Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1981, Qupperneq 17
16
©TOYOTA
SALURINN
SÍMI44144
Toyota Corolla hardtop árg. ’77,
ekinn 70.000, grár-sans. Verd
60.000.-
Toyota Carina DL árg. ’79, ekinn:
23.000 blár. Verð: 90.000.-
Toyota Cressida station sjálfsk.
’78, ekinn: 28.()00 grænn-sans.
Verð: 96.000.- (Útvarp/segulband,
Cover á sætum).
Toyota Cressida station sjálfsk.
’78, ekinn: 77.000, bUr. Verð:
90.000.-
Toyota Corolla ke-30 ’78, ekinn:
40.000 brúnn-sans. Verð: 68.000,-
Toyota Cressida 4-dyra beinsk.
árg. ’78, ekinn: 57.000 blár-sans.
Verð: 88.000.-
Toyota Carina DL 4-dyra árg. ’80,
, ekinn: 27.000 vinrauður. Verð:
96.000.-
Ennfremur til sölu:
Toyota HI-LUX 4X4 styttri gerö
árg. ’81. Ekinn: 5.000 blár
m/röndum. Verð: 110.000.-
Toyota Carina DL árg.’76. Ekinn:
70.000 grænn. Verð: 50.000.-
, Toyota Starlet árg. ’79, ekinn
45.000, gulur. Verð 68.000.
8T0Y0TA
SALURINN
Nýbýlavegi 8 (bakhús)
Opið laugardaga kl. 13—17
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1981.
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1981.
25
íþróttir
íþrótt
íþrótt
íþrótt
íþróttir
Iþróttir
íþrótt
íþróttir
Skíðamenn á faraldsfæti:
ÁmiÞór farinn
til Östersund
—og 20 skíðamenn á föram til Noregs
Skíðafólk okkar er farið að hugsa sér
til hreifings enda stutt i að vertiðin hjá
því byrji. Fyrsta bikarmótið í alpa-
greinum er í lok janúar á Húsavík. Þau
verða síðan á hálfsmánaðar fresti fram
að páskum en þá hefst íslandsmótið.
Það fer fram í Reykjavík en unglinga-
meistaramótið verður 6.—7. febrúar á
Akureyri.
Árni Þór Árnason, besti skiðamaður
okkar í alpagreinum.er farinn til Öster-
sund í Svíþjóð en þar ætlar liann að
æfa og keppa næstu vikurnar. Þar er
landsliðsþjálfari íslendinga sl. tvö ár,
Guðmund Söderin, þjálfari hjá þekktu
skíðafélagi og verður Árni undir hand-
leiðslu hans þar.
Um 20 manna hópur úr röðum besta
keppnisfólks okkar fer á næstunni til
Geilo í Noregi og verður þar við æfíng-
ar í tíu daga. Nýi landsliðsþjálfarinn i
alpagreinum, Karl Frimannsson,
verður þar með hópnum. Stundaðar
verða skíðaæfingar fjórar klukku-
stundir á dag auk þrekæfinga og á
kvöldin verða fræðslufundir sem Karl
og skíðakennarar í Geilo stjórna.
-klp-
Pelosi fékk þungan dóm
John Pelosi, útherji hjá skoska lið-
inu St. Johnstone, fékk þungan dóm
í gærkvöldi — hann má ekki leika
meira með félagi sinu á þessu keppn-
istímabili. Pelosi var rekinn af leik-
velli fyrir stuttu, í annað sinn á
keppnistímabilinu. Þetta er þyngsti
dómur sem kveðinn hefur verið upp
yfir skoskum knattspyrnumanni í 10
ár. -SOS.
Árni Þór Árnason er farinn til Noregs þar sem hann ætlar að æfa næstu vikurnar og um jólin keppir hann á 6 mótum i Austurriki.
Mynd-EJ.
Erum komnir með
framtíðarkjarna
— segir Hilmar Björnsson, þjálfari landsliðsins í handknattleik
— Ég tel að við séum komnir með
framtiðarkjarnann í landsliðið og það
verða ekki gerðar miklar breytingar á
landsliðshópnum á næstunni. Það er
þó enginn leikmaður útilokaður frá
landsliðinu — þeir sem ætla sér að
berja á dyrnar verða að vera betri en
þeir sem eru nú i landsliðinu til að
komast í landsliðið, sagði Hilmar
Charles
fótbrotnaði
Jeremy Charles — velski lands-
liðsmaðurinn hjá Svvansea, mun
ekki leika meira með liðinu á
kcppnistímabilinu. Charles varð
fyrir því óhappi að fótbrotna í
leik gegn Svvansea á þriðjudags-
kvöldið — þegar hann lenti í sam-
stuði við félaga sinn, Leighton
James.
