Dagur - 11.11.2000, Síða 18
78- LAUGARDAGUR 7 7. NÓVEMBER 2000
DMjjur
llrJrj j LAjJDJjJU j
Laurencs Olivier
sagðist haía lært
mest um ieikiist af
þv; að horfa á
Spencer Tracy því
það væri svo mik-
ill sannleikur í öllu
sem hann gerði. Tracy lék í 73
kvikmyndum á löngum ferli og
er án vafa einn besti kvik-
myndaleikari sem heimurinn
hefur átt.
I æsku var Spencer Tracy vandræðabarn
sem var sífellt að Ienda í slagsmálum. I
tilraun til að gera foreldrum sínum til
geðs varð hann skáti og kórdrengur en
hann gat ekki hamið villt eðli sitt. Hann
var rekinn úr fimmtán skólum og sagði
sjálfur að hann hefði ekki mætt í skóla ef
til hefði verið einhver önnur leið til að
Iæra textana við þöglu myndirnar. Hann
kom foreldrum sínum á óvart með að til-
kynna að hann ætlaði að verða prestur en
gekk í staðinn í herinn á árum fyrri
heimsstyrjaldar. Eftir heimkomu sann-
færði vinur Tracys hann um að leikara-
starfið væri þægileg og góð gróðaleið.
Tracy fékk hlutverk á Broadway og ein
mótleikkona hans var Louise Tradwell.
Þau giftust árið 1923 og eignuðust fljót-
lega son sem þau kölluðu John. John var
tíu mánaða gamall þegar móðir hans
uppgötvaði að hann var heyrnarlaus.
Tracy neitaði í bvrjun að trúa þvf að
greiningin væri rétt. Þegar hann viður-
kenndi heyrnarleysið kenndi hann sjálf-
um sér um og fylltist sektarkennd sem
fylgdi honum alla ævi.
Eiginkona Tracys stofnaði skóla fýrir
heyrnarlausa og vann í áratugi að málefn-
um þeirra og hlaut ýmsar viðurkenningar
fyrir brautryðjendastörf í þágu heyrnar-
lausra. Hjónin eignuðust annað harn,
dótturina Susie. A fullorðinsárum lýsti
hún föður sínum sem örlátum, skemmti-
legum og gamansömum en einnig sem
mjög flóknum manni og ákaflega við-
kvæmum.
Tracy vakti mikla athygli fyrir lcik sinn
á Broadway og komst á Hollywoodsamn-
ing. Hann hafði ekki dvalið lengi í borg-
inni þegar hann var orðinn alræmdur fý’r-
ir drykkjutúra sína og slagsmálin og
kvennafarið sem þeim fylgdi. Tracy vissi
hvernig hegðun hans brevttist undir
áhrifum áfengis og það hræddi hann.
Drykkjuvenjur hans voru þær sömu alla
ævi. Hann hvarf dögum saman og hafðist
við á hótelum þar sem hann drakk sig til
meðvitundarleysis. Síðan sneri hann aft-
ur heim og til vinnu, fullur sektarkennd-
ar, og drakk ekki mánuðum saman.
Samstarfið við Hepburn
Árið 1933 lék Tracy á móti Lorettu Young
í kvikmynd og þau urðu ástfangin. Tracy
flutti að heiman í ár og var stöðugt í fylgd
Lorettu en hún hafnaði bónorði hans af
trúarástæðum en hún var kaþólsk. Hún
sagði seinna og ákvörðun þeirra um að
giftast ekki hefði verið lexía í sjálfsafneit-
un. Tracy flutti aftur til konu sínar eftir
að ástarævintýrinu lauk. Hann átti síðan í
ástarsambandi við nokkrar Ieikkonur,
Myrnu Loy, Judy Garland, Joan Crawford
og Ingrid Bergman.
Tracy varð fljótlega einn virtasti kvik-
myndaleikari heims og liélt þeirri stöðu
sinni fram í andlátið. Hann hlaut tvenn
Oskarsverðlaun á ferlinum og var níu
sinnum tilnefndur til þeirra. Það er nær
samdóma álit þeirra sem gleggst þekkja
til leiklistar að hann hafi verið afburða-
kvikmyndaleikari. Þegar Tracy var spurð-
Spencer Tracy. Hann var afburðaleikari sem barðist við drykkjusýki.
Spencer Tracy og Katharine Hepburn áttu í ástar-
sambandi i 25 ár en þar sem hann var kaþólskur
skiidi hann aldrei við konu sína.
ur að því hver væri lykillinn að góðum
Ieik svaraði hann með hinum IJeygu orð-
um: „Að læra hlutverkið sitt og rekast
ekki í húsgögnin." Reyndar var hann
maður sem lá yfir handritum dögum sam-
an til að skilja gjörðir persónunnar sem
hann átti að leika og niðurstaðan var yfir-
leitt áreynslulaus leikur sem vakti aðdá-
un.
