Dagur - 08.11.1997, Síða 11
LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997 - 27
í>gyu'
Halla Bára
Gestsdóttir
umsjón
Glæsilegar laxauppskriftír
Nú þegar sportveiði-
áhugamenn hafapakk-
að niðurveiðistöng-
inni og dregiðfram
byssuna erkominn
tími til að huga að því
hvað skuli elda úr lax-
inum ífrystikistunni.
Það þarfnefnilega að
gera um leið og búið er
til pláss fyrirrjúpum-
aroggæsina. Fyrir
utan þetta þá vita þeir
sem ekki veiða að lax
er gotthráefni sem
býðurupp áfjöldan
allan af eldunarmögu-
leikum ogágóðu verði.
Hérá eftirfylgja
nokkrar ólíkar en góðar
uppskriftir aflaxi.
Gratineraður
_________graflax____________
500-800 g graflax, beinhreins-
aður og skorin í þunnar sneiðar
safi úr lime ávexti
Sinnepssósa:
2 eggjarauður
80 g sykur
175 g dijon sinnep
3 dl soyaolía
1 dl rjómi
1 dl mjólk
1 msk. sherry
ediksalt,
pipar og saxað dill
4 eggjahvítur
Þeytið eggjarauðurnar, sykurinn
og sinnepið saman og hellið
stofuheitri olíunni út í í mjórri
bunu (hrærið stöðugt í). Blandið
þá mjólk og rjóma út í og hrærið
vel. Smakkið til með salti, pipar,
ediki og dilli. Að lokum eru
eggjahvíturnar stífþeyttar og
blandað saman við sósuna sem
síðan er sett ofan á laxinn sem
hefur verið penslaður með
safanum (á diski eða í formi).
Athugið að sósan geymist ekki
vel eftir að hvíturnar eru komn-
ar saman við. Gratinerið undir
grilli í ofni í 20-30 sek. eða þar
til að sósan er fallega brún. Ber-
ið réttinn strax fram með nýbök-
uðu brauði og fersku salati.
Sítrusmarineraður
lax með laxahrogn-
um á salatbeði
300 g lax bein- og roðlaus
1 lime
1 sítróna
1 appelsína
3-4 msk. ólífuolía
njroulin svartur pipar
salt, helst nýmulið
30-50 g laxahrogn
Laxinn er skorinn í þunnar
sneiðar og raðað á bakka. Kreist-
ið safann úr ávöxtunum og rífíð
börkinn saman við, blandið við
olíuna og smakkið til með salti
og pipar. Þekið laxinn með leg-
inum og geymið í kæliskáp í 3-4
klst. eða þar til laxin hvítnar upp
eins og hann verður þegar hann
er soðinn. Setjið góðan vönd af
fersku, velskoluðu salati á disk
(t.d. lollo rosso, fríse og eikar-
Iaufi) raðið laxasneiðum ofan á
og síðan hrognum og afgangn-
um af safanum af laxinum. Bor-
ið fram með ristuðu brauði , ný-
bökuðu brauði eða ostastöng-
um.
Laxasúpa með
engifer, couscous
og spergli
Grunnlaxasoð:
1 laxahaus (tálknin og augun
farlægð)
3 msk. hvítvínsedik
/ sítróna (ekki börkurinn)
A laukur (ekki hýðið)
3 steinseljustilkar
7 dl kalt vatn
1 lárviðarlauf
Allt hráefnið er soðið saman á
vægri suðu í 20 mín. Það þarf
að fleyta froðunni ofan af um
leið og fer að sjóða. Eftir suðuna
Iátið þá standa í 40 mín. áður en
soðið er sigtað í gegnum fínt
sigti eða dúk. Magnið ætti þá að
vera u.þ.b. 4 dl.
Súpan:
2 dl hvítvín (þurrt)
80 g skallotlaukur
(smátt saxaður)
1 msk. olífuolía
1 tsk. rifið engifer
8 ferskir sperglar
3 gulrætur (skornar í skífur)
3 msk. couscous
200 g lax (skorinn í teninga)
2 msk. saxað koríander
1 dl rjómi
Steikið laukinn í olíunni, hellið
hvítvíni yfir, síðan fisksoði og
engifer. Sjóðið við væga suðu í 8
mín., setjið þá couscous út í
ásamt grænmetinu og sjóðið í 3-
4 mín. og hrærið reglulega í. Þá
er laxinn settur út í og suðan
látin koma aftur upp. Rjóman-
um er þá hellt út í og súpan
smökkuð til með salti, pipar og
koríander. Súpan er borin fram
strax og hún er góð sem forrétt-
ur en einnig sem heil máltíð
með góðu brauði.
Lax í kampavíns-
smjörsósn
800 g Iax, bein- og roðlaus
(skorinn í 200 g stykki)
3 msk. smjör
2 msk. olífuolía
1 dl fisksoð
1 dl kampavín
(má vera freyðivín)
salt og nýmulinn pipar
Hitið olíu og smjör saman á
pönnu og setjið krydduð laxa-
stykkin á pönnuna (roðhliðina
upp) brúnið passlega og snúið
stykkjunum við, takið þá pönn-
una af hita og hellið víni og soði
yfír og setjið í 160°C heitan ofn
í 10-12 mín.
Sósa:
1 dl kampavín
2 msk. skallotlaukur
2 msk. kampavínsedik
1 steinseljukvistur
5 msk. ijómi
250 g ósaltað smjör
'A msk. sítrónusafi
salt og pipar
Vínið, edikið, laukurinn og
steinseljukvisturinn er soðið ró-
lega í 5 mín.,-þá er ijómanum
blandað saman \4ð og soðið
áfram í 7 mín. eða þar til lögur-
in fer aðeins að þykkna. Þá er
mjúku smjörinu hrært saman
við í smá skömmtum en suðan
ekki látin koma upp. Sósan er
smökkuð til með soðinu af laxin-
um, salti, pipar og sítrónusafa.
Sósan er þá sigtuð. Hún er út-
búin rétt áður en laxinn er bor-
inn fram.