Dagur - 08.08.1998, Page 18
34-LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1998
tteuzur'
Mark Stewart. Eitthvað fyrir danspælarana.
Harðblöndun
Einn af þeim sem gert hafa það nokkuð gott í dansheim-
inum að undanförnu og vekur athygli þar og nýtur virð-
ingar, er Mark Stewart. Ný plata frá honum mun vera
væntanleg á NovaMute-merkinu í byrjun næsta árs, en
áður hefur hann m.a. gert plötu fyrir DHR, Digital
Hardcore Recordings, en tónlist þar á bæ hefur stund-
um verið á dagskrá hér á síðunni. Til að hita upp fyrir
útgáfu nýju skífunnar kemur út 18. ágúst 12
tommu/smágeisli frá Mark þar sem hann hefur fengið til
liðs við sig marga þekkta skífuþeytara og Tæknitröll til
að ldippa og skera í harða og góða blöndu nokkur af lög-
um hans. Þar á meðal eru ekki minni menn en Alec
Empire úr Atari Teenage Riot, Adrian Sherwood, Johnny
Ultra-violence o.fl. Með þessu segist Stewart reyna að
skapa nýja vídd hjá sér og væntanlega vera að bæta við
einhverju í íjölbreytta flóruna sem dansmenningin óneit-
anlega er. Víst er líka að íslenskir skífuþeytarar kunna að
meta verkið og þá kannski sérstaklega þeir sem vilja fara
út á ystu nöf. Annars nefnist þessi skífa Marks Stewart
Consumed - The remix wars.
Kröftug og um margt góð önnur plata.
Gott innlegg
Þegar það fregnaðist árið 1995, að upptökustjórinn
frægi, Butch Vig (Nirvana, Smashing Pumpkins m.a.)
hefði ásamt félögum sínum úr hljóðversbransanum þeim
Steve Marker og Duke Ericson og lítt þekktri skoskri
söngkonu, Shirley Manson, sett saman hljómsveit undir
nafninu Garbage, voru ekki allir vissir um gildi þess til-
tækis. Með útkomu fyrstu samnefndu plötunnar þetta
sama ár, þögnuðu hins vegar efasemdaraddirnar fljót-
lega. Hlaut platan góða dóma gagnrýnenda og tók svo að
rokseljast 1996 og áfram í kjölfar þess ekki síst eftir að
smáskífulagið Stupid girl fór í hæstu hæðir vinsælda-
Iista. Þrotlausar tónleikaferðir víða um heim styrktu svo
sveitina áfram vel í sessi en vart varð hlé á slíku í um tvö
ár eftir útkomu plötunnar. Nokkuð dökkt en kraftmikið
popp einkendi frumburðinn samnefnda, en á arftakan-
um, Vs. 2.0, sem Ieit dagsins Ijós snemma sumars eftir
þónokkra töf (m.a. vegna tónleikahaldsins og þeirrar
staðreyndar að „Garbage'1 hélt áfram að seljast jafnt og
þétt) er tóninn að nokkru léttari. „Laglínulán“ eða
„Sampl“ er nokkuð áberandi og tónlistin almennt há-
tæknilega unnin. Push it hitaði á sínum tfma vel upp
fyrir útkomu plötunnar og f kjölfar þess hefur I think I’m
paranoid náð hylli. Inn í hinn fjölbreytta heim vin-
sældatónlistarinnar nú um stundir þar sem allt gengur,
er blanda Garbage af rokki, poppi og danstilþrifum hið
bærilegasta innlegg þótt varla skrifist það sem neitt
meistaraverk.
Tónleikar á
Broadway
Þeir rokkunnendur sem komnir eru vel yfir þrítugt og
sjálfsagt einhverjir fleiri líka, muna eflaust eftir nafni
Resurrection band, en sveitin var á ferðinni fýrir einum
20 til 25 árum eða um það bil. Hún hefur kannski ekki
verið svo mjög áberandi í seinni tíð en er þó enn starf-
andi og er nú á leiðinni til Islands til tónleikahalds.
Verður um tvenna tónleika að ræða og fara þeir fram á
Broadway, áður Hótel Island, fimmtudagskvöldið 13. og
föstudagskvöldið 14. ágúst nk. Resurrection band er frá
Chicago og spratt upp úr hugmyndafræði hippanna að
hluta til. Kristilegur boðskapur er og hefur verið leiðar-
ljósið og munu þeir sem leggja leið sína á Broadway
sterklega verða varir við það. Það mun vera Fíladelfíu-
söfnuðurinn á Islandi sem stendur fyrir þessum tónleik-
um.
Í^Of^FR^Q^iliR
* Lhooq, þríeykið ís-
lenska, sem gerði það
bara þónokkuð gott
með laginu sínu Loos-
ing hand fyrr í sumar,
er nú komið með nýtt
lag í spilun sem kallast
I don’t want to know.
Hið skaplegasta Iag,
sem kannski er ekki al-
veg eins grípandi við
fyrtu hlustun, en vinn-
ur býsna vel á. Þau
Pétur, Jóhann og Sara
virðast því vera á góðri
leið og verður spenn-
andi að heyra stóru
plötuna er hún kemur
út.
* Stóra platan hennar
Móu, Móeiðar Júníus-
dóttur, er víst væntan-
leg innan tíðar. Er nú
staðfest að nafn henn-
ar verður Universal og
á það að staðfesta þá
meiningu stúlkunnar
að um hana blási al-
þjóðlegir vindar. Hún
sé ekki sérstaklega að
gefa sig út fyrir að vera
söngkona frá Islandi.
* Rokksveitin bandaríska
Toed the wett sprochet
hefur lagt upp laupana
eftir rúmlega áratugs
tilveru og einar sex eða
sjö plötur. Astæðan er
víst einfaldlega sú að
meðlimunum þótti vera
nóg komið og þá skipti
ekki máli að velgengni
hefur verið með í för
fram á síðasta dag.
Seldist til að mynda
síðasta platan sem kom
út á síðasta ári vel og
náði inn á topp 20 í
Bandaríkjunum. Til
glöggvunar má svo geta
þess fyrir þá sem e.t.v.
ekki þekkja, að Toed
var í flokki sveita sem
sótt hafa áhrif til t.d.
REM. Aðrar þekktar
sveitir af svipuðu tagi
eru t.d. Counting
crows, Hootie and the
Blowfish, Gin
Blossoms, Collective
Soul og Seven Mary
three.
* Eftir nýlegum fregnum
að dæma frá Gauta-
borg í Svíaríki, eru
Rolling Stones ekki al-
veg dauðir úr öllum
æðum. Tónleikar þar í
borg í síðustu viku, á
fótboltavellinum Ullevi
heppnuðust víst vel að
sögn þannig að þeir
ættu að geta eitthvað
ef þeir láta á annað
borð sjá sig hérlendis.
Heyrst hefur að það
gæti orðið um miðjan
næsta mánuð, en það
er án ábyrgðar sem því
er kastað fram hér.
* Ribbaldarapparinn
gríðarvinsæli, en jafn-
framt stórvarasami,
Snoop doggy dogg, sem
svo sannarlega hefur
staðið undir nafni, ým-
ist heimsótt tukthús
eða réttarsali í seinni
tíð, er þó ekki alveg af
baki dottinn og er á
leiðinni með nýja
plötu, DA game is to
be sold. Hvort hann
nær hins vegar að við-
halda vinsældum með
henni er svo annað
mál.