Hann var rúmlega fertugur þegar hann
lék á móti Katharine Hephurn í myndinni
Woman of the Year. Þegar þau voru kynnt
í fyrsta sinn baðst Hepburn afsökunar á
því að gnæfa yfir Tracy á háhæluðum
Tracy ásamt eiginkonu sinni Louise og
dóttur þeirra Susie við upptökur á kvik-
myndinni I Take This Woman árið 1939.
skóm. Leikstjórinn sem kynnti þau sagði
við Hepburn: „Hafðu ekki áhyggjur,
Spence kemur þér niður í sína stærð.“
Þau urðu nær samstundis ástfangin.
Bæði höfðu átt í fjölmörgum miðsheppn-
uðum ástarsamböndum en höfðu nú
fundið sálufélaga. Hepburn sagði seinna
að sér hefði við fyrsta fund þótt hann
ómótstæðilegur og lýsti árum þeirra sam-
an sem fullkominni hamingju. Hún sagði
að drykkja hans hefði aldrei verið vanda-
mál á milli þeirra. „Drykkja er vandamál
þess sem í hlut á og hann er sá eini sem
getur eitthvað gert við henni,“ sagði hún.
Hún vissi ekki þegar hún kynntist honum
að lifur hans og nýru voru þegar mjög
sködduð af áralangri áfengisneyslu.
Drykkja og veikindi
Tracy þótti fyndinn, töfrandi og afar
skemmtilegur sögumaður en hann var
ákaflega viðkvæmur maður sem byggði
um sig múr. Hann sýndi oft ótrúlegan
viljastyrk þegar kom að því að hætta að
drekka og gat hætt meðan hann átti fulla
viskíflösku á arinhillunni og bindindi
hans gat staðið í tvö til þrjú ár í einu.
Hins vegar varð hann ofbeldisfullur með
víni og henti þá stólum og velti um borð-
um. Þegar hann hóf drykkjutúr lét hann
sig hverfa og Hepburn leitaði hans á hót-
elum, tók hann heim með sér og lét hann
jafna sig þar. Stundum vildi hann ekki
fara með henni og sagði henni að fara
burt. Þá settist hún niður fyrir framan
dyrnar á hótelherbergi hans, lagði við
hlustir og þegar hún var viss um að hann
væri sofnaður fékk hún lykil í gestamót-
tökunni, fór inn og þvoði honum og bjó
um liann og læddist síðan út aftur
„Hann var þarna. Eg var hans. Eg vildi
að hann væri hamingjusamur, öruggur og
að honum liði vel,“ sagði hún. Allar
ákvarðanir sem hún tók um kvikmynda-
hlutverk eftir kynni þeirra voru teknar
með tilliti til þess að hún þyrfti ekki að
vera fjarri honum í langan tíma. „Fólk er
hneykslað á því að ég fórnaði svo miklu
vegna karlmanns,1' sagði hún fyrir
nokkrum árum, „en þið verðið að skilja
að það gaf mér ánægju að gera hann
hamingjusaman og sefa þjáningar hans.“
Þau léku saman í níu kvikmyndum.
Tracy skildi aldrei við eiginkonu sína en
bjó með Hepburn. Sambúðin hafði ró-
andi áhrif á hann og mjög dró úr drykkju
hans þótt hann læknaðist ekki varanlega
af áfengissýkinni.
Sextugur var hann orðinn fársjúkur
maður og Hepburn tók sér hlé frá kvik-
myndaleik til að annast hann. Þegar þau
léku saman í síðustu mynd sinni Guess
Who’s Coming to Dinner var óttast að
Tracy myndi dcyja áður en upptökum
Iyki. Tveimur vikum eftir gerð myndar-
innar lést hann. Hepburn kom að honum
þar sem hann lá á eldhúsgólfinu, hann
hafði verið að fá sér te og hnigið niður
látinn.
Hepburn var ekki viðstödd jarðarförina
af tillitssemi við fjölskyldu hans. Hún tók
dauða hans afar nærri sér, hún vissi að
hann hefði verið alvarlega veikur en hafði
ekki búið sig undir að missa hann.
Þau höfðu verið saman í 25 ár og
hann hafði verið giftur Louise í 44
ár.
A efri árum skrifaði Hepburn end-
urminningar sínar og veitti viðtöl
þar sem hún ræddi um ást sína á
Tracy. I dag er hún 93 ára gömul.
Nýlega sagði hún: „Satt að segja
hlakka ég fremur til að deyja. Og ef
það er líf eftir dauðann þá bíð ég
bara eftir að sameinast Spencer.“