Dagur - 10.04.1999, Qupperneq 21
HiSÉiIlllli
RAÐAUGLYSINGAR
mm
WMmmmmm
Sölumaður óskast
Kjötiðnaöarstöð KEA óskar eftir að ráða
sölumann til sölustarfa með mötuneyti, veit-
ingahús og stóreldhús sem sérsvið. Æski-
legt er að viðkomandi sé menntaður mat-
reiðslu- eða kjötiðnaðarmaður eða hafi
reynslu af sambærilegum störfum. Óskað er
eftir duglegum, jákvæðum og reglusömum
einstaklingi til framtíðarstarfa.
Upplýsingar gefur sölustjóri eða
framkvæmdastjóri í síma 460 3443 eða á
staðnum.
Hjá kjötiðnaðarsviði KEA starfa um 90 manns. Um er að
ræða eina af stærstu kjötvinnslum landins ásamt stórgripa-
og sauðfjársláturhúsi.
Formax er framsækið fyrirtæki í framleiðslu á búnaði
til matvælaframleiðslu. Hjá fyrirtækinu eru þróuð
tæki og framleiðslulínur fyrir matvælaframleiðendur
innanlands og erlendis.
Fyrirtækið er staðsett í miðbæ Reykjavíkur og starfa
þar um 25 starfsmenn.
Vélahönnun
Leitað er eftir starfsmanni á tæknideild. Á tæknideild
Formax starfa þrír tæknimenn. Deildin er búin besta fá-
anlega tölvubúnaði til hönnunnar og annarra verkefna
sem hún annast, s.s. AutoCAD og Mechanical
Desktop.
f boði er fjölbreytt starf við hönnun á ýmsum vélbúnaði
og gerð framleiðslugagna fyrir framleiðsludeild. Einnig
að hafa umsjón með framvindu verka og samskipti við
viðskiptavini. Taka þátt í tilboðsgerð, sölu og markaðs-
starfi.
Æskilegir hæfileikar:
Verkfræði/tæknifræðimenntun eða sambærilegt á véla-
sviði.
Öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
Gott vald á notkun AutoCAD.
Reynsla í notkun ritvinnslu, töflureiknis og almennri
tölvunotkun.
Reynsla tengd fiskvinnslu, eða framleiðslu búnaðar fyr-
ir fiskvinnslu, er kostur.
Vélasmíði
Leitað er eftir starfsmanni á framleiðsludeild. Deildin er
vel búin tækjum til framleiðslu á vélbúnaði úr ryðfríu
stáli.
Um er að ræða sérlega snyrtilegan vinnustað.
í boði er fjölbreytt starf við smíði á ýmsum vélbúnaði til
matvælaframleiðslu, samsetningu og frágang.
Einnig uppsetning á búnaði.
Æskilegir hæfileikar:
Stálsmíða/vólvirkjamenntun eða sambærilegt.
Öguð og sjálfstæð vinnubrögð.
Gott vald á suðu og meðhöndlun á ryðfríu stáli.
Umsóknum skal skilað fyrir 16. apríl nk.
Trúnaði heitið.
Umsækjendur geta fengið nánari upplýsingar hjá
tæknistjóra og framkvæmdastjóra.
Formax hf. - Faxagötu 2-101 Reykjavík.
Sími 562 6800 - fax 562 6808.
Netfang: formax@itn.is.
Frá grunnskólum
Hafnarflarðar
- Innritun -
Innritun nýrra nemenda
Innritun nýrra nemenda í grunnskóla Hafnarfjarðar fyrir
næsta skólaár fer fram á skrifstofum skólanna dagana
12.-16. apríl nk.
Innrita skal:
- Börn sem eiga að hefja nám í 1. bekk (fædd 1993)
- Nemendur, sem vegna aðsetursskipta, koma til með
að eiga skólasókn í Hafnarfirði haustið 1999.
Flutningur milli skóla
Eigi nemendur að flytjast á milli skóla innan Hafnarfjarð-
ar ber að tilkynna það viðkomandi skólum fyrir 16. apríl
nk.
Athugið að mjög áríðandi er að allar nýskráningar
ásamt tilkynningum og óskum um flutning milli skóla
þurfa að berast fyrir ofangreind tímamörk þar sem
undirbúningur næsta skólaárs er hafinn.
Nánari upplýsingar fást á Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar í
síma 555 2340.
Vorskóli
Boðið verður upp á vorskóla fyrir börn fædd 1993 í öll-
um grunnskólum Hafnarfjarðar dagana 26.-28. maí og
fer innritun fram í viðkomandi skólum miðvikudaginn 26.
maíkl. 13:00. (Geymið auglýsinguna.)
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði
YMISLEGT
DÓMS- OG
KIRKJUMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Auglýsing frá yfirkjörstjórn
Reykjavíkurkjördæmis um
móttöku framboðslista og
fleira
Framboðsfrestur til alþingiskosninga 8. maí 1999
rennur út föstudaginn 23. apríl nk. kl. 12 á hádegi.
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis tekur á móti fram-
boðslistum þann dag kl. 10-12 í fundarsal borgarráðs í
Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11.
