Dagur - 10.04.1999, Page 2
18 - LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999
HELGARPOTTURINN
Stöðug hreyfing er á mannskapnum á Stöð 2
enda stór „stasjón" og mannaflinn fjölmenn-
ur. Á Stöð 2 fer ekkert á milli mála að Vilborg
Davíðsdóttir, rithöfundur og fréttamaður, er
mætt aftur en hún er á „sérsamningi eða
þannig", kemur og fer eins og farfuglarnir. Vil-
borg var á sex mánaða starfslaunum frá 1.
október til 1. apríl og fer aftur á starfslaun í
haust. Hún mun vera að skrifa enn eina heim-
ildaskáldsöguna, sögu í svipuðum dúr og Eld-
fórnin, en þessi gerist bara á 15. öld, ekki
þeirri 14., og efnið tengist lokum byggðar á Grænlandi. Bókin er komin
allvel á veg en kemur þó ekki út fyrr en í fyrsta lagi árið 2000.
Og meira af mannahreyfingum á Stöð 2. Fréttamaðurinn Pétur Pét-
ursson er hættur störfum og kominn yfir til kosningastjóra Ólafs
Ragnars Grímssonar, Gunnars Steins Pálssonar hjá GSP al-
mannatengsl. ( stað Péturs hefur fengið fastráðningu Róbert Mars-
hall. Svo fara að birtast á skjánum sumarmennirnir hver af öðrum og
verður fyrst þeirra Erna Kaaber, ritstjóri Stúdentablaðsins, en hún var
á Stöð 2 í fýrra. Erna kemur til starfa um næstu mánaðamót. Þá mun
Brynhildur Ólafsdóttir vera á förum til Hondúras en ekkert hefur heyrst
frá fréttamanninum Sólveigu Ólafsdóttur Hannibalssonar, sem
hefur að undanförnu unnið fyrir Rauða krossinn á fjölmiðlaskrifstofu í
Genf.
Fréttahaukur Stöðvar 2 á Norðurlandi, Óskar
Þór Halldórsson, er nú að fara af stað með
gerð heimildamyndar um risann mikla, Jó-
hann Svarfdæling. Á næstu dögum hefjast
tökur á viðtölum við þá sem þekktu til Jó-
hanns og í sumar verður tekið efni á æsku-
slóðum Jóhanns í Svarfaðardal og á Dalvík.
Síðar mun leið Óskars og Samversmanna á
Akureyri, en það eru þeir sem framleiða
myndina, liggja til Danmerkur og Bandaríkj-
anna þar sem Jóhann starfaði meðal annars í
fjölleikahúsum. Mikil vinna hefur að undan-
förnu farið í heimildaöflun vegna þessarar myndunar, en það auðveldar
þó alla vinnu að Jóhann hélt saman blaðagreinum sem voru skrifaðar,
bréfum, Ijósmyndum og kvikmyndabútum.
Af foseta íslands, Ólafi Ragnari Gríms-
syni, berast þær góðu fregnir að hann múni
halda uppteknum hætti og fara út um byggð-
ir landsins í sumar og heilsa úpp á fólkið í
landinu. Þannig er kortlagt að forsetinn heim-
sæki byggðir Eyjafjarðar dagana 18. til 20.
maí og eru Eyfirðingar þegar farnir að undir-
búa heimsókn hins góða gests. Þá er einnig
ráðgerð heimsókn í Norður-Múlasýslur, en
hún verður líklega ekki fyrr en að áliðnu sumri
- væntanlega í september.
Fjölmiðlamaðurinn knái á Suðurnesjum, Páll
Ketilsson, ritstjóri Víkurfrétta í Keflavík, fær-
ir nú út kvíarnar en fyrir páska sendi hann frá
sér fýrsta tölublaðið af Víkurfréttum - tímariti
sem er einkonar Séð og heyrt útgáfa af ann-
ars ágætum Víkurfréttum. Lífsreynslusögur af
Reykjanesbraut, útttekt um flottustu húsin og
böana á Suðurnesjum og frásögn kafara sem
fann hjálpartæki ástarlífsins á bólakafi í höfn-
inni í Sandgerði. Alls staðar geta hjálpartækin
komið að notum...
Páll Ketilsson.
Þórhallur tæknifræðingur á Akureyrí er ekki
Guömundur Óli stöðumælavörður á
Hlemmi í Reykjavík og öfugt. Myndirnar á
þeim félögunum víxluðust í Degi í gær þar
sem fólk á förnum vegi var spurt um hug sinn
til mála í Kosovo.
