Dagur - 08.08.1998, Side 21
RAÐAUGLÝSIN
A T V I N N A
Viljum ráða
ábyggilegan mann
í starf lagerstjóra. Nokkur tölvukunnátta
nauðsynleg.
Upplýsingar í síma 460 3433 eða 460 3434.
Efnaverksmiðjan Sjöfn
Sjúkraþjálfari
Starf sjúkraþjálfara við Heilbrigðisstofnunina á
Hvammstanga er laust til umsóknar frá 1. sept-
ember
nk. eða eftir samkomulagi. Áhugavert starf og
góð iaun í boði fyrir réttan aðila.
Ódýrt húsnæði til staðar.
Umsóknir sendist Guðmundi H. Sigurðssyni
framkvæmdastjóra fyrir 10. ágúst, en hann veitir
einnig nánari upplýsingar í síma 451 2348 eða
451 2393.
Heilbrigðisstofnunin Hvammstanga.
Dvalarheimilið
Ás/Ásbyrgi, Hveragerði
Hjúkrunarfræðingar •
sjúkrallðar
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga og
sjúkraliða
til starfa á nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili sem
tekið
verður í notkun 1. desember 1998.
Getum útvegað húsnæði og leikskólapláss.
Umsóknir berist fyrir 1. september nk. í
Hverahlíð 23b, 810 Hveragerði.
Nánari upplýsingar gefa Gísli Páll Pálsson,
framkvæmdastjóri, í síma 483 4289
til 15. ágúst og
Ragnheiður Guðmundsdóttir, hjúkrunarforstjóri,
í síma 483 4471 eftir 15. ágúst.
Dvalarheimilið Ás/Ásbyrgi.
Varnarliðið
Hjúkrunarfræðingur
Varnarliðið óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing
til starfa við heilsuverndardeild sjúkrahússins
á Keflavíkurflugvelli.
Starfssvið
• Annast heilsuvernd starfsmanna varnarliðsins.
• Aðstoð við læknisskoðanir íslenskra
og bandarískra starfsmanna varnarliðsins.
• Veitir þjálfun og fræðslu.
Hæfniskröfur
• Reynsla og eða menntun á sviði
vinnuverndar æskileg.
• Mjög góð enskukunnátta.
Vinnutími
• 38 stundir á viku, unnið í dagvinnu.
Umsóknir berist til Ráðningardeildar
Varnarmálaskrifstofu,
Brekkustíg 39, 260 Reykjanesbæ. Sími 421 1973.
Símbréf 421 5711. Á sama stað
liggur frammi starfslýsing
sem nauðsynlegt er að umsækjendur kynni sér.
Umsóknarfrestur er til 19. ágúst nk.
^ Kennarar
Vissuð þið að...
- Grundarfjörður er fallegt sveitarfélag á norðanverðu Snaefellsnesi,
í rúmlega 2ja stunda akstursfjarlægð frá Reykjavík.
- Ibúar Grundarfjarðar teljast á tíunda hundraðið og hefur fjölgað
mikið siðustu ár.
- Grundarfjörður er vaxandi byggðarlag og þar er næg atvinna.
- í Grundarfirði starfar Grunnskóli Eyrarsveitar, með um
200 nemendur næsta haust í 12 bekkjardeildum.
- Kennarar í Grunnskólanum eru samheldið og öflugt lið, sem m.a.
undírbjó þróunarverkefni sl. vetur með yfirskrittina „Um námstækni -
lestrarfærni - markvissari vinnubrögð nemenda með öflugu samstarfi
nemenda, foreldra og kennara". Verkefninu verður
hleypt af stokkunum í haust.
- Nemendur tíunda bekkjar voru yfir landsmeðaltali í öllum greinum
samræmdra prófa nú i vor, m.a. með meðaleinkunnina 7,4 í stærðfræði.
- í Grundarfirði starfar öflugur tónlistarskóli sem flutti fyrir skömmu í nýtt og
glæsilegt húsnæði, tengt grunnskólanum og iþróttahúsinu.
-1 Grundarfirði er góður leikskóli með fleiri leikskólakennurum
en finnast víða annars staðar.
- Grundfirðingar eru duglegt og áhugasamt fólk sem er þekkt fyrir að nýta sam-
takamátt sinn í þágu góðra málefna. Meðal þess sem þeir hafa tekið sér fyrir
hendur er að stofna foreldrasamtök um eflingu félagslífs og félagsþroska ungling-
anna á staðnum (átakið Tilvera) sem staðið hefur tyrir öflugu félagsltfi og marg-
víslegum viðburðum sl. tvo vetur og m.a. fengið foreldraverðlaun landssamtak-
anna Heimilis og skóla. Einnig hafa þeir stofnað lúðrasveit og Samtök um tvíefl-
ingu tónlistarskólans, sem m.a. hefur staðið fyrir söfnun, tónleikum og hljóðfæra-
kaupum fyrir skólann fyrir u.þ.b. 1 milljón króna. Foreldrafélög, félagasamtök og
margvíslegir klúbbar og hópar hafa í gegnum tíðina látið til sín taka í uppbygg-
ingu staðarins og lagt lóð á vogarskálarnar til að gera sveitarfélagið okkar að líf-
vænlegri byggð.
