn og
þekkja vel til hlutanna áður en þau fara
af stað. Krakkar á aldrinum 7 til 8 ára
geta hins vegar íyllilega hjálpað til við
eldamennsku og bakstur því það er
þannig sem þau læra að þekkja hráefnin
sem notuð eru.
Skiptir máli að fara varlega
Marína segir nauðsynlegt að hafa hrein-
lætið að leiðarljósi áður en byijað er að
elda eða baka. Oll áhöld þurfi að vera vel
hrein og þvo þurfi hendurnar vel með
sápu og setja á sig svuntu til hlífðar fatn-
aði. Ekki sé hægt að byija að elda eða
baka nema þekkja mjög vel áhöldin sem
notuð eru og ekki sé nóg að þekkja þau
heldur þurfi að kunna á þau, eins og það
að nota hnífa.
Það þarf að vara sig á áhöldunum og
fara verlega með þau. Eldavél og ofn geta
verið mjög heit og þá þarf að nota
pottalappa. Það þarf að passa sig á því að
brenna sig ekki og skera sig ekki. Málið
er að fara varlega.
Það skal líka alltaf byija einfalt. Ekki
ætla sér of mikið. Salat hentar vel og gott
er að æfa sig á því að skera grænmetið og
stússa við það að gera þetta flott og gott.
Læra að skera og blanda. Annars eru það
allar einfaldar uppskriftir sem henta dug-
Iegum og áhugasömum krökkum í eld-
húsinu. Það er líka um að gera að hafa
það í huga að bakstur er einfaldari en
eldamennskan.
Ungt fólk sækir í létt fæði
Unga fólkið sækir mikið í létt fæði að
sögn Marínu því það er orðið svo algengt
að það sjái mikið um sig sjálft yfir daginn.
I heimilisfræðikennslunni er krökkunum
hins vegar kennt að elda gamlan og góð-
an íslenskan mat og segir Marína mikil-
vægt að þau kynnist þjóðlegri matargerð
því hún sé dýrmætur arfur sem ekki megi
týna. Eins sé hann hollur. Krakkarnir takí
því líka vel að elda hann. Finnist t.d. gott
að borða slátur með mjólkugrautnum
sem þau elda sér. En annars er reynt að
hafa matinn sem þau læra að elda Ijöl-
breyttan og þau fá auðvitað að elda pizz-
ur og hamborgara.
Það er undantekningalaust þegar
börnin hafa sjálf búið til matinn að þeim
finnst hann góður og segir Marína að það
séu aldrei afgangar eftir heimilisfræði-
tíma. Unga fólkið borði allt og þar skipti
það mestu máli að það eldi matinn sjálft
sem það borðar.
Fræðslan mikilvæg
Marína segir nauðsynlegt að efla áhuga
unga fólksins á því að geta bjargað sér
sjálft Það þurfi að vita hvað sé í fæðunni
sem það borðar og hvaða næringarefni
það þurfi. Hún bendir á að sykur- og fitu-
neysla sé sívaxandi vandamál hjá börnum
og unglingum og oft komi það upp að
krakkarnir vilji ekki vita sannleikann. Þau
loki augunum fyrir honum og vilji ein-
göngu borða það sem þeim finnist gott.
Þegar þau eru komin í 9. bekk er alltaf
einn og einn að hennar sögn sem er op-
inn fyrir honum en yngri börnin standa
sig betur og miklu máli skiptir að byrja
snemma að gera þeim grein fyrir mikil-
vægi holls fæðis. Börnin vilja vera hraust
og það er seinna á ævinni sem fræðslan
skilar sér.
Þetta þurfa allir krakkar að hafa í huga
áður en þau byija að elda eða baka:
* Alltaf að spyrja fullorðinn um leyfi
áður en farið er af stað í eldamennsku
eða bakstur.
* Huga vel að hreinlæti. Þvo sér um
hendur með sápu og vera með svuntu.
* Muna að nota pottalappa þegar eitt-
hvað heitt er tekið úr ofrii eða af elda-
vél.
