Dagur - 08.11.1997, Síða 20
36 - LAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 1997
Xfc^MT'
LÍFIÐ í LANDINU
Framsóknarflokkurinn
Bæjarstjórnarkosningar 1998
Framsóknarfólk á Akureyri
Ákveðið hefur verið að fram fari skoðanakönnun meðal
flokksbundinna framsóknarmanna á Akureyri vegna bæjar-
stjórnarkosninganna á vori komanda.
Listi með frambjóðendum í skoðanakönnuninni verður
sendur út til allra flokksbundinna framsóknarmanna á
Akureyri þar sem þeim verður gefinn kostur á að raða
í átta efstu sæti listans, til leiðbeiningar fyrir
uppstillinganefnd.
Stuðningsmenn flokksins sem ekki eru flokksbundnir geta
skrifað undir inntökubeiðni fyrir 20. nóvember nk. og öðlast
með því rétt til þátttöku í skoðanakönnuninni.
Þeir sem gefa kost á sér til framboðs í skoðanakönnuninni
þurfa að tilkynna það til uppstillinganefndar fyrir 20. nóvem-
ber nk.
Skrifstofa flokksins að Hafnarstræti 90 verður opin virka
daga frá 11. til 19. nóvember á milli kl. 17 og 19, þangað
getur fólk komið og skráð sig í flokkinn.
Símanúmer á skrifstofu flokksins að
Hafnarstræti 90 er 462 1180.
Nánari upplýsingar veitir formaður uppstillinganefndar,
Gísli Kr. Lórenzson, í síma 461 1642.
Uppstillinganefnd.
BELTIN ~’ "‘Va...
Vráð
Einingarfélagar!
Framhaldsaðalfundur Vlf. Einingar verður
haldinn í Alþýðuhúsinu á Akureyri 4. hæð,
laugardaginn 15. nóvember kl. 14.
Fundarefni:
1. Lagabreytingar.
2. Önnur mál.
Félagsmenn fjölmennið.
Stjórnin.
Krossgáta
nr. 61
í helgarkrossgátunni er gerður
skýr greinarmunur á grönnum
og breiðum sérhljóðum. Lausn-
arorð gátunnar á að skrifa á
lausnarseðilinn og senda hann
til Dags, Strandgötu 31, 600 Ak-
ureyri merktan: Helgarkrossgáta
nr. 61. Einnig er hægt að senda
símbréf í númer 460-6161.
Verðlaun fyrir krossgátuna að
þessu sinni er bókin Svarti
prinsinn. Skáldsaga eftir Iris
Murdoch. Iðunn gaf bókina út.
Lausnarorð krossgátu nr. 58
var Frostlögur. Vinningshafinn er
Hólmfríður Helgadóttir, Set-
bergi, Fellahreppi, 701 Egils-
stöðum. Hún fær bókina Silfur
Egils eftir Sigrúnu Davíðsdóttur.
Lausnarorð krossgátu nr. 59
verður tilkynnt sem og vinnings-
hafi um leið og krossgáta nr. 62
birtist.
Umhverflsráðuneytið
Laus staða forstjóra Náttúruverndar ríkisins
Staða forstjóra Náttúruvemdar nkisins, skv. 4. gr. laga nr.
93/1996, um náttúravemd, er laus til umsóknar. Staðan veitist
frá 1. febrúar 1998 til fimm ára. Gerð er krafa um sérþekkingu á
málaflokknum sem nýtist í starfi og stjómunarlega þekkingu.
Umsóknir ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og störf
skulu berast umhverfísráðuneytinu, Vonarstræti 4, 150
Reykjavík, eigi síðar en 1. desember nk.
Umsóknir þar sem óskað er nafnleyndar verða ekki teknar til
greina.
Nánari upplýsingar em veittar í ráðuneytinu.
Umhverfisráðuneytið, 6. nóvember 1997.