Dagur - 25.10.1997, Blaðsíða 15
T
LAUGARDAGVR 25. OKTÓBER 1997- 31
LIFIÐ I LANDINU
Bmdin
sýna
Garðar Siggeirsson
leggur áherslu á að
skera sig ekki úrí
klæðnaði heldurvera
eðlilegur ogfalla inn í
hópinn. „Það höfðar
ekki til mín að vera
sundurgerðarmaður í
klæðaburði, “ segir
hann.
„Fötin klæða manninn og fatn-
aðurinn sýnir hver maðurinn er.
Maður þarf að vera klæddur í
viðeigandi fatnað eftir því hvert
tækifærið er hveiju sinni. Mað-
ur getur ekki verið í sportfatnaði
þegar maður á að mæta á fund
og maður getur Mrst mjög kjána-
legur þegar maður á að mæta í
kjólfötum en gerir það ekki. Þá
er maður eins og keisarinn í
nýju fötunum," segir Garðar
Siggeirsson, fyrrverandi kaup-
maður.
Þarf alltafviðeigandi föt
Garðar rak verslunina Herra-
garðinn í 25 ár en starfar nú
sem fjárfestir auk þess að
stunda sport af ýmsu tagi, lík-
amsrækt, skíði, hestamennsku,
ijallgöngur og ferðalög. Hann
kveðst ekki velta fatnaði mikið
fyrir sér dags daglega enda séu
fötin fyrst og fremst til að skýla
nekt og veita skjól. Fatnaðurinn
þurfi þó að vera í samræmi við
vaxtarlag og aðstæður. Garðar
segist alltaf klæðast þannig enda
sé fólk vegið og metið eftir því
hvernig það lítur út. Hann þarf
því til dæmis að hafa með sér
viðeigandi föt þegar hann fer í
ævintýraferð til Amazon,
Ekvador og Galapagos innan
skamms. Lagerinn hlýtur því að
vera töluverður.
Garðar er þekktur fyrir að vera alltaf mjög
smekklega klæddur enda myndi hann lík-
legast teljast sérfræðingur í fatnaði eftir
25 ár í fataviðskiptum. Garðar segist ekki
vilja vera sundurgerðarmaður í fatnaði og
velurþví föt, skyrtu og bindi mjög vand-
lega saman. mynd: e.ól.
„Þetta er ekkert einfalt," segir
hann.
Minnst 30 skyrtur
- Attu mikið af fötum?
„Ja, ég myndi segja að ég ætti
ekki lítið,“ svarar hann og telur
það mikið atriði að geta valið
um nokkra jakka, nokkrar stakar
buxur, vill eiga að minnsta kosti
sjö til átta sett af fötum og ekki
minna en 30 skyrtur. „Maður
þarf að eiga bindi. Þau skipta
tugum hjá mér,“ segir hann og
bendir á að bindi segi mikið til
um skapgerðareinkenni manna.
Ef menn mæti með litríkt og
mynstrað bindi í viðskiptah'finu í
London þá sé litið á þá sem
sundurgerðarmenn, sem viti
ekki hvað þeir séu að fara. Ef
maðurinn sé hins vegar með
sígilt og röndótt bindi, frekar
einfalt, þá sé litið á hann sem
ábyrgðarfullan og traustvekjandi
mann.
„Það höfðar ekki til mín að
vera sundurgerðarmaður í
klæðaburði. Eg vil vera sn^Tti-
legur í hreinum, klassískum föt-
um,“ segir hann og kveðst alltaf
velja fötin fyrst, síðan bindið og
skyrtuna þannig að litirnir passi
vel saman. Hann leggur áherslu
á að skera sig ekki úr í klæðnaði
heldur vera eðlilegur og falla inn
í hópinn.
Föt eru eins og leikbúnmgur
- Tekurðu meðvitaða ákvörðun
um það hvernig mynd þú vilt
gefa af þér með fatnaðinum?
„Já. Fatnaður er eins og leik-
búningur, sem maður klæðist
hverju sinni og ákveður þannig
hvernig maður vill koma fram.
Síðan raðar maður fötunum
saman eftir hverju tækifæri.
