Dagur - 10.04.1999, Síða 19
LAUGARDAGUR 10. APRÍL 1999 - 35
Hann var enginn
skapofsamaður,
haldinn sjúklegum
afbrýðisórum um
framhjáhald
unnustunnar, með
greindarvísitöluna
76 og greindaraldur 11 ára
drengs, þótt 31 árs gamall
væri. Hafði þó „þroska“ til að
kaupa hníf til að beita á sjálfan
sig og/eða unnustuna - og
æfði sig á bjúga.
Guðjón hét hann, sjómaður af Suður-
nesjum, en aðfluttur í borgina. Unnustan
Sigríður var fimm árum eldri og áttu þau
saman þriggja ára son, en hún átti fyrir
16 ára dóttur. Þetta var árið 1958 og þau
Guðjón og Sigríður hugðu á brúðkaup,
höfðu keypt sér risíbúð við Eskihlíð, sem
hann vann í áföngum við að lagfæra.
Ekki var beint hægt að segja að hann
væri vænlegt mannsefni (ósagt skal látið
um persónu hennar). Hann hafði að vísu
ekki nýverið komist í kast við lögin, en frá
fyrri tíð átti hann að baki þrjá sektardóma
fyrir ölvun og óspektir og einn fyrir ölv-
un. Þegar hér var komið við sögu var síð-
an farið að bera mjög ákveðið á einkenn-
um áfengiseitrunar í hegðun hans; hann
hafði drukkið töluvert um 13 til 14 ára
skeið og var heilabúið ekki beisið fyrir.
Haustið fyrir atburði þessa hafði Guðjón
Ieitað til geðlæknis með kvartanir um ým-
iss konar taugaveiklunarvanlíðan og feng-
ið við þvf viðeigandi lyf. Þau voru löngu
urin þegar hér var komið við sögu og
hafði Guðjón ekki farið að ráðum læknis-
ins um að koma aftur þegar lyfin væru
búin. Ef til vill skipti það sköpum í máli
þessu.
Síðdegis sunnudaginn 2. mars 1958
var lögreglan kölluð til í Eskihlíðarhúsið.
Þegar þangað var komið hitti lögreglan
fyrir 61 árs gamlan föður Sigríðar og 16
ára dóttur hennar í miklu uppnámi. Á
legubekk í einu herbergjanna Iá Sigríður
mjög blóðug undir sæng og var líkið
nærri teinrétt, kalt og stirðnað og hún
klædd nærldæðum einum fata. Hafði
draumaprins;
drykkfelldur
DOMSMAL
Fríðrík Þór
Guðmundsson
skrifar
Skömmu fyrir drykkjuna laugardagskvöldið íhugaði Guðjón að beita hnífnum á sjálfan sig og æfði sig
á bjúganu, en hvarf frá ráðagerðinni, að eigin sögn.
Morðincjinn
með bjugað
hún þá sýnilega verið látin í 16 til 20
klukkustundir. Lfkið var alstirt og lík-
blettir greinilegir. Rétt aftan og neðan við
vinstri holhönd voru tvö djúp stungusár
og vall vessi úr þeim báðum er Iíkið var
hreyft. Þriðja sárið var aftan til og ofar-
lega á vinstri upphandlegg. Blóð hafði
slettst eða lekið á vegg við legubekkinn
og á gólfið. Krufning leiddi í ljós stungu í
lungað og annað í gegnum hryggæðina.
Stríðni félaganna
kynnti undir grunsemdunum
Á borði við hlið legubekkjarins voru glös
og tóm þriggja pela koníaksflaska. I suð-
austurhorni herbergisins fannst hnffur úr
ryðfríu stáli með tréskafti. Blað hans var
20 sm. langt, stinnt, oddmjótt og alblóð-
ugt. Undir Iegubekknum fannst hrátt
stykki af bjúga og var höggvið víða í það,
sýnilega með beittum hníf. Bitar af bjúg-
anu fundust annars staðar í herberginu.
Laugardagskvöldið höfðu Guðjón og
Sigríður ákveðið að fara saman á dans-
Ieik. Þau nutu kvöldsins saman um hríð,
drukku úr flöskunni í rólegheitum og
höfðu samfarir. Skömmu síðar hófust þó
orðahnippingar þegar hann fór að bera
ótryggð upp á hana.
