Dagur - 08.11.1997, Page 21
LAUGARDAGUR 8.NÓVEMBER 1997 - 37
LÍFIÐ í LANDINU
L
Símon 2 8 ár í toppforml
BRIDGE
W 1 BJÖRN
d ÞORLÁKSSON
<*®1 1 SKRIFAR
Fremur óvænt úrslit á
íslandsmótijm í tví-
menningi. Þau komu
samt hvorki Símoni né
Sverri mikið á óvart.
Fæstir hefðu spáð Símoni Sím-
onarsyni og Sverri Kristinssyni
sigri á Islandsmótinu í tvímenn-
ingi sem fram fór í húsnæði
Bridgesambandsins í Reykjavík
um síðustu helgi. Þeir skoruðu
af miklum krafti seinnipart
mótsins og enduðu með örugga
forystu. I öðru sæti urðu norð-
anbræðurnir Anton og Sigur-
björn Haraldssynir en Matthías
Þorvaldsson-Aðalsteinn Jörgen-
sen urðu að Iáta sér þriðja sætið
nægja eftir að hafa leitt mótið
um hríð.
Lokastaóa efstu para:
1. Símon-Sverrir 272
2.Anton Sigurbjörn 201
3.Aðalsteinn-Matthías 191
4.Magnús Magnússon
Þorlákur Jónsson 179
5. Rúnar Einarsson-
Guðjón Siguijónsson (!) 164
6. Bragi Hauksson
Sigtryggur Sigurðsson 143
7. Jónas P. Eriingsson
Steinar Jónsson 137
8. Hróðmar Sigurbjörnsson
Stefán Stefánsson 132
Símon var að vonum kátur með
árangurinn í samtali við Dag, en
átti hann von á þessu? „Ja, það
byijaði ekki vel í fyrstu umferð,
við fengum stóran mfnus þegar
leið á mótið fórum við að spila
helvíti vel, keyrðum dálítið og
tókum mikið inn á doblum. Jú,
alveg eins gat maður átt von á
sigri,“ segir Símon.
Sfmon og Sverrir eru ekki al-
veg óreyndir saman, spiluðu
einn vetur áður en Sverrir fór til
Danmerkur en þar hefur hann
verið síðustu ár og unnið Sjá-
landsmeistaratitil meðal annarra
afreka.
-38 ár í toppformi, þetta er
ekki hægt í neinni annarri
íþrótt en bridge?
„Nei, kannski ekki, en þetta er
ekkert eindsæmi. Sjáðu bara
Kaplan sem hefur haidið sínu
alla tíð. Þótt spilið þróist þá
fylgir það alltaf sömu lögmálun-
um. Eg hef alltaf lesið mikið um
bridge og haldið mér þannig í
einhverju formi þótt spila-
mennskan hafi verið mismikil,"
sagði fimmfaldur íslandsmeist-
ari í tvímenningi, Símon Símon-
arson.
Einfalt, sjálfsagt og
skilaði toppi
Þegar blaðið falaðist eftir „góðu
spili" varð Símoni að orði, að
eins og venjulega myndi hann
bara eftir vondu spilunum!
Hann lét þó þættinum eftirfar-
andi spil í té og þakkaði Sverri
gott skor.
Þannig gengu sagnir:
* ÁK8Ó
* KDG72
* ÁT
* 53
N
V A
S
* G5432
* Á63
* 975
* 72
Norður Austur Suður Vestur
Sverrir Símon
1 lauf 1 tígull dobP pass
1 hjarta pass 2 hjörtu pass
2 spaðarpass 4 spaðar
*5-7 punktar
Þótt hjartasamlegan sé fund-
in, „nennir“ Sverrir að tilkynna
4-litinn í spaða og Símon stekk-
ur í fjóra. Austur fann ekki út
Iauf og þar með renndi Sverrir
heim 12 slögum. Það gaf nánast
toppskor en það skiptir engu
hvað kemur út í hjartasamningi,
aðeins 11 slagir eru í spilinu.
Menn voru einmitt að spila
hjartageimið út um allan sal og
fengu 11 slagi.