- Grunnskóli Eyrarsveitar í Grundartirði óskar eftir að ráða kennara í
almenna bekkjarkennslu, íþróttir, raungreinar, handmennt
(smíði og hannyrðir) á næsta skólaári.
Hringið og kannið málin! Nánari upplýsingar gefa Anna Bergsdóttir
skólastjóri í síma 438 6511 og Björg Ágústsdóttir sveitarstjóri í
síma 438 6630 og 438 6605.
Umsóknir sendist sveitarstjóranum í Grundarfirði,
Grundargötu 30, 350 Grundarfirði.
Sveitarstjórinn í Grundarfirði.
Kennarar,
kennarar,
kennarar
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri óskar
eftir að ráða nú þegar til starfa kennara í
almenna kennslu og íþróttir. Kynnið ykkur málin!
Arndís Harpa skólastjóri,
símar 483 1141 og 483 1538.
Kennarar
Kennara vantar að Grenivíkurskóla næsta skóla-
ár
til að kenna ensku og fleiri greinar.
Skólinn er fámennur, nemendur á næsta vetri
verða um 50 í 1.-10. bekk.
Aðstaða til kennslu er öll hin besta og gott
húsnæði á lágu verði er til reiðu fyrir kennara.
Upplýsingar gefur Björn Ingólfsson
skólastjóri í síma 463 3118 eða 463 3131.
FJÖLBRAUTASKÓLI
VESTURLANDS Á AKRANESI
auglýsir:
Kennara vantar í:
• Hjúkrunarfræði, % staða
• Rafvirkjun fullt starf
• Þýsku, 'A staða
Ráðið verður í störfin frá 1. ágúst 1998 og
kennsla hefst 24. ágúst. Umsóknarfrestur er til
12. ágúst.
Umsóknir skulu sendar Fjölbrautaskóla Vestur-
lands á Akranesi, Vogabraut 5, 300 Akranesi
(ekki er þörf á að nota sérstakt umsóknareyðu-
blað). Heimasíða: http//:rvik.ismennt.is/~fva/
Upplýsingar eru veittar í
símum 431 2544 / 431 2528.
Skólameistari.
G A R
Grunnskólakennarar
Við Grundaskóla vantar ennþá kennara til að
sinna almennri bekkjarkennslu í 1. og 8. bekk (2
stöður). Vakin er athygli á að Akraneskaupstaður
hefur gert sérstakt samkomulag við kennara
bæjarins. Góð vinnuaðstaða er fyrir kennara og
þróttmikið skólastarf. Verið er að vinna að mati á
skólastarfi og fleira skemmtilegt er á döfinni.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í vs. 431
2811, hs. 431 2723 og 899 7327 (Guðbjartur
Hannesson). Umsóknarfrestur framlengdur
til 11. ágúst nk.
Menningar- og skólafulltrúi.
Það rignir ekki
tvö sumur í röð!
Kennara vantar til starfa við Egilsstaðaskóla.
Meðal kennslugreina: Kennsla yngri barna,
kennsla á
unglingastigi og raungreinar. í Egilsstaðaskóla
stunda um 280 nemendur nám undir leiðsögn 30
starfsmanna.
í skólanum ríkir góður starfsandi og metnaður.
Húsnæði til staðar á góðum kjörum.
Nánari upplýsingar veita skólastjóri
í síma 471 1632 og
aðstoðarskólastjóri í sfma 471 1326.
Sláturhús - Selfossi
Sláturfélag Suðurlands óskar eftir að ráða
verkamenn til starfa í sláturhúsi félagsins á
Selfossi, í sláturtíð sem hefst í byrjun september.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
félagsins að Fosshálsi 1, Reykjavík, og í
starfsstöðvum félagsins á Hvolsvelli og Selfossi.
Nánari upplýsingar veitir stöðvarstjóri á
Selfossi í síma 482 1192.
Löglærður fulltrúi
sýslumanns
Laust er starf löglærðs fulltrúa sýslumannsins á
ísafirði. Umsóknir berist undirrituðum, sem
einnig veitir upplýsingar um starfið
eigi síðar en 20.ágúst 1998.
Tveir löglærðir fulltrúar starfa við embættið.
Helztu verkefni þess sem nú er óskað eftir eru
nauðungarsölur, aðfarargerðir og þinglýsingar.
Um er að ræða fullt starf lögfræðings sem heyrir
undir sýslumann. Um kjör fer í samræmi við
kjarasamninga SLÍR og fjármálaráðherra.
Æskilegt er að sá umsækjandi sem ráðinn
verður geti hafið störf sem fyrst.
Öllum umsóknum verður svarað.
ísafirði, 6. ágúst 1998,
sýslumaðurinn á ísafirði,
Ólafur Helgi Kjartansson.