Dagur - 25.10.1997, Page 18
tt h t\ ^ n ( \
? ?. \ c 9 x a a sí t Vi n ■ " n r.;
34 - LAUGARDAGUR 2S. OKTÓBER 1997
LÍFIÐ í LANDINU
'SíflAN
Með „Bros“ á vör
Magniís Geir
Guðmundsson
skrifar
PoppKom
Einn af vinsælustu tónlistar-
mönnum Iandsins á seinni
árum, Geirmundur Valtýsson,
gerir það ekki endasleppt nú
frekar en fyrri daginn. Nú eru
víst að verða þrjátíu ár frá því
kappinn hóf að skemmta Iands-
mönnum samhliða því að gefa
út plötur og er ekkert lát á.
Geirmundur er nú, að senda frá
sér nýja plötu, sem þegar allt er
talið, virðist vera hans tíunda.
Nefnist platan því uppörvandi
og viðeigandi nafni „Bros“ og
inniheldur hún 14 ný lög. Sína
valinkunnu hljómsveit hefur
Geirmundur að venju sem bak-
hjarl, en eins og svo oft áður eru
góðir söngkraftar einnig með í
för. Þar á meðal eru Ari Jónsson,
sem verið hefur fastagestur á
plötum Geirmundar síðustu ár,
Guðrún Gunnarsdóttir, sem líka
hefur sungið með Geirmundi
áður og verið gestur hjá nánast
öllum, Ríó tríóið góðkunna tek-
ur líka lagið og svo er Ijúflingur-
inn dags daglega en „rokkvilli-
dýr“ upp á sviði, Rúnar Júlíus-
son, í heimsókn hjá skagfirska
sveiflukónginum. „Bros“ er
fyrsta platan frá Geirmundi í tvö
ár, eða frá því að safnplatan
Bestu lög Geirmundar kom út
1995. Fjögur ár eru hins vegar
frá því að plata með nýju efni
kom, Geirmundur, 1993.
Geirmundur verður með „bros“ á vör.
„QUARASHI“ komin út
Á mánudaginn kom út plata,
sem áreiðanlega telst til þeirra
viðburðarmestu á þessu ári. Þar
er átt við fyrstu stóru geislaplötu
rapptríósins Quarashi, sem ein-
faldlega ber heitið, Quarashi.
Þarf vart að fara mörgum orðum
um það, að drengirnir þrír sem
skipa sveitina, Sölvi, Höskuldur
og Richard, hafa vakið mikla at-
hygli frá því að þeir komu fram
á sjónarsviðið á síðasta ári. Með
sínu rokkaða rappi, ekki ólíku
„ribbaldarappinu" (Gangster
rap) sem þeir hafa svo framreitt
með tilþrifum á sviði, hafa þeir
tekið æskulýð landssins og fleiri
til með trompi, þannig að eftir
er tekið. Fyrir síðustu jól sendu
þeir frá sér sína fyrstu afurð, 5
laga smáútgáfu, sem kom út í
500 eintökum og er löngu upp-
seld. Löngu var því kominn tími
á stóra plötu, sem nú er semsagt
komin út og inniheldur heil
sextán lög. Með smáútgáfunni
fyrir jólin síðustu og stóru plöt-
unni nú, eru þremenningarnir
þrátt fyrir ungan aldur að gerast
brautryðjendur á Islandi fyrir
rapp/hip hop og er það eitt út af
fyrir sig merkilegt.
LeiMð á als oddi
„Eins og Lionel Richie og Atari
Teenage Riot væru komin sam-
an á einum stað“. Svona maka-
laus orð má lesa um hina bráð-
skemmtilegu og mjög svo líflegu
dansgaura og gárunga, sem kalla
sig Coldcut og hafa fyrir tuttu
sent frá sér plötuna, Let us play.
Hvort þessi orð eru alveg rétt
lýsing á tónlist Coldcut skal ekki
fullyrt, en það er .ekki orðum
aukið að halda því fram að um
ansi hreint skrautlegan „rétt“ sé
að ræða þar sem Let us play er.
Samsuða af hip hop/rappi, trip
hopáhrifum, fönki og ýmsu
fleiru til viðbótar, má segja að sé
það sem finna má á plötunni, en
sú innihaldslýsing er þó ekki
fullnægjandi. Hinn dágóði
skammtur af fjöri, galsa og
kímni, sem svo kryddar herleg-
heitin, samtals 12 lög, þar sem
umljöllunarefnin eru jafn fjöl-
skrúðug sem salerni og geim-
sprang, er nefnilega svo stór
þáttur í öllu saman, að ekki
verður Iýst með orðum. Fyrir
dansfíkla og aðra tölvuáhuga-
menn er því Let us play fínn
þarfagripur í gleðskapinn. Og
þetta er svo ekki allt, því með
plötunni fylgir tölvudiskur, þar
sem finna má góðan skammt af
alls kyns sprelli, leikjum,
myndbandaklippum o.fl. Ekki
amalegur pakki þetta. Coldcut
er tvímælalaust í framvarðar-
sveitinni í dansgeiranum. Náði
platan 5. sæti óháða sölulistans
í Bretlandi og í það 34. á stóra
listanum.
H- Spírur - Sprotabönd, er sér-
stök safnplata þar sem finna
má 14 lög með sjö ungum og
upprennandi hljómsveitum,
tvö með hverri, sem v'æntan-
leg er í búðir nú eftir helg-
ina. Sproti, undirfyrirtæki hjá
Spor, stendur að útgáfunni,
en tilgangur þess er að gefa
yngri kynslóðinni í tónlistinni
sérstakan gaum.
H- Maus, þeir kraftmildu rokk-
sveinar, sem sigruðu í Músík-
tilraunum fyrir þremur árum
eða svo, hafa í sumar og
haust verið að vinna nýja
plötu, sem verður þeirra
þriðja. Mun hún einfaldlega
kallast Maus og koma út á
vegum Sprota á fyrstu dögum
nóvembermánaðar.
Friðrik Karlsson gítarleikari Mezzoforte.
H- Friðrik Karlsson gítarleikari
Mezzoforte hefur sem kunn-
ugt er verið búsettur í
London síðasta árið eða
u.þ.b. og haft þar í nógu að
snúast. Meðal annars spilað
með Madonnu í uppfærslu á
Evitu o.fl. Kappinn hefur svo
líka gefið sér tíma til að
hljóðrita nýja plötu undir eig-
in nafni og er hennar að
vænta nú í fyrstu viku nóv-
ember. Mediation er nafn
gripsins og verður spennandi
að heyra útkomuna, t.a.m.
hvort um eitthvað svipað
verði að ræða og Mezzoforte
eða Point blank, plötunni
sem Friðrik gerði fyrir all-
nokkrum árum.
H- Félagi Friðriks í Mezzo, Ósk-
ar Guðjónsson saxafónleikari
er líka að senda frá sér plötu
og nefnist hún FAR. Kemur
hún út rétt um miðjan nóv-
ember.
H- Um svipað leyti og plata Ósk-
ars kemur út, nokkrum dög-
um síðar, kemur svo safn-
plata með Mezzoforte, The
best of Mezzoforte.