Dagur - 08.08.1998, Page 16
. rs r\ Y *» V ' I i ?> n 1' a » i' »' * m' ' 1
32 — LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998
LÍFIÐ í LANDINU
Ð^ur
Dettifoss í maimsmynd
^^^■■■■1 Ómar Ragnars-
JÓHANNESAR- son er engum
Iíkum, nema ef
vera skyldi sjálf-
um sér, eða öllu
heldur einhverj-
um af þeim fjöl-
mörgu fígúrum
sem í honum
búa, því maður-
inn er ekki ein-
hamur. Þessi
fyrrverandi
rauðhærði
ærslabelgur og allsheijarsnilling-
ur heldur áfram að koma þjóð
sinni á óvart. Og nú síðast í vik-
unni þegar hann birti einstæða
sjónvarpsupptöku af eitt þúsund
tonna ísklumpi hrynjandi við ís-
helli í Kverkljöllum. Og Ómar
var meira að segja búinn að
reikna út líkurnar á því að hægt
væri að ná slíkum myndum.
Heimsfrægir myndatökumenn í
nátturlífsgeiranum lifa oft Ianga
ævi í voninni um að ná slíkum
myndum en ná ekki. En Ómar
okkar var á staðnum. Hann er
alltaf á staðnum þegar hlutirnir
gerast.
Sans Ómats fyrir snjó
Þetta einstæða íshrun beint fyrir
framan myndavél Ómars Ragn-
arssonar er reyndar merkilegt
rannsóknarefni. Ef maðurinn
væri ekki þekktur af heiðarleika
þá lægi hann ugglaust undir
grun um að hafa laumað nettri
dínamitstöng í sprungu í ísstál-
inu og sviðsett atburðinn. En
því er sem sé ekki til að dreifa,
Ómar er ekki amerískur
æsifréttamaður. Ef maður tryði
á slík fyrirbæri þá gæti manni
dottið í hug að Ómar sæi fyrir
óorðna hluti, hefði yfirskilvitlegt
fréttanef og væri miklu meiri
miðill en Þórhallur miðill sem
skynjar helst að ömmur eru
gjarnan gamlar konur og grá-
hærðar, þegar honum tekst best
upp.
Það er líka morgunljóst að
Ómar er í öflugu sambandi við
náttúruöflin eftir áratuga náin
kynni af þeim og hugsanlega
hefur hann numið einhveija
strauma úr jöklinum sem hvöttu
hann til að láta myndbandið
rúlla á réttu augnabliki. Að hann
sé með svona háþróaðan sans
fyrir snjó og ís, líkt og
dansk/grænlenska söguhetjan
Smilla.
En raunar skipta þessar
vangaveltur engu, heldur sú
staðreynd að Ómar náði að festa
þennan atburð á filmu og færa
þjóð sinni og fleirum.
Kubburitm Rúbfks
Ómar Ragnarsson er held ég
þekktasti maður á Islandi síðast-
liðna áratugi. Sem skemmti-
kraftur, sem íþróttafréttamaður,
sem þáttagerðarmaður, sem
rallökuþór, sem flugmaður, sem
hagyrðingur, sem rithöfundur,
sem textasmiður, sem lagahöf-
undur, sem söngvari, sem Ieik-
ari, sem sókarnefndarformaður,
sem margra barna faðir, sem
guð má vita hvað. Hann er eins
og kubburinn Rúbiks, fletirnir
svo margir að erfitt er að raða
honum saman í heildstæða
mynd.
Ómar hefur sennilega átt
samskipti við fleiri Islendinga en
nokkur annar landi hans. Og
flestir kunna skemmtilegar sög-
ur af honum, oftar en ekki sögur
sem hann hefur sjálfur sagt, en
einnig sögur sem byggja á sam-
skiptum viðkomandi við mann-
inn. Sá sem hér situr við tölvu
hefur nokkrum sinnum orðið
þeirrar ánægju aðnjótandi að
hitta Ómar og hefur ævinlega
verið notaleg og andleg upplyft-
ing.
Rauðhærður arabi?
I fyrrasumar slóst ég i för með
enskri konu á níræðisaldri að
Dettifossi. Þar hafði hún fallið
og fótbrotnað fyrir fáum árum
og sá þvi ekki fossinn og hafði
dreymt um að koma aftur og
upplifa þetta mesta vatnsfall
Evrópu áður en ævi lyki. Og var
hér stödd í boðsferð vegna
þessa.
Skilaboð höfðu borist þess
efnis að Ómar Ragnarsson væri
á leiðinni og vildi spjalla við
gömlu konuna og afmynda við
Dettifoss. Konunni var sagt að
þarna færi frægasti fréttamaður
á íslandi og héti Ómar. „Omar?
Er þetta innflytjandi, kannski
arabi, eins og nafnið bendir til?“
spurði sú gamla. Og setti að
förnuautum hennar hlátur við
tilhugsunina um fyrrverandi
rauðhærðan araba.
Við dvöldum Iengi við fossinn
og gamla frúin var hugfangin.
Ekkert bólaði á Ómari og því var
ákveðið að bíða ekki lengur og
halda af stað. Heyrast þá
skruðningar ofan af hæðinni og
Ómar kemur á vælandi ferð nið-
ur skriðuna og hoppar millum
kletta eins og sauðdrukldn stein-
geit með skelfingu lostinn
myndatökumann í eftirdragi.
Hann renndi sér fótskriðu að
gömlu konunni þar sem hún
stóð á bjargbrúninni, rak hljóð-
nema í andlit hennar og sagði:
„My name is Omar, how dou
you like Dettifoss?" Engu mun-
aði að gamla konan steyptist aft-
ur fyrir sig og ofan í gljúfrið þeg-
ar svo óvæntur míkrófónn var
rekinn með látum í andlit henn-
ar. En eftir örskamma stund var
eins og hún og Ómar væru
gamlir grannar að hittast eftir
langan aðskilnað, sambandi var
komið á og sú gamla lét móðan
mása líkt og hún væri að tala við
trúnaðarvin eða sálfræðing og
viðtalið heppnaðist hið besta.
En í miðju viðtali leit Ómar á
úrið sitt og sagði: „Eg þarf að
vera kominn í Hornafjörð eftir
10 mínútur og ég er á Lödu
sport. Rlessuð og sæl frú mín
góð, það var gaman að kynnast
þér.“ Og þar með var hann rok-
inn eins og fyrrum rauður
stormsveipur og hvarf handan
hæðardrags á leið til Horna-
Ijarðar.
Gamla konan starði í forundr-
an á eftir þessu þjótandi nátt-
úrufyrirbæri og sagði svo: „Ef
mér skjöplast ekki því meir, þá
fór þarna Dettifoss í manns-
rnynd."
SPJALL
Jóhannes
Sigurjónsson
skrifar