Menn þurfa ekld endilega alltaf
að vera fínir. Þeir geta verið
snyrtilegir og vel klæddir þó að
þeir séu ekki alltaf í jakkafötum.
Maður getur verið í fallegum
póló bol og fallegum gallabux-
um. Það verður bara að ldæðast
því á réttum stað á réttum tíma
og kunna með það að fara,“
svarar hann.
Pakkar
gömlu fötuimiii niöur
Herratískan núna sækir margt
til tískunnar kringum 1940, að
sögn Garðars, með vestum,
háum krögum, hárri hneppingu
á jökkum, síðari jökkum og
þrengri buxum en fyrir nokkrum
árum. Hann segist fylgjast með
tískunni og endurnýjar hjá sér
fataskápinn eftir þörfum. Hann
hendir þó yfirleitt ekki gömlu
fötunum enda aldrei að \ita
nema þau komist aftur í tísku
heldur pakkar þeim ofan í kassa
og geymir.
- Attu þér einhvern uppáhalds
fatnað?
„Eg á sumarbústaðsfatnað,
sérstakan galla sem ég nota mik-
ið í sumarbústaðnum. Það eru
stuttbuxur og bolur,“ segir hann.
- Sem þú tekur með til
Galapagos?
Leikfélag
Akureyrar
4 TRQMP Á HENDI
Garðar Siggeirsson fjárfestir segir að fötin sýni hver maðurinn er og þvi verði menn að
klæða sig í viðeigandi fatnað eftir því hvert tækifærið er. Menn geti virst mjög kjánaleg-
irþegarþeir eigi að mæta í kjólfötum en geri það ekki, næstum eins og keisarinn í nýju
fötunum. mynd: gva
„Alveg eins.“
-GHS
/ sportinu er mikilvægt að vera klæddur á viðeigandi hátt. Garðar stundar mikið fjall-
göngur og útivist afýmsu tagi og klæðir sig i samræmi við það. Hér í fjallgöngudress-
inu, tilbúinn að leggja i hann.
*
Hart
bak
eftir Jökul Jakobsson.
á Renniverkstæðinu
6. Sýning
Laugardaginn 25. októbe
UPPSELT
7. Sýning
Föstudaginn 31. október
laus sæti
8. Sýning
Laugardaginn 1. nóvember
aukasýning kl. 16.00
UPPSELT
9. Sýning
Laugardaginn 1. nóvember
kl: 20.30
UPPSELT
10. Sýning
Föstudaginn 7. nóvember
laus sæti
11. Sýning
Laugardaginn 8. nóvember
UPPSELT
Gagnrýnendur segja:
Uppsetning LA á Hart í bak er
hefðbundin og verkinu trú. Örlög
og samskipti persónanna eru
fyrirrúmi ..."
Auður Eydar í DV
„Leikritið Hart í bak er meistara-
lega samsett af hliðstæðum og
andstæðum, táknum og samblandi
af stílfærðu raunsæi og botnlausri
rómantík.
Sveinn Haraldsson !Mbl.
„Inn í dökkva söguþráðarins fléttar
hann (höfundur) fögur Ijósbrot og
spaugileg atriði auka dýpt
verksins."
Haukur Ágústsson í Degi
„Af því að ég skemmti mér svo
vel .“★★★
Arthúr Björgvin Bollason Dagsljós
♦ 4 ferð með frú Daisy
Frumsýnmg d Renniverkstœðinu 21. des.
Ttilhlutverk: Sigurveig Jónsdóttir
^ Söngvaseiður
Frumsýning í Samkomuhiísinu 6. mars
AðaJhlutverk: Þóra Einarsdóttir
4 Markúsarguðspjall
Frumsýning dRcmiiverkstœðinu 5. áptil
Leikari: Aðalsteinn Beigdal
Leikfélag Akureyrar
Við bendum leikhúsgestum á að enn
gefst tækifæri til þess að kaupa
aðgangskort á allar sýningar
Leikfélagsins, tryggja sér þannig sæti og
njóta ljúfra stunda í leikhúsinu á
einstaklega hagstæðum kjörum.
S. 462-1400
Munið Leikhúsgjuggið
fiuömm-isiAms
síml 570-3600
S