Dagur - 08.08.1998, Síða 11
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998 - 27
M a tar
I ga m
íjo crO
UMSJÓN:
GUÐRÚN HELGA
SIGURÐARDÓTTIR
Súpa í brauði ernýjung á
veitingastöðum. Brauðið er
erfitt að baka svo að það
haldi súpunni en súpurerað
sjálfsögðu hægtað laga eins
og hvervill.
Guðjón Gestsson, vert á Svarta kaffinu,
gefur hér uppskrift að súpu sem best er í
brauði en líka fín í skál. Ekki er vitað
hvaðan súpa í brauði er upprunnin en
Guðjón Gestsson getur sér þess til að það
sé frá austurhluta Evrópu, kannski Ung-
verjalandi eða Rúmeníu. Það er að
minnsta kosti víst að ekki er þessi matur
frá Suöur-Evrópu, löndum á borð við Ital-
íu, Frakkland og Spán og ekki frá brauð-
löndunum í Skandinavíu.
Guðjón segir að erfitt sé að baka brauð
undir súpu heima því að svo erfitt sé að
finna heppilega aðferð til að láta brauðið
halda súpunni. Hann segir að starfsfólkið
á Svarta kaffinu geri allt sjálft en baki
ekki brauðið þvi að svo erfitt sé það. Þau
hafi þurft að láta gera margar tilraunir
áður en besta brauðið og bakstursaðferðin
fundust.
„Hjá fyrstu kúnnunum lak súpan niður.
Það þarf að fylgjast með brauðinu eins og
kornabarni í bakstrinum," segir hann.
Guðjón gefur hér uppskrift að ljúffengri
kreólasúpu sem lfldega er aettuð frá kreól-
unum, spænskum innflytjendum í Banda-
ríkjunum.
Súpa í brauði er nýjung á veitingastöðunum. Hér sést brauð með kreólasúpu innan borðs, afar
matarmikil og góð súpa.
Creole súpa
fyrir 8-10
3 dósir Hunt’s Stewed tómatar
2 Iitlar dósir tómatpuré með hvítlauk
1 dós nýrnabaunir, safanum hellt af og
baunirnar skolaðar
1 dós baby maís, skorinn í bita ef vill
og safinn settur með
4 laukar sneiddir
7-8 söxuð hvítlauksrif
1 púrrulaukur sneiddur
2 knippi brokkolíblóm
1 gul paprika, söxuð
1 rauð paprika, söxuð
2 stk. rauður chilipipar, saxaður
og kornin notuð líka
3 1 vatn
1 Iítil dós Oscar kjúklingakraftur
'á tsk. Hickory reykt salt
2 msk. Italian Seasoning
1 búnt söxuð steinselja
400-500 g beikon, saxað og steikt
Þykkt er með svolitlu maisenamjöli, sem
hrist hefur verið með vatni.
3-4 msk. hlynsíróp eða eftir smekk
Þétt og gróft brauð
Efninu í súpuna er blandað saman í sömu
röð og uppskriftin er. Súpan er látin sjóða
nokkra stund og auðvitað getur hver og
einn kryddað eftir smekk. Guðjón segir að
súpan sé matarmikil og góð og best sé að
bera fram með henni efnismikið, þétt og
gróft brauð, jafnvel súrdeigsbrauð.
Guðjón Gestsson vert gefur uppskrift að kreólasúpu. Hann getur sér þess tii að súpan sé ættuð
frá austurhluta Evrópu og Bandaríkjunum.
Ágrillið
Kolagríllið sést æ sjaldnará
íslenskum heimilum því að
margireiga og notagasgrill.
Kolagrillið stendurþójylli-
legafyrir sínu, það er bara
spuming um að kunna að
nota það. Hérkoma nokkur
ráð jyrirgrillhaustið.
Teinar úr tré
gjarnan liggja í
bleyti dágóða
stund áður en
maturinn er
þræddur upp á.
Hitinn í kolunum er
góður þegar kolin eru
orðin jafngrá að lit.
Gott er að dreifa
ferskum kryddjurtum
áður en grillunin byrj-
ar. Það gefur auka-
bragð. Nauðsynlegt er
að þrífa grindina á
grillinu vel með
bursta og sniðugt er
að pensla teinana með
olíu áður en maturinn
er settur á grillið. Ef
teinarnir eru úr tré er
langbest að láta þá
liggja í vatni í 30 mín-
útur eða lengur áður
en byrjað er að þræða
matinn upp á þá.
Sniðugt er að þræða kjöt eða fiskbita
sér upp á teina, litríka grænmetisbita
sér og svo gefur það Ijölbreytni að vefja
beikoni utan um litlar kartöflur og
þræða líka upp á teina.
Svo er fiskur grillað-
ur heill sérlega ljúf-
fengur, til dæmis sil-
ungur eða lax. Það
þarf bara smá salt og
pipar og þá er máltíð-
in tilbúin. Einnig má
setja smjörklípu,
chilli, lime eða
sítrónu, hvítlauk og
vorlauk og fleiri
kryddtegundir inn í
Grillaður banani
í hýðinu með ís.
Svona er ban-
aninn góður!
fiskinn og grilla.
Ávextir eru sér-
lega góðir grillaðir
og við mælum með
því að grilla banana
í hýðinu. Aðra
ávexti má vefja inn
í álpappír, til dæmis
epli og perur og
skvetta yfír líkjör
eða rommi, og
grilla. Síðan má
setja ískúlur með á Heilgrillaður fiskur
disk og bera fram.
Namm!
með fyllingu.