-SOS.
Björnsson, landsliðsþjálfari í hand-
knattleik, í stuttu spjalli við DB og Visi
í gærkvöldi.
Landsliðið leikur þrjá landsleiki
gegn Norðmönnum um helgina. Lands-
liðið, skipað leikmönnum 21 árs og
yngri, leikur fyrsta leikinn á Selfossi á
morgun kl. 14.
Landslið það sem leikur gegn Norð-
mönnum á sunnudaginn í Laugardals-
höllinni verður skipað þeim landsliðs-
mönnum sem tóku þátt í keppnis-
ferðinni til Tékkóslóvakíu á dögunum.
Hilmar sagði að ferðin til
Tékkóslóvakíu hefði komið sér vel fyrir
leikmenn landsliðsins. — Sóknarleikur
okkar var oft góður en þó vantaði
meiri yfirvegun í hann — yfirvegun
sem kemur með samæfingu. Eins og
málin standa nú, er vtunarleikur okkar
mesta vandamálið, sagði Hilmar.
— Ef strákarnir ná sér á strik gegn
Norðmönnum má reikna með
fjörugum og skemmtilegum leikjum.
Við vitum að Norðmenn eru á uppleið
aftur eftir öldudal sem þeir hafa verið i,
þannig að þeir eru verðugir and-
stæðingar, sagði Hilmar. -SOS.
O
Ingólfur
beztur á
Skaganum
Haukur G. kominn
f landsliðshópinn
— í handknattleik sem mætir Norðmönnum
Sundkappinn Ingólfur Giss-
urarson var kjörinn íþrótta-
maður ársins 1981 á Akranesi.
Úrslitin voru kunngerð nú í
vikunni og hlaut Ingólfur flest
atkvæðin hjá stjórn íþrótta-
bandalags Akraness sér um
valið.
í öðru sæti kom hin fjölhæfa
íþróttakona Rannveig Sigurðardóttir,
Sigurður Lárusson knattspyrnumaður
varð þriðji, Sigurður Jónsson drengja-
landsliðsmaður í knattspyrnu fjórði og
sundkappinn Ingi Þór Jónsson sem
hlaut titilinn í fyrra varð nú að gera sér
fimmta sætið að góðu!!
ingólfur fékk hinn nýja Friðþjófs-
bikar til varðveislu í eitt ár. Bikar þessi
er gefinn af systkinum Friðþjófs
Daníelssonar sem lést af slysförum á
fimleikaæfingu árið 1948.
-klp-
Haukur Geirmundsson
Badminton
á Akureyri
Akureyringum gefst kostur á því um
helgina að sjá flest besta
badmintonfólk landsins í keppni. Þá
verður haldið í Glerárskóla fyrsta
meistaraflokksmótið í badminton á
Akureyri og eru flestir þeir bestu
skráðir þar til leiks. Mótið hefst á
morgun kl. 11 og heldur áfram á sama
tíma á sunnudag.
Haukur Geirmundsson,
hornamaður úr KR, er nýliði í
landsliðshópi Hilmars
Björnssonar, sem ieikur gegn
Norðmönnum. Haukur
kemur inn í hópinn í staðinn
fyrir Bjarna Guðmundsson
sem leikur með Nettelstedt í
V-Þýzkalandi.
Bjarni og Theódór Guðfinnsson úr
Val eru þeir einu úr landsliðinu sem lék
i Tékkóslóvakíu sem verða ekki með
gegn Norðmönnum.
Eftirtaldir leikmenn eru í landsliðs-
hópnum, sem leikur á sunnudaginn:
Markverðir:
Kristján Sigmundsson, Víkingi
Einar Þorvarðarson, HK.
Aðrir leikmenn:
Steindór Gunnarsson, Val
Ólafur Jónsson, Víkingi
Páll Ólafsson, Þrótti
Þorbergur Aðalsteinsson, Víkingi,
Sigurður Sveinsson, Þrótti
Þorbjörn Jensson, Val
Sigurður Gunnarss., Víkingi
Kristján Arason, FH
Haukur Geirmundss., KR
Guðmundur Guðmundss., Vikingi
Ottar Matthiesen, FH
Alfreð Gíslason, KR
Ólafur Jónsson er fyrirliði lands-
liðsins.