Frá Bridgefélagi Akuxeyrar
Einu kvöldi er ólokið í aðaltví-
menningskeppni félagsins. Eftir
17 umferðir af 23 hafa Magnús
Magnússon og Sigurbjörn Har-
aldsson nánast tryggt sér sigur
en keppnin um næstu sæti er
spennandi:
1. Magnús-Sigurbjörn 177
2. Haukur Grettisson
Sveinn Stefánsson 88
3.Stefán Vilhjálmsson
Guðmundur Víðir
Gunnlaugsson 77
4. Hilmar Jakobsson
Ævar Armannsson 71
5. Hróðmar Sigurbjörnsson
Ragnheiður Haraldsdóttir 66
ó.Reynir Helgason
Björn Þorláksson 63
7.Una Sveinsdóttir
Stefán Ragnarsson 61
Næsta föstudagskvöld verður
spilaður alheimstWmenningur í
Hamri sem víða annars staðar á
landinu. Keppt er um gullstig.
Frá Breiðfirðingum og Breið-
hyltingum
Fimmtudagskvöldið 30. októ-
ber sl. var spilaður tvímenningur
með þátttöku 14 para. Villi og
Þórður græddu rauðvín en með-
alskor var 210.
l.Vilhjálmur Sigurðsson
jr.-Þórður Sigfússon 262
2.Snorri Steinsson
Óskar Elíasson 249
3. Jón Stefánsson
Torfi Asgeirsson 248
4. Þórir Leifsson
Isak Örn Sigurðsson 242
BFB og BF Breiðholts standa
sameiginlega að spilamennsku á
fimmtudagskvöldum. Spilaðir
eru eins kvölds tvímenningar
með rauðvínsverðlaunum. ísak
Örn Sigurðsson sér um keppnis-
stjóm.
Frá BR
Staðan í A-riðli í Frakklandství-
menningi Bridgefélags Reykja-
víkur er þessi eftir 5 umferðir af
15:
1. Steinar Jónsson
Jónas P. Erlingsson 52.
2. Hermann Lárusson
Ólafur Lárusson 40
3. Jón Þorvaraðarson
HaukurIngason 38
Sfmon Símonarson kom sá og sigraði um
síðustu helgi þegar hann varð íslands-
meistari ásamt Sverri Kr/st/nssyn/ i tví-
menningi í bridge.
Stöðvarstjóri
íslandsflug óskar eftir að ráða stöðvarstjóra á Akureyri.
Leitað er að kraftmiklum og hugmyndaríkum starfsmanni
sem tekur þátt í því að stjórna og skipuleggja sölu og
þjónustu á staðnum. Viðkomandi aðiii þarf að hafa
rekstrarlega þekkingu og reynslu ásamt því að vera
þjónustu- og markaðslega hugsandi.
í boði er fjölbreytt og krefjandi starf þar sem reynir á
hæfileika viðkomandi til þess að byggja upp starfsemi
félagsins á Akureyri til góðra verka í hörðum heimi mikillar
samkeppni.
Umsóknir er tilgreina allar persónulegar upplýsingar,
starfsreynslu, menntun o.s.frv ásamt mynd af umsækjandi
óskast sendar félaginu merktar „Stöðvarstjóri“
fyrir 17. nóvember n.k.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
ISLAHDSFLUE
-gerir fleirum fært að fljúga
Umsjónarfélag einhverfra
Fyrirlestur í Stássinu, Akureyri,
laugardaginn 8. nóv. kl. 14.
Judy og Sean Barron, höfundar bókarinnar
„Hér leynist drengur", verða með erindi.
Þráinn Karlsson les úr bókinni.
Bílar og vetmmkstur
Fimmtudaginn 13. nóvemberfylgir
Degi aukablað um Bíla og vetrarakstur.
Auglýsingarþurfa að berast blaðinu
fyrirkl. 12 mánudaginn 10. nóvember.
Verslun og þjónusta á Norðurlandi
Auglýsingablað um verslun og þjónustu á Norðurlandi fylgir Degi
fimmtudaginn 20. nóvember.
Auglýsingapantanir þurfa að berast blaðinu í síðasta lagi
föstudaginn U.nóvember.
Blaðinu, ásamt Degi, verður dreift inn á hvert heimili á svæðinu frá
Sauðárkróki til Húsavíkur.
Símar auglýsingadeildar eru 460 6191,460 6192,
563 1641 og 563 1615.