Dagur - 08.11.1997, Síða 15
LAUGARDAGUR 8.NÓVEMBER 1997- 31
Dnpu-
LÍFIÐ í LANDINU
OO
Það ermikil vinna sem liggurá
bak við stóra sólóplötu og
margtsem þarfað huga að.
Plötuumslagið erþarengin
undantekning enda segirþað
til um innihaldplötunnar.
„Ég er ballöðukerling. Mikið fyrir rólega,
ljúfa og rómantíska tónlist. Þannig er tón-
listin á plötunni og út frá þvf var gengið þe^-
ar hönnunin á umslaginu fór af stað. Ég
hafði ákveðna skoðun á því hvernig það ætti
að vera og það fæddist því samfara öllum
þessum Iögum,“ segir Sigríður Beinteins-
dóttir söngkona um nýjustu sólóplötu sína.
„Mig langaði að gera plötu sem væri stór og
mikil ballöðuplata. Vinnan hófst í september
en hugmyndin hefur verið í maganum á mér
í tvö til þrjú ár. Það var alltaf hugmyndin hjá
mér eftir að ég gerði jólaplötuna Desember
að ég myndi taka mín uppáhaldslög og setja
á plötu. Það var að megninu til það sem ég
gekk út frá núna.“
Umslagið hlýtt og ljúft
Hún vildi hafa umslagið Ijóst. „Ég hafði
alltaf hugsað mér að umslagið á einni sóló-
plötunni yrði kóngablátt og eitt ljóst. Þessir
Iitir stóðu mér næst. Ég vildi lfka að myndin
yrði æðislega hrein og ljúf til að ná því fram
sem er að gerast á plötunni. Ég held að það
hafi tekist ágætlega. Það voru hins vegar
teknar tvær týpur af myndum. Onnur týpan
var þessi sem er á umslaginu. Þessi hvíta.
Hin var miklu brúnleitari og grófari. Með
henni fannst mér ég vera komin út fyrir það
sem ég hugsaði mér í upphafi þrátt fyrir að
sú mynd sé mjög góð. Þar vantaði bara þetta
Ijúfa og hlýja.“
Gerist ekki einn, tveir
ogþrír
Það er margt sem þarf að hafa í huga þegar
farið er að hanna plötuumslag. „Já, það er
margt sem fylgir. M.a. það að ég lét klippa á
mig topp eins og sést á umslaginu. Það var
gert í samráði við hárgreiðslukonuna mína.
Ég vildi fá einhverja breytingu, eitthvað nýtt.
Ég hef nefnilega verið að safna hári og búin
að vera með toppinn lengi jafnsíðan. Ég er
mjög sátt við þessa breytingu og finnst það
koma vel út. Það er eins með förðunina. Ég
vildi hafa hana sem mest natural, mjúka til
að ná fram hlýju í stíl við tónlistina." Fatn-
aðurinn. „Ég er í skyrtu framan á umslaginu.
Um leið og hugmyndin kom að hafa umslag-
ið ljóst, og til að ná réttri birtu, þá varð ég að
„Ég er ballöðukerling. Mikið fyrir rótega, ijúfa og rómantiska tónlist. Þannig er tónlistin á plötunni og út frá þvi var
gengið þegar hönnunin á umslaginu fór afstað. Ég hafði ákveðna skoðun á þvi hvernig það ætti að vera og það
fæddist því samfara öllum þessum lögummynd: pjetur
vera í einhveiju ljósu. Ég fékk Maríu Ólafs-
dóttur búningahönnuð til að aðstoða mig í
því þannig að það eru margir sem koma að
umslaginu. Þetta er ekki eitthvað sem ger-
ist einn, tveir og þrír. Og auðvitað á ljós-
myndarinn sinn þátt í þessu líka. Það er
hins vegar þannig að fjölskylda og vinir
láta mig algerlega um þetta, eru ekkert að
gefa mér ráð, því ég hef það fastmótaðar
skoðanir."
