Dagur - Tíminn Akureyri - 23.08.1997, Blaðsíða 23
JBagur-'®mtmrt
Laugardagur 23. ágúst 1997 - 35
KROSSGATAN
Dreifing
útvarpsefnis
Útvarpsréttamefnd vekur hér með athygli á að í 1. mgr.
1. gr. útvarpslaga nr. 68/1985 með áorðnum breyting-
um er útvarp skilgreint á eftirfarandi hátt: „Með útvarpi,
hljóðvarpi eða sjónvarpi, er í lögum þessum átt við
hvers konar útsendingu dagskrárefnis innan íslenskrar
lögsögu sem ætluð er almenningi til beinnar móttöku
og dreift er með rafsegulöldum hvort heldur er í tali,
tónum eða myndum, um þráð eða þráðlaust hvort held-
ur sem útsendingin er læst eða ólæst."
Samkvæmt útvarpslögum ber hverjum þeim sem,
hyggst dreifa útvarpsefni, hvort sem um er að ræða
eigin dagskrár eða dreifingu erlendrar dagskrár, að
sækja um leyfi til Útvarpsréttarnefndar sbr. ákvæði 2.
mgr. 2. gr. útvarpslaga nr. 68/1985 með áorðnum
breytingum. Ekki skiptir máli hvort um er að ræða dreif-
ingu efnis um þráð eða þráðlaust. í þeim tilfellum sem
erlend dagskrá er send út viðstöðulaust óstytt og
óbreytt þurfa að liggja fyrir samningar við erlendar upp-
hafsstöðvar varðandi dreifingu efnis hér á landi áður en
útvarpsleyfi er gefið út.
Öðrum aðilum en þeim sem veitt hefur verið leyfi Út-
varpsnefndar til útvarpsreksturs er óheimilt að dreifa
útvarpsefni hvort heldur er um þráð eða þráðlaust.
Umsóknir um endurvarps- og útvarpsleyfi skal senda:
Útvarpsréttarnefnd, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
Útvarpsréttarnefnd,
20. ágúst 1997.
í krossgátunni er gerður skýr greinarmunur á grönnum og breiðum sér-
hljóðum. Lausnarorð gátunnar á að skrifa á lausnarseðilinn og senda hann
til Dags-Tímans, Strandgötu 31, 600 Akureyri, merktan: Helgarkrossgáta
no. 50. Einnig er hægt að faxa lausnina í númer 460-6161.
Verðlaun fyrir krossgátuna að þessu sinni er bókin Jane Fonda. Saga um
einstæða kvikmyndastjörnu. Útgefandi er Iðunn.
Lausnarorðið fyrir krossgátu 47 Svefnpoki.Vinningshafinn er Sveinn
Rúnar Sigmundsson, Vatnsenda, Eyjaíjarðarsveit. Hann fær bókina í viðj-
um vímu og vændis. Lífreynslusaga Matthildar Campbell, sem lifði í undir-
heimum Chicagoborgar. Lausnarorð gátu 48 verður tilkynnt, sem og vinn-
ingshafi, um leið og krossgáta númer 51 birtist.
|Dagur-®tmtrm Krossgáta nr. 50
Lausnarorðið er
Nafn
Heimilisfang
Póstnúmer og staður