Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1981, Page 1
Ritstjómarskrifstofurblaösins eru að Síðumúla 12-14. Símar86611 og27022. Móttaka smáauglýsinga
Þverholti 11, sími27022. Móttaka stærri auglýsinga í Síðumúla 8, sími86611
Deilumar um dagheimilið á Seltjarnamesi:
FORELDRAR VIUA FÁ
AD STJÓRNA HBMIUNU
Stjórn foreldrasamtaka á Seltjarn-
arnesi gekk í gær á fund Sigurgeirs
Sigurðssonar bæjarstjóra vegna
deilna þeirra er upp komu á barna-
heimilinu á Nesinu. Samkvæmt upp-
lýsingum blaðsins lagði stjórnin fram
ákveðnar hugmyndir, sem fela í sér
að foreldrar ráði meiru um stjórn
dagheimilisins en verið hefur.
Deilurnar á barnaheimilinu hafa
valdið þvi að forstöðukona og fóstr-
urnar hafa sagt upp og hyggjast
hætta störfum um jól og áramót.
Ekki er eingöngu deilt um reglugerð
menntamálaráðuneytisins varðandi
fjölda barna á dagheimilinu. Munu
samskipti fóstra og meiri hluta bæj-
arstjórnar hafa verið erfið, og hefur
þótt gæta litils skilnings meðal bæj-
arstjórnarmanna á störfum fóstra.
Þá hefur bæjarstjórinn haft innrit-
anir á dagheimilið i sinum höndum
og hefur það fyrirkomulag vakið
mikla óánægju.
Sem fyrr sagði lagði stjórn for-
eldrasamtakanna fram tiltekin atriði í
viðræðum sínum við bæjarstjórann i
gær. í morgun var svo fyrirhugað að
ræða við fóstrurnar og athuga hvort
þær gætu sætt sig við ofangreindar
hugmyndir um fyrirkomulag stjórn
at dagheimilisins. Samkvæmt F.cint-
ildum blaðsins átti aö freista þess að
l'á þat til að draga uppsagnit sinar til
baka, en ekki var ljóst livort sam-
komttlag næðist þegar blaðið l'ór í
prentun í morgun.
-,ISS.
fijálst, óháð dagblað
263. TBL. — 71. OG 7. ÁRG. — FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1981.
Hvaðerá
seyðium
helgina?
— stóra helgardag-
bókinsjábls.17-24
Stefnirað
útrýmingu
loðnunnar
— sjá lesendabréf in
bls.6-7
TopplO
— sjá poppsíðu
bls.28
Frjálst
ogóháð
— sjáleiðara
Jólin nálgast
— sjá neytendasíður
bls. 26-27
Tvöerlend
fyrirtækiinn
íStálfélagiö
—sjá bls. 10
Myndlist-
tónlist-hæk
ur-plötur
-sjábls. 8-9-36
Svartimfði
— sjábls.4
Sameining síðdegisblaðanna var helzta umrœðuefhi manna á
meðal í gœrdag. Margir áttu erfitt með að átta sig á þessum óvæntu
tíðindum og segja má að nýja blaðið „Dagblaðið & Vísir” hafi
komið eins og þruma úr heiðskíru lofti. Allir áskrifendur Vísis og
Dagblaðsins fengu blaðið sent í gœr og það var rifið út á
sölustöðum. Upplagið var 44 þúsund eintök og var nýja blaðið því
stœrst dagblaðanna í gœr. Eins og sjá má á myndinni voru annir hjá
Óla blaðasala, og ekki sjáum við betur en Sjöfn Sigurbjörnsdóttir
virði blaðið fyrir sér með athygli.
(LjósmJ Bjarnleifur)
NjósnamálíÓsló:
SENDIRÁÐSMAÐUR RÉÐ NORÐMENN FYRIR KGB
Norska lögreglan mun hafa farið
þess á leit við stjórnvöld í Noregi, að
fyrsta ritara sovéska sendiráðsins í
Osló verði vísað úr landi, og einnig
starfsmanni úr verslunardeild
sendiráðsins.
Fyrsti sendiráðsritari er einmitt sá
sami Stanislav Tsjebotok, sem áður
starfaði í sendiráði Sovétríkjanna í
Kaupmannahöfn og átti þá fundi
með Arne Herlöv Petersen, friðar-
sinna og rithöfundi. — Eins og fram
kom í fréttum fyrr, varð uppvíst, að
Tsjebotok hafði haft milligöngu um
að útvega danskri friðarhreyfingu fé
til starfseminnar, og í samráði við
Petersen voru valdir sovéthollir
Danir til forystu í samtökunum.
í þann mund sem danska lög-
reglan ætlaði að mælast til þess að
Tsjebotok yrði vísað úr landi fyrir at-
hafnasenti sína, kölluðu Sovétmenn
hann heim, en síðan var hann
stassjóneraður í Osló.
Norska blaðið Verdens Gang
greinir frá þvi í morgun, að
Tsjebotok hafi orðið uppvis að þvi að
ráða á mála fimm Norðmenn til þess
að skrifa lesendabréf í norsk blöð og
tala máli einhliða yfirlýsingar unt
kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd. —
Norðmenn liafa lýst stuðningi við þá
hugmynd.
Blaðið segir ennfremur, að
Tsjebotok hal'i verið nær daglegur
gestur í norska þinginu og ol't sést i
samtölum við norska þingmenn.
-JEG/Ósló.