Huga að Desember 2
Sigríður talar um að það hafi verið allt
önnur hugmynd á bak við umslagið að
jólaplötunni. „Þar þurfti að ná fram
jólastemmningu án þess að vera með
jólakúlur og bjöllur. Ég vildi alltaf hafa
bakgrunninn kóngabláan og til að ná
fram jólunum þá þurfti fatnaðurinn að
koma þar á móti. Jakkinn er því rauður
og úr plusi sem er hátíðlegt. Ég er
mjög ánægð með það umslag í dag og
myndi ekki vilja
„Ég er mjög ánægð með þetta umslag i
dag og myndi ekki vilja hafa það neitt
öðruvfsi."
„Ég vildi að myndin yrði æðislega hrein
og Ijúf til að ná þvi fram sem er að gerast
á plötunni."
hafa það neitt
öðruvísi. Aldrei
eins og þessi týpísku
jólaumslög eru. Hins
vegar gæti það vel ver-
ið að næsta umslag að
plötu hjá mér yrði
hvítt. Desember 2
gæti orðið þannig. Ég
er ákveðin í því að
gera hana og hún er
komin á borðið. Ég fer
hins vegar ekki af stað
fyrr en ég er komin
með efni sem ég er
ánægð með.“
§§§»f
Þetta tókst
En hvað er hún að fara með þessari plötu?
„Það er eins með báðar plöturnar. Þetta er
spennan. Maður er að taka stóra sénsa og
reyna að ná settu takmarki. Líka það að ég
er að gera þetta allt sjálf. Það hefur mikið að
segja fyrir mig. Að sjá hlutina verða að veru-
leika eins og með umslagið. Þá hugsaði ég:
„Þetta tókst eins og ég vildi hafa það.“ Það
er ofsalegt kikk.“ HBG
Leikfélag
Akureyrar
4 TROMPÁHENDI
*
Hart
S
bak
eftir Jökul Jakobsson.
á Renniverkstæðinu
Föstudagskvöid 7. nóvember
UPPSELT
Laugardaginn 8. nóvember
aukasýning kl. 16.00
UPPSELT
Laugardagskvöld 8. nóvember
kl.20.30
UPPSELT
Sunnudagurinn
9. nóvember
aukasýning vegna
mikillar aðsóknar
laus sæti
Föstudagskvöld 14. nóvember
laus sæti
Laugardaginn 15. nóvember
kl: 16:00
laus sæti
Laugardagskvöld 15. nóvember
nokkur sæti laus
Föstudagskvöld 21. nóvember
laus sæti
Laugardaginn 22. nóvember
kl: 16:00
laus sæti
Laugardagskvöld 22. nóvember
kl: 20:30
UPPSELT
Gagnrýnendur segja:
„Uppsetning LA á Hart í bak er
hefðbundin og verkinu trú. Örlög
og samskipti persónanna eru
fyrirrúmi ..."
Auður Eydar í DV
„Leikritið Hart í bak er meistara-
lega samsett af hiiðstæðum og
andstæðum, táknum og samblandi
af stílfærðu raunsæi og botnlausri
rómantík.
Sveinti Haraldsson í Mbl.
„Inn ! dökkva söguþráðarins fléttar
hann (höfúndur) fögur ljósbrot og
spaugileg atriði auka dýpt
verksins."
Haukur Ágústsson t Degi
„Af því að ég skemmti mér svo
vel ."★★★
Arthúr Björgvin Bollason Dagsljós
♦ Á ferð með frú Daisy
Frumsýning d Rennherkstœðinu 27. des.
Titilhlutverk: Sigurveig Jónsdóttir
V Söngvaseiður
Frumsýning íSamkomubúsinu 6. mars
Aðalhlutverk: Þóra Einarsdóttir
4 Markúsarguðspjall
Frutnsýning d Rennherkstœðinu 5. apríl
Leikari: Aðalsteinn Bergdal
Leikfélag Akureyrar
Aðgangskort á frábærum
kjörum s. 462-1400
Munið Leikhúsgjuggið
HUCHIA6 ÍSIXNÚS
sími 570-3600
ú
Ðamur
er styrktaraÖili Leikfélags Akureyrar
li