Dagur - 08.11.1997, Blaðsíða 17
J
t^iir
LÍFIÐ í LANDINU
LAUGARDAGUR 8.NÓVEMBER 1997 - 33
Hún stendur rétt innan við útidym-
armeð lítinnpjakk með sér, dökk-
eygð með stórfalleg augu og
geislandi aflífsorku.
Eva Asrún heitir hún, þekkt sem útvarpskona á
rás 2 og söngkona Snaranna.
„Þetta er hann Valdimar, við eru svolítið sein af
því að við þurftum að skreppa til læknis," segir
hún og brosir.
Eva Ásrún situr ekki auðum höndum. Hún er í
fullu starfi sem dagskrárgerðarmaður á Rás 2,
syngur flestar helgar og stundum á milli þeirra og
er þar að auki að gefa út plötu.
„Já, það hefur verið dálítið mikið að gera upp á
síðkastið," segir hún, „platan kem-
ur út 10. nóvember og af því að ég
á meirihluta í fyrirtækinu, þá hef-
ur mest af vinnunni lent á mér.
En þetta er góð plata held ég,“
bætir hún við og spilar hana fyrir
blaðamann, sem er alveg hjartan-
lega sammála.
tug, hvað þá meira. Hún var lengi ein með eldri
strákana tvo og keypti þá íbúðina sem hún er í nú.
„Þetta var ekkert auðvelt, ég vann mjög mikið, ég
hef alltaf unnið mjög mikið. Maður Iætur hlutina
bara ganga ög staðreyndin er sú að fólk fer þangað
sem það ætlar," segir hún ákveðin.
Það þarf lika ákveðni til. Eva var farin að syngja
með skólahljómsveit 17 ára gömul, þá í Mennta-
skólanum á Akureyri. Þær tóku svo þátt í útihátíð-
inni „Ein með öllu“, þrjár söngkonur og þar var
Brunaliðið á stóra pallinum. Meðlimir Brunaliðs-
ins tóku vel eftir þessum hressu stelpum og buðu
þeim að vera með og af því að þær voru hvort sem
er á leið til Reykjavíkur í nám, þá slógu þær til.
Þar með var Eva komin í Brunaliðið.
Eva er dagskrárgerðar-
maður, söngkom,
Ijósmóðirog mamma,
Duglegirbræður
Eva býr á efstu hæð í gömlu húsi
við Nóatún og uppi í risinu eiga
þeir herbergi, Albert og Magnús, stóru strákarnir
hennar. Þeir hafa erft tónlistaráhuga mömmu
sinnar, annar spilar á gítar og hinn á trommur.
Yngsti strákurinn er þriggja ára og svo er von á
nýjum strák innan mánaðar. „Það er fínt að fá
einn strák enn, ég kann á þá og á allt til alls. Þeir
eru duglegir þessir eldri, þeir passa litla bróður
umyrðalaust og aðstoða við heimilishaldið á marga
vegu,“ segir Eva.
Brunaliðið
Lífið hefur ekki verið neinn dans á rósum hjá Evu
Ásrúnu. Hún ber það raunar ekki með sér því að
það er erfitt að trúa því að þessi kona sé orðin þrí-
Söngkona og ljósmóðir
En Eva er ekki bara söngkona og dagskrárgerðar-
maður og mamma. Hún er nefni-
lega Ijósmóðir að mennt. „Eg
myndi gjarnan vilja starfa sem
ljósmóðir," segir hún, „en launin
eru bara of lág. Ég fæ betri laun
sem dagskrárgerðarmaður en Ijós-
móðir og þá er valið einfalt“. Eva
hefur samt unnið sem ljósmóðir
alltieinu og litursamt og tekið á móti meira en hundrað
j , börnum. „Mér finnst yndislegt að
Vel Ut. taka á móti börnum,“ segir hún
brosandi.
- En hver er galdurinn við það að eiga þrjú börn,
eiga von á því Qórða og það án þess að börnin séu
vanrækt eða í vandræðum eins og svo víða?
„Það er spurning um að sinna sálartetrinu í
þeim vel, að láta sér þykja vænt um börnin sín og
að þau finni það, faðma þau oft og taka þátt í lífi
þeirra. Það er ekki spurning um að eyða með þeim
klukkutímanum lengri tíma, heldur miklu frekar
um að nota þann tíma vel sem maður hefur. Börn
eru líka misjöfn og ég hef verið mjög heppin með
strákana mína, þeir eru frábærir,“ segir Eva, sem
að loknum barnsburði ætlar að taka sér ársfrí frá
störfum dagskrárgerðarmanns, þó svo hún haldi
áfram að syngja. VS
Eva hefur unnid sem Ijósmóðir og tekið á móti meim en hundmð börnum. „Mér finnstyndislegt að
taka á móti bömum," segir hún brosandi. myndir: hilmar
bhfík/
'1 Wfcwí