Dagur - 08.11.1997, Síða 5
LAUGARDAGUR 8.NÚVEMBER 1997 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
Listin breytir fóIM
BæjarlistamaðurAkur-
eyrar, Michael Jón
Clarke baritón og Björg
Þórhallsdóttir sópran,
halda ásamtRichard
Simm tónleika áAkur-
eyri um helgina, auk
þess sem þau eru að
undirbúa útgáfu
geisladisks.
Tónleikarinir á Akureyri eru i til-
efni þess að öld er Iiðin frá fæð-
ingu Stefáns Agústs Kristjáns-
sonar, stofnanda Tónlistarfélags
Akureyrar. Stefán Agúst samdi
sönglög og verða nokkur þeirra
flutt á tónleikunum. Þar á með-
al verður frumfluttur dúett eftir
Stefán sem heitir: Brúður
söngvarans.
Michael Jón Clarke og
Richard Simm eru Englending-
ar, en hafa búið á Islandi um
langt skeið. Michael í aldarfjórð-
ung og Richard í um áratug.
Þeir hafa unnið náið saman og
Björg Þórhallsdóttir lærði söng
hjá Michael Jóni áður en hún
hélt til náms í Manchester.
Ekki eru nema 6 ár síðan
Björg hóf eiginlegt söngnám, en
hún lýkur námi frá Manchester
í vor. Hún segir rödd sína hafa
breyst í náminu úti; nú sé hún
sópran, en hafi verið mezzo-
sópran áður en hún hélt utan.
„Stórsöngvarinn Bryn Terfel er
með svipað nám að baki,“ segir
Michael. Björg er ekki á því að
þau séu rædd í sömu andrá.
“Það eru viss vandamál með
svona náttúrutalent eins og
Björgu," segir Michael. „Það eru
dæmi um það að slíkar raddir
hafi aldrei orðið það sem efni
stóðu til. Björg er sem betur fer
þannig að hún tekur tilsögn, svo
hún verður stöðugt betri.“
Þroskinn miMlvægur
Björg segir það kannski ekki
skrítið að röddin hafi breyst, því
nú hafi hún í fyrsta sinn nægan
tíma til að syngja. „Eg er hjúkr-
unarfræðingur og starfaði við
það, auk þess að kenna við Há-
skólann, þannig að tíminn var
takmarkaður." Hvernig finnst
henni þá að syngja allan liðlang-
an daginn? ,/Eðislegt. Það að
vera góður söngvari og listamað-
ur snýst um fleira en röddina.
Það er mjög mikilvægt að hafa
öðlast þroska sem manneskja til
þess að maður hafi einhverju að
miðla til fólks. Eg er því ákaf-
lega þakklát fyrir að hafa farið
þá leið í söngnáminu sem ég
fór.“ Michael segist mjög sáttur
við stöðu sinnar raddar miðað
við óhóflega notkun við kór-
stjórn og söngkennslu. Hann
segir það geta reynst söngvurum
hættulegt að flýta sér við að
þroska röddina. Tilhneiging
haritónraddar sé að dýpka með
aldrinum, en það að flýta þeirri
þróun geti drepið hljóminn í
henni.
Er ekki óvenjulegt að kennari
og fyrrverandi nemandi að syngi
saman á tónleikum?
„Michael Jón og klón,“ segir
Michel Jón og hlær við, en bætir
þvf við að Björg hafi snemma
sýnt hvað hún vildi og haft
ákveðnar skoðanir. Björg bætir
því við að þau þekkist mjög vel
og hafi óskaplega gaman af því
að vinna saman. „Það er líka
freistandi að velja verk með erf-
iðum undirleik, þegar maður
hefur svona undirleikara eins og
Richard.“ Þau taka sem dæmi
Alfakónginn eftir Schubert sem
Michael Jón syngur á tónleikun-
um og Die Junge Nonne sem
Björg syngur. Richard segir und-
irleikinn í Alfakónginum ákaf-
lega erfiðan á nútíma píanó.
„Tónninn var styttri og minni á
hljóðfærum á tíma Shuberts,
þannig að það var auðveldara að
spila hraðar nótur.“
Engin störf fyrir söngvara
Nú syngið þið óperuaríur, dúetta
og íslensk sönglög. Hvernig kom
íslensk tónlistarhefð þeim
Richard og Michael fyrir sjónir
sem aldir eru upp f ríkri hefð á
Bretlandi?