I nokkra mánuði hafði vaxandi grunur
sótt á hann um framhjáhald af hálfu Sig-
ríðar, en ekkert upplýstist um að tilefni
væri til grunsemdanna. Rannsóknin
leiddi öllu heldur í ljós líkindi til þess að
á bak við gruninn hafi legið óheppileg
stríðni félaga Guðjóns. Grunurinn leiddi
Guðjón til þess að kaupa hnífinn
nokkrum dögum fyrir voðaverkið - en að
eigin sögn fremur til að nota á sjálfan sig
en Sigríði. Fannst honum hann ekki geta
lifað, ef hann missti Sigríðar, né geta
unnt neinum öðrum manni að njóta
hennar. Sagði hann að skömmu fyrir
drykkjuna laugardagskvöldið hefði hann
íhugað að beita hnífnum á sjálfan sig og
æft sig á bjúganu, en horfið frá ráðagerð-
inni.
Samkvæmt frásögn Guðjóns sjálfs
rifust þau Sigríður eftir samfarirnar. Sá
hann hnífinn og tók hann sér £ hönd og í
æðiskasti stakk sjálfan sig tveggja senti-
metra sári neðan- og innanvert við hægri
geirvörtu. Vottaðist að hnífnum hlyti að
hafa verið beitt ofan frá og niður eftir.
Viðbrögð hennar voru samkvæmt Guð-
jóni þau að segja: „Eg held að þú hefðir
átt að vera búinn að gera þetta fyrr.“ Þá
hafi hann tryllst og ráðist að henni með
hnífinn. I þann mund sem fyrsta stungan
hitti Sigríði segist Guðjón hafa hrópað á
guð um að hjálpa sér.
Trúðu ekki „óráðshjali
og hugarórum44
Þegar hann kom til sjálfs sfns hagræddi
hann Sigríði, en mundi ekki eftir á hvort
hún hefði verið rænulaus eða máttlaus.
Hann kvaðst hafa orðið yfir sig hræddur
og flúði af vettvangi. Tók leigubíl til for-
eldra sinna á Suðurnesjum. Á leiðinni
skáldaði hann upp einhverri skröksögu
um hvers vegna skyrtan hans væri alblóð-
ug. Á Hreyfli tókst honum að kaupa sér
Ákavítisflösku og á Ieiðinni suður saup
hann óspart af henni.
Þegar heim til foreldranna var komið
brotnaði hann niður og sagði í mikilli
geðshræringu frá því að Sigríður hefði
stungið sig og hann þá ráðið henni bana.
Viðbrögðin voru þau að líta á frásögnina
sem óráðshjal og hugaróra og var honum
ráðlagt að leggja sig. Hann fór hins vegar
út með þeim orðum að hann ætlaði að
farga sér. Einurðin var þó ekki meiri en
svo, að skyldmennin komu honum á
sjúkrahús, þar sem hann svaf úr sér. Dag-
inn eftir tók hann leigubíl til Reykjavíkur
og ætlaði að gefa sig fram, en brást til
þess kjark og fór suðureftir aftur og
dvaldist hjá bróður sínum þar til loks um
kvöldið að lögreglan hafði upp á honum.
Þegar Guðjón var handtelunn bar hann
í fyrstu ævintýrasögu um að tveir grfmu-
ldæddir menn hefðu verið að verki. Síðar
viðurkenndi hann árásina, en sagði að
Sigríður hefði stungið sig í brjóstið.
Smám saman kom sagan öll í ljós og
bæði héraðsdómur og Hæstiréttur voru
sammála; Guðjón hlaut 16 ára fangelsis-
dóm.
Grásteinn. Deilur hafa staðið yfir um
þann stein sem hér sést og sýnist sitt
hverjum hvort i honum búi huldar
vættir. Hvar er þessi steinn og um
hvað er deilt í sambandi við hann?
Fjallið. Hvert er fjallið sem hér sést,
sem er í raun einkennistákn blómlegs
héraðs og hvaó heitir fjallvegurinn
sem er sunnan undir þvi og milli
hvaða sýslna er hann?
Frænka Davíðs. Ragnheiður Stefáns-
dóttir gætir safns Davíðs Stefánssonar
á Akureyri. Hvað hét skáldsaga sú
sem Davíð sendi frá sér 1940 og hver
hefur gert lag við Ijóð hans, Kvæðið
uni fuglana?
