Dagur - 08.08.1998, Page 17
LAUGARDAGUK 8. ÁGÚST 1998 - 33
Xfc^wr
LÍFIÐ í LANDINU
horfa til Eystrasaltslandanna án
þess að gera nokkuð ennþá. Við
getum notað okkar innkaupa-
sambönd, markaðsþekkingu og
rekstrarkunnáttu. Við erum til-
búnir til að skoða tækifærin ef
þau koma upp,“ segir hann og
vill ekkert segja hvenær verður
látið til skarar skríða.
Erum að byggja okkur upp
„Við fórum í mikla naflaskoðun
síðasta haust og gerðum stærstu
úttekt á íslenskum fjölmiðla-
markaði sem gerð hefur verið
með aðstoð erlendra ráðgjafa.
Við höfum verið að byggja okkar
stefnubreytingu og framtíðar-
stefnu á þeirri vinnu. Menn
hafa svo sem séð þau fótsporin
síðan. Við seldum DV, vildum
kaupa Skímu en fengum ekki,
og erum að bæta við einni út-
varpsstöð í viðbót. I Tali erum
við með alþjóðlegan samstarfs-
aðila sem heitir Western Wirel-
ess. Við erum að breiða meira úr
okkur.“
Hreggviður bætir við að í út-
tektinni hafi komið í ljós að ís-
lenskt sjónvarp hafi aðeins 20
prósent af auglýsingakökunni á
Islandi meðan bandarískt sjón-
varp hafi 40 prósent af kökunni
í Bandaríkjunum og evrópskt
hafi 30 prósenta hlutdeild. Þá
hafi komið í Ijós að ein mínúta í
íslensku sjónvarpi hafi kostað 67
prósent af heilsíðuauglýsingu í
Mogganum árið 1967 en kosti
39 prósent af heilsíðunni í dag.
Þessu verði auðvitað reynt að
breyta.
Aldrei verið skráður í flokk
- En víkjum að penónuleguni
málum. Bróðir Hreggviðs, Jó-
hann A. Jónsson, hefur stundum
verið bendlaður við Alþýðu-
bandalagið og Steingrím J. Sig-
fússon. Hvaða afstöðu tekur þú t
pólitík?
„Það er stutt að svara því.
Pólitík hefur ekki spilað neina
rullu í mínu lífi. Við Steingrímur
erum bræðrasynir en pólitísk
flóra er fjölbreytileg í mörgum
fjölskyldum. Jói tók þátt í pólitík
fyrir nokkrum árum síðan og var
þá á framboðslista hjá Stefáni
Valgeirssyni. Eg held að hann
hafi fengið nóg af beinum pólit-
ískum afskiptum í því. Stuðn-
ingsmaður Steingríms Joð? Jói
og Steingrímur voru saman á
Laugum, þekkjast þar af leið-
andi og halda eflaust kunnings-
skap,“ svarar Hreggviður og
hlær.
Sjálfur segist Hreggviður láta
pólitík alveg eiga sig og helst
\alja komast gegnum sína braut,
viðskiptin, án hennar. Vitanlega
hafi hann skoðanir, til dæmis á
því hvers konar stjórnun eigi að
viðhafa í efnahagsmálum þjóð-
arinnar, og pólitískur sé hann að
því leytinu en hann geti sagt
með fullri reisn að hann hafi
aldrei verið skráður í neinn flokk
og aldrei tekið þátt í pólitísku
starfi. Þeir bræðurnir fari saman
á rjúpu á haustin en að öðru
leyti séu þeir ekkert að ráðgast
neitt sérstaklega hvor við annan.
Hreggviður lætur vel af sam-
starfinu \'ið Jón Olafsson,
stjórnarformann Islenska út-
varpsfélagsins og segir ástæðuna
fyrir því að hann hafi komið til
starfa hjá Stöð 2 þá að 1995
hafi Chase Manhattan-banki
verið að koma inn í fyrirtækið og
breytingar þvi orðið í rekstrar-
umhverfi þess með tryggari fjár-
mögnun. Það hafi komið í sinn
hlut að vinna náið með Chase-
mönnum síðan og tíminn verið
lærdómsríkur. Jón sé alfarið
kominn út úr daglegum rekstri
fyrirtækisins. -GHS
Hreggviður Jónsson, forstjóri íslenska útvarpsfélagsins, er aðeins 35 ára gamall, bróðir Jóhanns A. Jónssonar, útgerðarrisa á Þórshöfn. Líklegt er að hann
stjórni einu stærsta, ef ekki langstærsta, fjölmiðlafyrirtæki landsins innan tíðar þegar Skífan, íslenska útvarpsfélagið og tengd fyrirtæki renna saman í eitt.
mynd: hilmar þór
Sífellt í sókn
Hreggviður heitir ung-
urmaðursemskotið
hefurupp kollinum
meðal helstu stjóm-
enda stórfyrirtækja í
landinu.
Aðeins 35 ára gamall stýrir hann
einu stærsta fjölmiðlafýrirtæki
landsins með bravúr. Ræturnar
hefur hann í sjávarútveginum á
Þórshöfn og því liggur beint við
að spyrja um afstöðu hans í
kvótamálinu.