Á framboðslista skulu vera að lágmarki 19 nöfn fram-
bjóðenda en þó ekki fleiri en 38. Framboðslista skal
fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru
að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Þá skal
hverjum framboðslista fylgja skrifleg yfirlýsing um
stuðning við listann frá kjósendum í Reykjavíkurkjör-
dæmi. Fjöldi meðmælenda skal vera 380 hið fæsta en
570 hið flesta. Enginn kjósandi getur mælt með fleiri
en einum framboðslista. Komi það fyrir strikast nafn
kjósandans út í báðum (öllum) tilvikum. Loks skal fylgja
framboðslista skrifleg tilkynning frá frambjóðendum
listans um hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans.
Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega
fullt nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu og
heimili, til þess að enginn vafi geti leikið á því, hverjir í
kjöri eru. Við nöfn meðmælenda skal greina kennitölu
og heimili.
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis mun koma saman
til fundar á sama stað mánudaginn 26. apríl 1999 kl.
17 til að ganga frá framboðslistunum, sbr. 38. gr. laga
nr. 80/1987 um kosningar til Alþingis.
Meðan kosning fer fram laugardaginn 8. maí 1999
verður aðsetur yfirkjörstjórnar í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Talning atkvæða að kjörfundi loknum mun fara fram í
Hagaskóla, Fornhaga 1, Reykjavík.
Reykjavík, 6. apríl 1999
Yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis
Jón Steinar Gunnlaugsson
Ástráður Haraldsson
Gautur Gunnarsson
Hjörleifur B. Kvaran
Sigurbjörg Ásgeirsdóttir
SAMKEPPNI
AKUREYRARBÆR
SAMKEPPNI
um útilistaverk á Akureyri tengt
1000 árum frá kristnitöku á íslandi
og landafundum í Norður-Ameríku.
Akureyrarbær auglýsir eftir myndlistarmönnum til
þess að taka þátt í samkeppni um gerð útilistaverks á
Akureyri. Samkeppnin er í tengslum við að 1000 ár
eru frá kristnitöku á (slandi og landafundum í Norður-
Ameríku. Verkinu er ætlaður staður í miðbæ eða ná-
grenni við miðbæ Akureyrar. Gert er ráð fyrir að verk-
ið taki mið af upphafi nýrrar aldar og nýs árþúsunds
og hugsanlega með skírskotun til sögu og sérkenna
héraðsins.
Samkeppnin verður tvískipt. Fyrri hluti hennar verður
almenn hugmyndasamkeppni. Seinni hlutinn verður
lokuð verksamkeppni milli þeirra sem dómnefnd velur
til þátttöku úr almennu hugmyndasamkeppninni.
Valdar verða allt að 5 tillögur í lokuðu samkeppnina.
Þóknun til hvers þeirra sem valinn verður í framhalds-
samkeppnina verður kr. 150.000. Þegar úrslit liggja
fyrir í lokuðu samkeppninni verða tillögurnar almenn-
ingi til sýnis. Samkeppnin verður haldin samkvæmt
samkeppnisreglum SÍM.
Dómnefnd skipuð fulltrúum Akureyrarbæjar og Sam-
bands íslenskra myndlistarmanna sér um framkvæmd
samkeppninnar. Tilgangur samkeppninnar er að fá
fram tillögur sem til þess eru fallnar að útfæra í fullri
stærð. Að lokinni samkeppni verður tekin ákvörðun
um hvaða verk verður valið til uppsetningar ef um
semst við listamanninn.
Hugmyndum skal skilað inn á tveim A4 blöðum, þar
sem verkið er sýnt frá tveimur hliðum. Einnig fylgi
með stutt greinargerð um hugmyndina að baki verk-
inu, efnisval og uppbyggingu, á A4 blaði. Hugmynd-
um skal skilað inn undir dulnefni og skulu A4 blöðin
merkt með dulnefninu í hægra horni að neðan.
Ógegnsætt umslag, merkt sama dulnefni, fylgi með,
en í því sé nafn, kennitala og heimilisfang höfundar
eða höfunda. Öllum er heimilt að senda inn tillögur.
Nánari upplýsingar gefur trúnaðarmaður dómnefndar,
Ólafur Jónsson, símar 898 9383 og 565 0120, fax
555 0346, á milli kl. 17 og 19 alla virka daga. Tillögur
þurfa að berast móttakanda fyrir 14. maí 1999. Til-
lögur sendist til: Akureyrarbær, skrifstofa menn-
ingarmála, Glerárgötu 26, 600 Akureyri.
Tillögur skulu merktar:
„ALDAMÓTASAMKEPPN1“, útilistaverk
á Akureyri.
NÁM
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Auglýsing um
sveinspróf
Innritun stendur nú yfir í sveinspróf í löggiltum iðn-
greinum sem fara fram í júní nk. Umsóknarfrestur er
til 7. maí. Ekki er tekið við umsóknum er berast eftir
þann tíma. Sótt er um á eyðublöðum sem liggja
frammi í menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4,
150 Reykjavík, sími 560 9500. Einnig er hægt að
nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu ráðuneytis-
ins, www.mrn.stjr.is.
Með umsókn skal fylgja afrit af námssamningi og
brautskráningarskírteini iðnmenntaskóla.
Menntamálaráðuneytið, 7. apríl 1999.
www.mrn.stjr.is