í Skálholti. í Skálholti er ein af þrem-
ur dómkirkjum landsins. Hverjar eru
hinar tvær og hvað þarf kirkja að vera
til þess að hún sé dómkirkja?
Skipið. í Byggðasafninu í Görðum á
Akranesi er þetta skip. Um sambæri-
legt skip hefur verið sungið lag þar
sem kátir karlar eru í öndvegi. Hvað
heitir skipið sem hér sést ?
LAND OG
ÞJOD
Sigurður Bogi
Sævarsson
skrifar
1. Hvar var Jón Arason biskup handtek-
inn ásamt tveimur sonum sínum árið
1550 - og þeir svo þaðan fluttir í Skál-
holt þar sem þeir voru hálshöggnir 7.
nóvember sama ár?
2. Fræg er kvíahellan í Húsafelli í Borg-
arfirði. En fyrir hverra hluta sakir er hún
svo fræg?
3. Jóhannes Bjarni Jónsson hét maður-
inn sem hér er spurt um. Hann var
fæddur árið 1899 og lést 1972. Hver er
þessi maður, betur þekktur undir öðru
listamannsnafni?
4. Hvar í Reykjavík er stytta af lista-
skáldinu góða, Jónasi Hallgrímssyni?
5. Hver er kirkjustaðurinn í Öræfasveit?
6. Hvar nam land Ketill Þorkelsson
hængur, sem segir frá í Landnámabók?
7. Hvar er það sem kallað er Hampiðju-
torgið?
8. Hver skrifaði þá frægu smásögu
Sunnudagskvöld til mánudagsmorg-
uns?
9. Hvar og hvenær var síðasti geirfugl
heimsins drepinn hér við land?
10. Hver var fyrsti bílinn sem kom til
iandsins og hvaða ár var það?
•jBujcjiv bjj >|>}9j bss9c| ||i ui9s ‘|nsuo>| 6o |uuBUjdne>| ussuioijx Aapia jb V061 PM? su|spuB| ||j jnjinu jba
uubjj [061 pJoBjp ‘llopnQ juuipjaB jb jba uias JpujauoAS uuniqsuasuioiji jba Bjjaq oi yys l >un( 'g uubc( Áapg | 6 j|jjppjBpjn6|s Bjsy '8 uunpjo[jjsa/\ jb jn jdnfp ipæAsippA ja p|6jojn[p|duiBH t sjo[|jjb>|jb|/\| Bo jbsjo[c| ||||ui puo| ||o uusq uibu
6o uin||OAJB6uBy b ijoh-bjojs py '9 1788! nuup bjj ja ||j mjojs pB uias Bþpiqjjoj ja uias jBþ ‘joh ‘S 'uinu|QJB6Bje>jsujp[|H | 17 uin|jp>|'jn sauueqpr '£ JEp|B 81 ejn|n UBpis b niajBspH J Jbs uusq ua ‘jj|S ijb ‘uossujofg ujous ‘jnjsajd UJofuÁq bs
IpuAaj |uun||aqeiA>| y 'Z uin|oa j majBpnes y ‘t BUB|6nj uin pipæA>| p|A 6b| jnjaq jja6 uias uossujaAS J|ui|aH ||JV J8 pecj 60 snpue|S| uo|OS Ja uin jjnds ja jaq uias ue6esp|e>is, jJBjjnBis J8Jin» , n|s/ise|ea Bo -bjA|/\| ubuibs j|6uai uias n»>|ajq
-njjojg j|jA uuun6aÁ ja ‘s||b[j B|>|jUjnuio>|||j ssacj 'n|neg j|pun ueuuns , 'nuipuBi 1 ednqsiq Jn[>|J!>| nja jnfjjjiquiop ua ‘>jjAe[>|Aay j 60 jepej|e[H J uin|0H pe ma jeujnf>jj!>iujpp jbuih , jnjjnu uumujais jpjaA ujs eujaq B6a|UBs6nq ipunui ujas ‘>goj
-npinq 60 jbjib mq uinumiajs j yoAq jacJ j ujoq uuipunj ja |»>|a uepaui j|puiæA>|uiBjj paui p|A pB»op JB6aASU|q BjBq uuauuEpja6e6aA ua je6aAspuB|jnjsa/\ sÆu ipæjs juáj bjba uumjajs j|»Áq xiABfqXag p|A ubjo si|oqjejBJ3 ipue| j ja uujajSBjg ,