„Mér fannst hún skrítin í byrj-
un og kunni ekki alveg við
hana,“ segir Michel „Eg hef
samt lært að meta hana með
tímanum." Richard tekur undir
þetta. Björg segir það skemmti-
legt að nú lifi hún sjálf og hrær-
ist í þeim menningarheimi sem
þeir félagarnir ólust upp við. „A
hinn bóginn erum \að Richard á
góðri leið með að verða rammís-
lenskir sveitamenn," segir Mich-
ael. „Það er mjög gaman að
kynnast sönglögum Stefáns og
annarra tónskálda sem eiga lög
á diskinum. Það sem manni
finnst merkilegt við þessa menn
er hversu góð tónlistin er miðað
við hve Iitla tónlistarmenntun
þeir fengu. Maður er alveg gátt-
aður á hvað þessir menn kunnu,
þó auðvitað megi finna á lögun-
um einhverja galla.“
Þau ræða um hver mikil breyt-
ing hefur orðið í sönglist á Is-
landi og hversu margir góðir
söngvarar hafa komið fram.
Michael segir það hins vegar
vandamál að það séu engin störf
fyrir söngvara á Islandi, enda
leiti þeir til útlanda. „Eg er
kannski eini atvinnusöngvarinn
á íslandi í augnablikinu af því ég
er á launum sem bæjarlistamað-
ur.“ Björg bætir því við að söng-
ur sé oft ekki metin sem starf.
„Það kemur fyrir að maður eru
beðin um að syngja á þeirri for-
sendu að maður hafi svo lítið
fyrir því, hafi svo gaman af því
og fái jafnframt tækifæri til að
koma fram.“ Þau eru sammála
að þetta sé gamalt baráttumál
listamanna og segja að Beet-
hoven hafi alla tíð barist fyrir
viðurkenningu og fengið hana
að lokum. „Kannski ekki alveg,“
segir Richard, „hann dó allvega
frekar óánægður.“
Listin breytir sögunni
Þetta leiðir hugann að því
hvernig skemmtun eigi að vera,
hvort fólk komi til að láta
skemmta sér eða skemmti sér
með því að fá umhugsunarefni
og örvar ímyndunaraflið. Listin
breytir fólki og sögunni. „Ég er
sannfærður um að ef Grikkir
hefðu ekki gert allar sínar stytt-
ur í fornöld, þá værum við öðru-
vísi í dag,“ segir Richard. Þau
bæta við að tónleikar séu alltaf
einstök upplifun bæði fyrir flytj-
endur og hlustendur. „Sam-
bandið sem myndast milli
söngvara og áheyrenda er svo
einstakt og áheyrendur eru svo
mikill hluti af þeirri sköpun,"
segir Björg. Upptökutækni sé
orðin þannig að til verði stjörnur
sem standi ekki undir nafni þeg-
ar komi að tónleikum. „Maður
hlustar á tónlist á mismunandi
forsendum, stundum á eitthvað
sem vekur mann til umhugsunar
og maður er úrvinda eftir. Svo
hlustar maður líka á eitthvað
sem er bara fallegt og fær mann
til að slappa af,“ segir Michael.
„Þannig eru flest lögin á diskin-
um.“
„Verkin á diskinum heyrast
mörg hver ekki oft og sum hafa
aldrei verið gefin út svo sem lag
eftir Jóhann O. Haraldsson sem
var einn af stofnendum Tónlist-
arféiags Akureyrar,“ segir Björg.
„Við syngjum Iíka nokkur Iög
eftir Eyþór Stefánsson og lag
eftir Bjarna Þorsteinsson, Sól-
setursljóð, sem er sérstakt en
mjög fallegt.“
Allt þetta tal um verkin á
geisladiskinum verður til þess að
blaðamaður áttar sig á því lista-
mennina þyrstir í að komast aft-
ur til vinnu sinnar. Fögur
sönglög bíða þess að verða sung-
in og það styttist í tónleikana.
HH
KABARETTINN
“í boði sveitastjórnar“
í Freyvangi 14. og 15. nóvember.