Dagur - 08.11.1997, Síða 10
LAUGARDAGUR ll.OKTÓBER 1997 - 26
Thyur
LÍFIÐ í LANDINU
Eggert feldskeri fíytur erindi á ráðstefnu um nýtingu sjávarspendýra í Kanada á næstunni. Hann fer utan með nokkrar yfirhafnir úr selskinni til að sýna á tiskusýningu í tengslum við ráðstefnuna. „Ég er afar
mikill náttúruverndarsinni, “ segir Eggert. „Það fór i taugarnar á mér að sjá hve miklum verðmætum er hent. Ég ákvað því að reyna að búa til svo fafíegar flíkur að áhugi fólks á íslensku selskinni aukist."
Vill berjast fyrir selveiðum
Eggertfeldskerí er
snillingur í höndunum
og býr til dýríndis yfir-
hafnir úr selskinni.
Hann vill blása til
sóknarí selveiðum og
viðhaldajafnvæginu í
náttúrunni.
„Ég hef reynt að fara fram úr
öðrum hvað gæði varðar og
reynt að búa til hina hreinu,
náttúrulegu flík þar sem engin
gerviefni eru notuð. Ég hef
gengið svo langt að nota hval-
skíði og hvaltennur sem tölur,
hreint kínverskt silki sem fóður,
sauma með bómullarþræði og
nota laxaroð og hlýra í brydding-
ar, sem gerir þetta eins íslenskt
og hægt er,“ segir Eggert Jó-
hannsson, best þekktur sem
Eggert feldskeri.
Eggert fer í lok nóvember á
ráðstefnu í Kanada á vegum
NAMCO, Norræna sjávarspen-
dýraráðsins, þar sem fjallað
verður um nýtingu á sjávarspen-
dýrum, til dæmis sel. A ráð-
stefnunni verður reynt að gefa
heildarhugmynd um það hvernig
selurinn er nýttur. Þetta verður
meðal annars gert með matvæla-
kynningu og tískusýningu. Egg-
ert mun flytja erindi og sýna
nokkrar af sínum vönduðu yfir-
höfnum en hann hefur framleitt
fyrsta flokks selskinnskápur og
jakka í sex ár.
Verðmætiun hent
„Þetta kom til af því að ég var
orðinn leiður að sjá slæma um-
gengni í náttúrunni. Ég er afar
mikill náttúruverndarsinni og
það fór í taugarnar á mér að sjá
að þarna er miklum verðmætum
hent. Ég ákvað því að koma
þessu af stað aftur og reyni að
búa til svo fallegar flíkur að
áhugi fólks á íslensku selskinni
aukist og verðið hækki," segir
hann.
Islendingar fluttu út selskinn
á sínum tíma enda var það fjór-
um til sex sinnum dýrara en
annað selskinn. Skinnin féllu í
verði fyrir nokkrum árum og
veiðar hættu að miklu leyti.
Eggert bendir á að landsel við
ísland hafi fækkað stórlega
vegna þess að útselurinn hafi
gengið í Iátrin og spillt þeim.
Utselurinn er tvisvar sinnum
stærri en landselurinn og mun
styggari. „Þegar selskinn voru
verðmæt gengu bændur um
þetta eins og hvern annan fjár-
hóp, pössuðu afar vel upp á sín
selalátur og náðu 30-40 skinn-
um á ári. Ef útselur kom nálægt
þá var hann umsvifalaust skot-
inn.“
Kópamir étnir
Landselur er til víða, til dæmis í
Kanada og Skotlandi, en ísland
hefur verið sterkasta vígið hans.
Eggert segir að íslenski selurinn
sé nú varnarlaus því að enginn
hafi neinna hagsmuna að gæta
við að gæta hans og þvf hafi út-
selurinn gengið hart að íslenska
landselnum. Selabændur hafi
jafnvel séð útsel éta kópa frá
Iandsel, slíkur sé stærðarmunur-
inn á þeim og grimmdin í nátt-
úrunni svo rosaleg. Jafnvægið
milli stofnanna hafi raskast og
þeir, sem hafi haft framfæri af
að veiða sel, hafi ekki verið nógu
duglegir við að láta í sér heyra.
„Það þarf að gera grein fyrir
að við erum alls ekki í vonlausri
stöðu. Við erum í þessari stöðu
vegna þess að það var farið of
langt í veiðum á sínum tíma og
ekki nægjanlega varlega farið.
Við verðum að vinna okkar
heimavinnu og koma upplýsing-
um á framfæri. Þetta er eitthvað
sem við getum unnið á fimm til
sjö árum. Það tekur tíma en við
verðum að gera það,“ segir
hann.
Eggert telur að mönnum beri
skylda til að reyna að nýta allt
nýtanlegt í náttúrunni og við-
halda vissu jafnvægi. Hann fer
utan með nokkrar yfirhafnir sem
verða sýndar á tískusýningunni
og svo mun hann halda tíu mín-
útna langt erindi um það hvern-
ig cigi að beijast fyrir málstað
þeirra sem vilja veiða og nýta
selinn. Hann vill gera fjölmiðl-
um og stjórnmálamönnum grein
fyrir ástandinu þannig að upp-
lýsingastreymið verði ekki ein-
hliða. Það sé ekki nóg að segjast
bara ætla að veiða. Aróðurinn
hafi verið svo mikill gegnum
árin að það þurfi að sýna fram á
skýrt og röggsamlega hvers
vegna þurfi að veiða. Hann álít-
ur að andstæðingar selveiða séu
tiltöluiega fáir en að áhrif þessa
„heittrúa" hóps nái langt því
þetta fólk sé svo duglegt við að
koma sínum skoðunum á fram-
færi.
Eina sterka vígið
„Ef veiðimaðurinn á að fást til
að veiða úti í náttúrunni verður
hann að fá nægilega vel greitt til
þess að vilja standa í veiðunum,“
segir Eggert og bætir við: „Það
má svo sem segja að það sé eng-
in sérstök nauðsyn að halda
landselsstofninum við ísland.
Við getum alveg eins haft útsel.
Hins vegar er landselurinn tals-
vert mikið vinalegra dýr og þetta
hefur verið hans eina sterka vígi.
Það er synd að útrýma stofnin-
um út af einhverjum hjartnæm-
um rökum.“ -GHS
Eggert vill berjast fyrir selveiðum með þeim rökum að viðhalda náttúrunni og ganga
þannig vel um hana. Hann óttast um landsel við ísland því að veiðar liggja að miklu
leyti niðri. Útselur étur kópa og spillir látrum landselsins. myndir: e.úl.