-sos.
Fatlaðir
með mót
Fyrri hluti Reykjavíkurmóts íþrótta-
félags fatlaðra verður um helgina. Er
það sundmótið, sem fram fer i sund-
laug Sjálfsbjargar, sem keppni í bog-
fimi, sem verður í Laugardalshöllinni.
Síðari hluti mótsins verður um aðra
helgi og þá keppt í boccia, borðtennis,
lyftingum og bogfimi.
Sigurður náði
fjórða bezta
árangri í heimi
— þegar hann vippaði sér yfir 1,77 m í
hástökki, án atrennu, á Egilsstöðum
Helgi Danielsson afhendir Ingólfi Gissurarsyni nýja bikarinn sem sæmdar-
heitið iþróttamaður Akraness fylgir. Mynd Friðþjófur.
Sigurður Matthíasson, 20 ára
nemandi í Menntaskólanum á
Egilsstöðum, setti i gærkvöldi ís-
landsmet í hástökki án atrennu er
hann vippaði sér yfir 1,77 m á
innanfélagsmóti Hattar. Árangur
Sigurðar mun vera sá fjórði bezti í
heiminum í þessari íþróttagrein.
Heimsmetið á Sviinn Almen, 1,90
m, en næsti maður á bezt 1,80. Að
visu er þetta ekki útbreidd keppnis-
grein í heiminum en það rýrir ails
ekki hinn góða árangur Sigurðar.
Hann bætti íslandsmetið um senti-
metra. Óskar Jakobsson var hand-
hafi þess áður. Á sama móti stökk
Unnar Vilhjálmsson 1,97 i hástökki
,með atrennu.
-VS.
Njarðvíkingar
af tur f gang
— eftir stórtapið gegnfram um helgina fóru þeir létt með Stúdenta ígærkvöld
Guðmundur Steinsson.
„Við erum svona rétt að jafna okkur
eftir tapið fyrir Fram í síðasta leik svo
það var ekki alveg að marka þetta hjá
okkur núna á móti Stúdentunum,”
sagði Hilmar Hafsteinsson, þjálfari
Njarðvíkinga, eftir auðveldan sigur
hans manna gegn IS í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í gærkvöldi.
„Við höldum meistaratitlinum, það
er alveg öruggt mál. Við vorum
óheppnir í leiknum við Fram og þar að
auki var Danny Shouse með flensu og
það munar um minna,” bætti Hilmar
við.
Danny lét lítið að sér kveða í leiknum
í gærkvöldi Hann tók þó „rokur” við
og við eins og t.d. um miðjan síðari
hálfleikinn þegar staðan var jöfn 22:22.
Þá skoraði hann hverja körfuna á
fætur annarri og sá þar með um að
Njarðvíkingar næðu 12 stiga forskoti
fyrir hálfleik — 57:45.
í síðari hálfleiknum héldu hinir í
Njarðvfkurliðinu áfram að breikka
bilið og um miðjan hálfleikinn voru
þeir komnir 20 stigum fram úr. Þar
með var allt púður úr Stúdentunum en
þeim tókst þó að verjast þvi að fá á sig
„þriggja stafa tölu” í lokin. Njarðvík-
inga vantaði 3 stig til að ná þvi — loka-
tölurnar urðu 97:82.
Hjá ÍS skoraði Dennis McGuire mest
Guðmundur fetar
í fótspor Teits
— og geríst leikmaður með Öster í Svíþjóð
Guömundur Steinsson,
sóknarleikmaður í knattspyrnu
úr Fram, hefur ákveöið aö ger-
ast leikmaður meö Öster i Sví-
þjóö — ,,Allsvenska”-liöinu,
sem Teilur Þórðarsson lék meö
viö góöan oröstír. Guömundur
kom til landsins i gær, eftir aö
hafa æft með félaginu um tíma.
— Forráðamenn félagsins
vildu að ég gengi til liðs við
Öster og mun ég fara aftur til
Svíþjóðar eftir áramót, sagði
Guðmundur Steinsson í viðtali
við DB og Vísi í gærkvöldi.