Hér eru réttar
myndir af þeim fé-
lögum og Helgar-
potturinn biðst vel-
virðingar.
Þórhallur,
tæknifræðingur á
Akureyri.
Guðmundur Óli,
stöðumælavörður á
Hlemmi i Reykjavík.
Kanntu meinlaust slúður og skemmtisögur úr félags-
lífinu? Þekkirðu athyglisvert fólk? Sendu okkur fréttir og
ábendingar til birtingar í Helgarpottinum.
Dagur c/o helgarpotturinn, Þverholti 14, 105 Reykja-
vík eða á netfangið: ritstjori@dagur.
Dggjtur
Eldri börn og fullorðnir fá að taka þátt í teiknimyndaspunanum en fyrst sýna þeir Bert, sem starfar sem trúður í Stokkhólmi, og
Esbjörn teiknimyndakennari hvernig maður á að búa til skrípókarla.
Hvernig verður
skrípoKarl til?
Tveir sænskir teiknarar ætla að kenna börnum og fullorðnum að búa til skrípókarla
í teiknimyndasöguspuna í Norræna húsinu á morgun...
Svíarnir tveir sem koma til landsins
til að kenna íslenskum börnum og
fullorðnum að búa til skrípókarla
heita Bert Gradin og Esbjörn
Jors%oter. Sá síðarnefndi er bæði
teiknari og leikskólakennari og
kennir börnum og fullorðnum
teiknimyndagerð í Serieskolen í
Stokkhólmi. „Þeir hafa unnið sam-
an í 10-15 ár,“ segir Árdís Sigurðar-
dóttir, starfsmaður Norræna húss-
ins, „og þeir hafa verið að gera til-
raunir með að ferðast milli skóla og
vera með sýningar þar sem Esbjörn
teiknar og Bert leikur teiknimynda-
sögupersónuna," en Bert hefur
starfað að undanförnu með trúða-
hóp í Stokkhólmi.
Fólk fær að prófa
Svfarnir eru þó ekki eingöngu að
skemmta áhorfendum heldur er
ætlunin að fá eidri börn og full-
orðna tíl að taka þátt í teiknimynda-
söguspunanum. Dálítil fræðsla um
teiknimyndagerð er samofin
spunanum þeirra, þannig tala þeir
um hvað þurfi að gera til að
skrípókarlinn haldi athygli áhorf-
enda, hvort hann megi vera ofur-
glaður, ofurbölsýnn, leiðinlegur eða
skemmtilegur. „Svo fá krakkarnir að
spreyta sig sjálfir, Bert og Esbjörn
eru með ramma þar sem þú átt að
búa til þínar eigin glöðu, leiðu, ást-
fangnu persónur. Síðan fá þeir bæði
börn og fullorðna til að semja með
sér sögu og þau fá að teikna sjálf
eftir einföldum teikniaðferðum -
því maður þarf ekkert að vera sér-
fræðingur í teikningu til að gera
skemmtilegar sögur. Þannig að
þetta er bæði fyrir þá sem geta
teiknað og líka þá sem hafa fjörugt
ímyndunarafl."
Þjóðfélagsádeilu
Bert og Esbjörn eru sjálfir reyndir
teiknarar, teiknuðu um tíma dag-
legar teiknimyndasögur í anda þjóð-
félagsádeilu í hið útbreidda sænska
dagblað Dagens Nyheter, og eiga
einnig teiknimyndaræmur á sýning-
unni „Norrænar myndasögur í dag-
blöðum" sem nú stendur yfir í and-
dyri Norræna hússins og lýkur 25.
apríl. Teikniniyndasöguspuninn
verður kl. 14 og 15 á morgun. Allir
eru velkomnir og aðgangur er
ókeypis. lóa
Maður vikunnar er flóttamaður - einn þessara sex
hundruð þúsunda sem hrakist hafa allslaus frá heim-
kynnum sínum í Kosovo undan morðsveitum Serba.
Mesta flóttamannavandamál í Evrópu frá lokum síðari
heimsstyrjaldarinnar er óhugnanleg staðreynd sem gef-
ur skýra mynd af því hversu lítt manninum miðar fram á
við í þroska, jafnvel á margrómaðri öld framfara og
tækniglingurs.
Flóttamaður kominn frá Kosovo til ís-
lands
i