Dagur - 08.08.1998, Page 4
20 — LAUGARDAGUR 8.ÁGÚST 1998
Tkyptr
MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU
bókaBS
Elias Snæland
Jónsson
ritstjóri |
HILLAN
Svik og dauði í
einræðisríkinu
Þótt skammt sé síðan írsku
Impac-verðlaunin voru afhent í
þriðja sinn við hátíðlega athöfn í
Dublin, hafa bókasöfn víða um
heim þegar tilnefnt skáldsögur til
fjórðu verðlaunaveitingarinnar
sem verður að ári. Þetta eru
mestu peningaverðlaun sem veitt
eru fyrir eina bók, 100 þúsund
sterlingspund sem jafngilda hátt
í 12 milljónum íslenskra króna.
Stofnað var til þessara verð-
launa árið 1995, en þau voru
fyrst afhent ári síðar, 1996. Þau
eru nefnd eftir ráðgjafafyrirtæki
sem IMPAC heitir, en það stend-
ur allan straum af kostnaðinum.
Dublinborg sér hins vegar um
verðlaunin að öðru Ieyti og vinn-
ingshafinn fær ávísunina sfna á
mikilli hátíð sem haldin er í júní
ár hvert til heiðurs James Joyce.
Það eru bókasöfn víða um
heim sem fá að tilnefna bækur til
þessara verðlauna. Að þessu
sinni voru meira en 120 skáld-
sögur tilnefndar af bókasöfnum í
ríflega 100 löndum. Um er að
ræða skáldverk sem hafa verið
skrifuð eða þýdd á ensku og gef-
in út á því tungumáli. Alþjóðleg
dómnefnd fjallar um tilnefning-
arnar, býr til lista yfir allt að 10
bestu bækurnar og velur síðan
vinningshafann úr þeim hópi.
íslenskir höfundar með
Strax frá upphafi hefur Borgar-
bókasafnið í Reykjavík tekið þátt
í að tilnefna bækur til verðlaun-
anna. Enda hafa skáldsögur eftir
íslenska höfunda komið til álita
við úthlutunina öll árin.
Fyrst (1996) var það
Absolution, enskan útgáfan af
Fyrirgefningu syndanna eftir
Ólaf Jóhann Ólafsson. Árið eftir
Angels of the Universe, eða
Englar alheimsins, eftir Einar
Má Guðmundsson, en nú síðast
Troll’s Cathedral, það er Trölla-
kirkjan, eftir Ólaf Gunnarsson.
Hins vegar hefur engin þessara
bóka komist í úrslit hjá dóm-
nefndinni. Eins og fram hefur
komið í fréttum hefur skáldsagan
Z - ástarsaga eftir Vigdísi Grfms-
dóttur verið tilnefnd vegna verð-
launa næsta árs. Sú saga verður
því meðal þeirra verka sem dóm-
nefndin fær til lestrar í haust. I
mars á næsta ári á úrvalslisti
nefndarinnar að liggja fyrir. Úr-
slit verða síðan tilkynnt í maí en
verðlaunin afhent 12. júní.
Flóttakona frá Rihneniu
Þessi verðlaun voru mjög um-
deild í upphafi, einkum vegna
þess hversu há íjárhæð fer til
eins höfundar. En dómnefndinni
tókst vel upp strax fyrsta árið og
það sló á flestar gagnrýnisradd-
irnar. Fyrir valinu varð snilldar-
leg skáldsaga, Remembering
Babylon eftir ástralska höfund-
inn David Malouf, en þar segir
hann frá ungum manni sem
Iendir á milli tveggja gjörólíkra
heima - veraldar frumbyggja
landsins og hinna evrópsku inn-
flytjenda.
I fyrra var niðurstaða dóm-
nefndar umdeildari. Spænski rit-
höfundurinn Javier Marias fékk
þá verðlaunin fyrir skáldsöguna
A Heart So White. Þetta er flók-
in sálfræðileg spennusaga og
ekki við allra hæfi.
Niðurstaðan nú í ár kom ein-
nig nokkuð á óvart. Herta Mull-
er, sem flúði frá Rúmeníu í
valdatíð Ceausescus og býr í
Berlín, fékk verðlaunin fyrir
skáldsöguna The Land of Green
Plums. Hún gerist á tímum ein-
ræðisstjórnarinnar í Rúmeníu og
lýsir nokkrum vinum sem gefast
upp gagnvart kúgunarkerfinu,
svíkja hver annan og enda á því
að fremja sjálfsmorð.
Þýska móðurmálið
„Þetta er heppni,“ sagði verð-
Iaunahöfundurinn þegar úrslitin
Iágu fyrir. „Eg hef alltaf verið
heppin. Jafnvel þegar ég var of-
sótt í Rúmeníu. Eg er heppin að
vera enn á lífi.“
Herta Muller fæddist 1953 í
Timis, sem er lítið þorp í þýsku-
mælandi hluta Rúmeníu sem var
hluti af keisaradæmi Habsborg-
ara fram í fyrri heimsstyrjöldina.
Þýska var hennar fyrsta mál og á
þá tungu skrifar hún bækur sín-
ar. Hún kveðst hafa samið þessa
skáldsögu til heiðurs tveimur
vinum sínum sem létu Iífið í
stjórnartíð Ceausescus.
Sjálf flúði hún landið árið
1987. Þá hafði hún verið rekin
úr starfi fyrir að neita að gefa
leynilögreglunni upplýsingar um
samstarfsmenn sína og sá enga
aðra leið til að sjá sér farborða en
fara úr landi. Móðir hennar fór
með til Berlínar, en faðir hennar
er látinn.