* Fara varlega með potta og pönnur á
eldavél. Snúa handföngum á pottum
og pönnum inn að eldavélinni svo þau
séu ekki fyrir eða hægt að reka sig í
þau þannig að hvolfist úr þeim. Halda
í potta og pönnur þegar verið að hræra
í matnum.
* Setja heita hluti á sérstök hlífðarbretti
undir potta og pönnur.
* Ekki smakka heitan mat með fingrun-
um. Alltaf að nota teskeið eða eitthvað
slíkt.
* Muna að slökkva á eldavél og ofni að
lokinni notkun.
* Biðja um hjálp við notkun á beittum
hnífum. Nota bretti þegar verið er að
skera.
* Lesa vel í gegnum uppskrift áður en
farið er að nota hana svo ekkert vanti í
eldamennskuna eða baksturinn. Taka
hráefnið til áður en byrjað er að elda
eða baka.
* Byrja á auðveldum uppskriftum. Ekki
ætla sér of mikið. HBG
Hvítlauksbrauð
Undirbúningur: 10 mín.
Bökunartími: 3 mín.
Fyrir 4
Heilt snittubrauð
2 tsk. smjör, mjúkt
1 hvítlauksgeiri, vel marinn í hvítlauks-
pressu
1 tsk. basilikum, þessu má sleppa
1. Það þarf að byija á því að skera brauð-
ið í tvennt og síðan langsum þannig að
úr verði 4 hlutar.
2. Mjúkt smjörið, hvítlaukurinn og
basilikum er sett saman í skál og hrært
vel.
3. Bökunarofninn er settur á grillstill-
ingu. Harði hluti brauðsins er látinn
snúa upp á bökunarplötunni og grill-
aður í 1 mínútu eða þar til brauðið
verður brúnt.
4. Þá er hvítlaukssmjörið smurt á mjúka
hluta brauðsins og sú hlið látin snúa
upp í ofninum. Bakað í 1 mínútu, eða
þar til smjörið er vel bráðið.
Það er best að bera brauðið fram heitt
en svona hvítlaukssmjör er þægilegt að
eiga tilbúið í frystinum. Þá er bara að
smyrja því á brauðið áður en það er
sett í ofninn. Það er líka gott að setja
ost á brauðið áður en það er grillað á
mjúku hliðinni.
Súkkulaði- og hnetu-
smákökur
Undirbúningur: 20 mín.
Bökunartími: 20 mín.
Um 20 kökur
1 bolli hveiti
1 bolli súkkulaðispænir
'A bolli hnetur
'A bolli sykur
2 tsk. smjör, mjúkt
'A bolli hnetusmjör
1 egg, þarf að hræra það með gaffli
100 g súkkulaði til skreytingar
1. Byrja þarf á því að kveikja á ofninum
og setja hann á 180°C hita.
2. Hveitið, sykurinn, súkkulaðispænirnir
og hneturnar er allt sett í skál og
blandað vel saman.
3. Mjúkt smjörið og hnetusmjörið er sett
i lítinn pott á eldavél og Iátið bráðna.
Hægt að nota örbylgjuofn til þess.
4. Það þarf að láta smjörblönduna kólna
aðeins áður en hún er sett í skálina
með hveitinu. Þarna er eggið sett út í
lfka. Nú er allt saman hrært vel og
vandlega.
5. Bökunarpappír er settur á bökun-
arplötuna. Matskeið notuð til að búa
til litlar kökur úr deiginu. Eiga að vera
um 20 kökur.
6. Bakað í 20 mínútur eða þar til kökurn-
ar verða guliinbrúnar.
7. Kökurnar eru látnar kólna áður en
bráðið súkklaði er sett ofan á þær.
Súkkulaðið er brætt í vatnsbaði, þ.e.
Iítil skál eða pottur settur ofan í annan
stærri með heitu vatni.
Súkkulaðihristingur
Undirbúningur: 5 mín.
Fyrir 2
4=