„Eg tel að maður í minni
stöðu, sem er að stýra frjálsum
og óháðum fjölmiðli, eigi ekki að
taka þátt í pólitísku starfi eða
predika sínar pólitísku hugsjón-
ir. Eg veit alveg hvað hagfræðin
segir um kvótamálið en það er
ekki þar með sagt að það séu
mínar skoðanir. Ef ég ætti bara
að túlka þá hagfræði sem ég hef
lært þar sem eingöngu yrði leit-
ast við að hámarka fjárhagslega
arðsemi þessarar takmörkuðu
auðlindar þá held ég að hag-
fræðin segi að það eigi að vera
veiðileyfagjald á kvótanum. En
það er margt annað sem spilar
þar inn í,“ segir Hreggviður
Jónsson, forstjóri Islenska út-
varpsfélagsins.
Unnið fyrir mnistæðunni
Hreggviður er 35 ára gamall,
fæddur og alinn upp á Þórshöfn
á Langanesi. Foreldrar hans eru
Jón fó. Jóhannsson verslunar-
maður, sem nú er Iátinn, og
Guðný María Jóhannsdóttir
verkakona. Þeir bræðurnir eru
þrír. Elstur er Jóhann A. Jóns-
son, framkvæmdastjóri Hrað-
frystistöðvar Þórshafnar hf., og
næstelstur er Rafn Jónsson,
verksmiðjustjóri loðnuverksmiðj-
unnar.
Hreggviður hefur komið víða
við og alltaf unnið mikið. Hann
fór 15 ára að heiman til að ljúka
grunnskólaprófi og þar með má
segja að hann hafi fengið fjár-
hagslegt sjálfstæði: „Maður
skynjaði að maður þurfti að
vinna fyrir innistæðunni." Hann
var á sjó í mörg sumur, á togara
og bátum, var verkstjóri á
Djúpavogi með 70 manns í
vinnu 19 ára gamall og svo
mætti lengi telja. Hann lauk
stúdentsprófi frá Samvinnuskól-
anum og segist þá hafa verið
kominn að vendipunkti, annað
hvort færi hann í viðskiptafræði
í Háskóla Islands eða gerði eitt-
hvað nýtt. Hann skellti sér í
hagfræði í Minnesota.
Hreggviður lauk prófi frá
Harvard árið 1993 og starfaði
um skeið hjá alþjóðlegu ráð-
gjafafyrirtæki, McKinsey &
Company, í Stokkhólmi við
stjórnun og stefnumótun fyrir-
tækja. Hann hóf störf hjá ís-
Ienska útvarpsfélaginu haustið
1995 og um síðustu áramót tók
hann við af Jóni Olafssyni sem
forstjóri Islenska útvarpsfélags-
ins sem á og rekur Stöð 2, Bylgj-
una, Stjörnuna, Islandiu inter-
net og Sýn. A næstunni bætast
svo við rekstur kvikmyndarásar,
barnarásar og nýrrar útvarps-
stöðvar fyrir ungt fólk á aldrin-
um 15-25 ára, Mono FM.
íslenskan er vopnið
I fréttum hefur komið fram að
fyrirhuguð sé sameining Skíf-
unnar, tslenska útvarpsfélagsins
og tengdra fyrirtækja undir heit-
inu Norðurljós. Þegar er gert
ráð fyrir að íslenska útvarpsfé-
Iagið og tengd fyrirtæki velti 2,8
milljörðum króna á þessu ári en
starfsmennirnir eru um 250
talsins. Með sameiningunni yrði
komið á koppinn langstærsta
fjölmiðlafyrirtæki í landinu. Lík-
legt er að Hreggviður yrði for-
stjóri þess, aðeins 35 ára að
aldri. Hann vill þó ekki ræða
þessi sameiningaráform svo að
talið víkur að framtíðarhorfum á
íslenskum fjölmiðlamarkaði.
„Markaðurinn er lítill og ber
ekki marga keppinauta. Okkar
aðalkeppinautur er RÚV, annað
íyrirtæki, sem hefur verið að
gera sig líklegt til að keppa við
okkur, er Landssíminn þannig
að íslenska útvarpsfélagið þyrfti
að vera mun stærra og öflugra.
Hin eiginlega samkeppni kemur
ekki frá heimaaðilum í framtíð-
inni, heldur úr háloftunum, frá
erlendum aðilum. Það munu
streyma yfir okkur á næstu árum
tugir eða hundruð sjónvarpsrása
sem verður hægt að ná þráð-
laust frá gervihnöttum. Við ætl-
um að styrkja okkur þarna og
vopnið sem \áð höfum er að við
erum íslensk stöð. Við viljum
efla okkar innlendu framleiðslu
og gera hana öflugri."
Hreggviður viðurkennir að vel
komi til greina að færa út kví-
arnar erlendis og nefnir þá helst
Eystrasaltslöndin en nefnir
einnig að áskriftasjónvarpsstöð á
borð við Stöð 2 er lítt þekkt
rekstrarform á Norðurlöndum.
Sjónvarpsdagskráin á Stöð 2 er
mjög góð. Stöðin sýnir til dæmis
nýlegar bíómyndir beint frá
stóru kvikmyndaverunum í
Bandaríkjunum, enska fótbolt-
ann, þann ítalska og NBA að
ógleymdum ýmsum sjónvarps-
þáttaröðum sem hafa slegið í
gegn'
„Það er vel hægt að færa
þekkinguna í að reka áskrifta-
sjónvarpsstöð yfir á annan mark-
að. Við höfum verið að kynna
okkur þetta gegnum samskipti
okkar við Chase Manhattan
Bank. Þar höfum við verið að