Hún hefur samið tíu bækur
sem hafa komið út í Þýskalandi;
smásögur, skáldsögur og rit-
gerðasöfn. Verðlaunasagan var
gefin út í enskri þýðingu í Banda-
ríkjunum árið 1996. Það segir
hún að hafi líka verið heppni;
forleggjari hennar hafi flutt til
Bandaríkjanna og haft bókina
með sér.
Hún hefur tekið virkan þátt í
þjóðmálaumræðum í Þýskalandi
undanfarin ár, ekki síst barátt-
unni gegn kynþáttahatri.
Mynda heimahagana að lieiman
Ljósmyndaramir Guðmundur Ing-
ólfsson og Wayne Gudmunson,
opna samsýningu í Asmundarsal í
dag, 8 ágúst. Sýninguna kalla þeir
Heimahaga/ Homeplaces. Ljós-
myndimar em teknar á Islandi og
norðarlega í Norður-Ameríku, á
heimaslóðum Vestur-Islendinga;
Wayne tók myndir á fslandi, Guð-
mundur í Ameríku.
Stóra sviöið kl. 20.00
lau. 8/8 uppselt
sun. 9/8 uppselt
flm. 13/8, fös. 14/8 uppselt
lau. 15/8 uppselt
sun. 16/8 nokkur sætl laus
sun. 16/8 aukasýnlng kl. 15.00
Skoðið GREASE
vefinn www.mbl.is
Mlðasalan er opin daglega
frá kl. 13 -18 og fram að
sýningu sýningadaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000 fax 568 0383
Guðmundur Ingólfsson var
staddur í Asmundarsal fyrr í vik-
unni, önnum kafinn við að heng-
ja upp myndir, sem flestar standa
enn á gólfinu, hallandi sér upp
að vegg. Hann heldur áfram að
negla á meðan hann segir frá til-
urð sýningarinnar. „Þetta bytjaði
þannig að rithöfundurinn BiII
Holm og Wayne, sem báðir eru
af íslenskum ættum, ætluðu að
gefa út enskar þýðingar á verkum
K.N. með myndum frá heima-
slóðum hans. Wayne kom hingað
fyrst árið 1993, ferðaðist um
Norðurland og tók myndir með
K.N. í huga,“ segir Guðmundur.
En verkefnið strandaði á miðri
leið og liggur ennþá á vinnuborð-
inu.
Örlagarík sýningarskrá
Þar sem myndirnar voru til,
kviknaði sú hugmynd að Guð-
mundur kæmi vestur yfir haf og
tæki myndir á heimaslóðum
Vesturfara. En upphaf kynna
þeirra tveggja nær lengra aftur.
Það var Waynes sem hafði upp á
Guðmundi eftir að hafa séð
myndir eftir hann í sýningarskrá
sem gefín var út í tengslum við
Scandinavia Today, þar sem Guð-
mundur var með Ijósmyndasýn-
ingu. Sýningarskráin var til sölu í
Minneapolis og komst þannig í
hendur Wayne. „Hann einfald-
lega lét leita að mér í sima-
skránni og hringdi," segir Guð-
mundur.
Guðmundur ferðaðist til
Bandaríkjanna og Kanada á árið
1994 og tók myndir frá Minn-
esota og Minneapolis, Winnipeg
og Gimli, með viðkomu í Fargo,
Moorhead og Mountain. Guð-
mundur hafði aldrei heimsótt
þessar íslendingaslóðir áður og
það sem sló hann mest, Iíkt og
landa hans forðum, var víðáttan.
Ómæld víðátta. „Það er ekkert
þarna sem við Islendingar skil-
greinum sem landslag," segir
hann og bendir á mynd sem
hann tók af tindi Mountain bæj-
ar. „Fjallið" er lítið meira en hóll.
Framundan er marflatt land svo
langt sem augað eygir.
Guðmundur minnir okkur á,
að Bandaríkin hafí á sínum tíma
verið skipulögð eins og rúðustrik-
að blað. Allir vegir á sléttlendinu
liggja þráðbeinir á milli ferkant-
aðra landareigna, akra og engja.
Kennileitin eru engin og því eru
reglulega skilti við vegina sem
segja vegfarendum hvort ekið er
til suðurs eða norðurs, austurs
eða vesturs. Flatneskjan hefur
áhrif á fjarlægðaskynið. „Þú sérð
kannki bílljós framundan, heldur
að þú sért að mæta bíl, en ekur í
hálftíma áður en það gerist," seg-
ir Guðmundur og hefur greini-
lega haft gaman að.
Bugður á sléttunum
Yfírþyrmandi endaleysi sléttunn-
ar sldlar sér í myndum Guð-
mundar Ingólfssonar. En honum
hefur Iíka tekist að finna á henni
óvæntar bugður, hreyfingar og
form, ritar David Arnason í sýn-
ingarskrá. Wayne Gudmunsyni
hefur ekki síður tekist að fanga á
filmu eftirminnilegar myndir af
fslensku landslagi í tveimur
heimsóknum, en hann kom aftur
hingað árið 1995. Wayne er vel
þekktur í heimlandi sínu fyrir
ljósmyndir af landslagi og stöð-
um í Norður-Dakóta og
Minnesota. En þekkingu sína af
ljósmyndum miðlar hann til
nemenda í fjölmiðlafræðideild
háskólans í Moorhead í
Minnesota.
Samsýningin Guðmundar Ing-
ólfssonar og Wayne Gud-
munsonar hefur áður verið sett
upp í Norður-Ameríku. Þeir
sýndu í pARTs Photagraphic
Arts, í Minneapolis í kringum
áramótin síðustu og í Gallery
1.1.1. í Winnipeg snemma í vor.
A næsta ári eru fyrirætlaðar sýn-
ingingar í Moorhead og Seattle.
-MEÓ.