— Ég kunni mjög vel við mig
hjáfélaginu —og var mér tekið
vel, sagði Guðmundur.
Guðmundur sagði að hann
hafi verið mikið spurður um
Teit, sem væri dýrlingur í
Vexjöe. — Það verður erfitt að
fylla það skarð sem Teitur
skildi eftir sig, sagði Guðmund-
ur.
-sos.
— eða 25 stig. Hann var orðinn
þungur í skapi í lokin og skoraði þá
nokkur stig á frekjunni einni saman.
Bjarni Gunnar gerði 16 stig fyrir ÍS,
Gisli Gíslason og Árni Guðmundsson
10.
Danny Shouse skoraði 29 stig fyrir
Njarðvík — þar af 19 í fyrri hálfleik.
Valur Ingimundar var með 20 stig,
Júlíus Valgeirsson 15 og Árni Lárus-
son, sem var einn besti maður liðsins í
leiknum, sáum 13 stig i þetta sinn.
-klp-
Danny Shouse.
Higgins
og Shous
— með Þór á Akureyri
íslandsmeistararnir í körfuknatt-
leik karla úr Njarðvík ætla sér að
heimsækja höfuðborg Norður-
lands, Akureyri, um helgina.
Þeir leika þar tvo leiki, báða gegn
2. deildarliði Þórs, sem Gylfi Kristj-
ánsson blaðamaður stjómar með
harðri hendi.
Hann og strákarnir í Þór fá til
liðs við sig Bandaríkjamanninn Tim
Higgins frá Keflavík i fyrri leikinn
sem verður á föstudagskvöldið og á
laugardaginn munu þeir Higgins og
Danny Shouse leika með Þór gegn
Njarðvíkingunum. -klp-
DENNIS McGUIRE . . . var stiga-
hæstur Stúdenta.
STAÐAN
Staðan i úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik eftir leikinn í gærkvöldi:
ÍS—NJARÐVÍK 82:97
Njarðvík 8 7 1 648:594 14
Fram 7 6 I 597:533 12
Valur 7 4 3 553:534 8
KR 6 2 4 430:459 4
ÍR 7 2 5 513:553 4
ÍS 7 0 7 524:592 0
STIGAHÆSTU MENN:
Danny Shouse, Njarðv. 241
Val Brazy, Fram 199
Bob Stanley, ÍR 191
Dennis McGuire, ÍS 189
Næstu leikir:
Fram-ÍR í Hagaskóla á sunnudag
kl. 14. Njarðvik-KR föstudaginn 4.
des.
HSIfær
boðfrá
V-Þýzkalandi
HSÍ fékk skeyli frá V-Þýska-
landi í gær, þar sem V-Þjóðverjar
huöu íslcnska landsliöinu í hand-
knattleik til V-Þýzkalands í
desember til að leika tvo landsleiki
11. og 13. desember. — Við erum
ekki búnir aö taka ákvöröun um
hvort viö þiggjum þetta boö, sagöi
Júlíus Hafstein, formaöur HSÍ.
-sos.
Guð-
mundur
beztur
hjá
Fram
Guðmundur Baldursson, lands-
liðsmarkvörðurinn snjalli í knatl-
spyrnu, var útnefndur knattspyrnu-
maður ársins 1981 hjá Fram — á
uppskeruhátíð félagsins.
BjörnogKarlfá
nógaðgera
Milliríkjadómararnir kunnu i
handknattleik — þeir Karl
Jóhannsson og Björn Kristjánsson,
fá nóg að gera um hclginn — þeir
dæma alla þrjá landsleikina gegn
Norðmönnum í handknattleik.
-SOS.
Nýrsund-
formaður
Guðfinnur Ólafsson var kjörinn
formaður Sundsambands íslands á
ársþingi þess sem haldiö var um
helgina.
Tekur hann við af Erlingi Þ.
Jóhannssyni, sem gaf ekki kost á
sér aftur. Þá var Unnar Stefánsson
kjörinn varaformaður SSÍ á þessu
þingi.
Fara ekki suður
fyrir landamærin
Norður-Kóreumcnn hafa til-
kynnt að þeir muni hvorki mæta til
leiks á Asíu-leikunum 1986 né
ólympiuleikunum 1988.
Segjast þeir gera það af öryggis-
ástæðum, en báðir þessir stórleikir
eiga að fara fram í Seoul i Suður-
Kóreu.