Dagblaðið Vísir - DV - 27.11.1981, Side 29
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FÖSTUDAGUR 27. NÓVEMBER 1981.
37
Útlönd Útlönd Útlönd Útlönd
Connie Francis
afturfarin
að syngja
Munið þið eftir Connie Francis?
Hún var mjög fræg og vinsæl
söngkona á árunum kringum 1970. Svo
heyrðist ekki í henni lengi.
Nú er hún aftur að byrja að halda
tónleika. Hún valdi daginn fyrir þá
fyrstu nákvæmlega sjö árum eftir að
henni var á sínum tíma nauðgað eftir
glæsilega tónleika. Það leiddi til þess
að hún steinhætti að koma fram. Þá
þögn ætlar hún nú að rjúfa.
Manson
of hættu-
legur til að
ganga laus
Fjöldamorðinginn Charles Manson
segir að hann sé orðinn snargalinn eftir
8 ára dvöl á „vitlausraspítala” og er
fangelsisyfirvöldum hjartanlega sam-
mála um það að hann sé of hættulegur
til að ganga laus.
Manson fékk lifstíðardóm fyrir 12
árum, en hann var leiðtogi hippahóps-
ins sem myrti kvikmyndastjörnuna
Sharon Tate árið 1969 ásamt 8 öðrum.
Þriggja manna nefnd er fjallaði um
náðunarbeiðni fýrir Manson komst að
þeirri niðurstöðu að ekki væri óhætt að
náða hann. Taldi hún grimmdarverk
hans svo viðbjóðsleg að þar gæti ekki
verið um heilbrigðan mann að ræða.
Manson er enn síðhærður og síð-
skeggjaður og með hakakrossinn ristan
á enni sér. Er hann kom fyrir nefndina
stytti hann sér stundir með leik að
hvitum glerkúlum og hálsbandi. Hann
gat ekki setið kyrr nema stutta stund í
einu og var sífellt að grípa fram i fyrir
nefndarmönnum skrækri röddu.
— Ég hef verið í einangrun í 10 ár og
á vitlausraspítala í 8 ár, sagði hann. —
Ég hef engan heila lengur. Hann er
farinn. Ég skil ekki helminginn af því
sem þið eruð að segja.
Manson er nú orðinn 46 ára gamall,
en á blómaskeiði hans var hann dýrk-
aður sem guð af áhangendum sinum.
Fjórir af þeim voru dæmdir til fangels-
isvistar um leið og hann.
Manson dvelur nú á lokaðri deild á
hæli i nágrenni við San Fransisco.
Charles Manson, 46 ára garnafí og
enn Hfshœttutogur.
Fegursta hús
íheimi
Tatum O’Neal varð nýlega 18 áraog
þar með myndug en Tatum er þrátt
fyrir ungan aldur stórauðug stúlka.
Hún hefur sjálf aflað sér þessara
peninga með kvikmyndaleik en hún var
ekki nema 8 ára gömul er hún lék í
fyrstu myndinni ásamt föður sínum,
Ryan O’Neal.
Og hún hefur þegar ákveðið hvað
hún ætlar að gera við peningana:
— Fyrst af öllu ætla ég að byggja
mér fallegasta hús í heimi, segir hún. —
Ég hef hingað til búið heima hjá föður
mínum en þar á ég ekkert einkalif.
— Þar næst ætla ég að finna mér
kærasta. En það verður að vera alveg
sérstakur maður og afar trúfastur. Ég
veit að það er ekki auðvelt að finna
slíkan mann en mér liggur ekkert á.
Hanná a.m.k. ekki að líkjast pabba.
Tatum O’Neal: Eiginmaðurinn má ekki
líkjast pabba.
Jólatilboð sem hlustandi er á
SL—B202
Einn af hinum frægu TF.CHNICS spilurum. Hálfsjálf-
virkur meö hraöafínstilli og stjórnboröi fyrir utan lokið.
ST-ZllL
Étvarps, 3 bylgjur, FM stereo, MW,
LW með útsendingarnæmnisljósum.
RS-M205
Kassettutæki. Framhlaðið með
snertitökkum, fyrir allar tegundir af
spólum og með DOLBY. Svið 20—
17.000.
SU-211
Stereomagnari 2X25 sinusvött viö 8 ohm á sviðinu
20—20.000 (iægsta vatta tala). Toppmagnari meö öllum
tengimöguleikum og flúorsent Ijósum.
SB-3030
Hátalarar 50 sínusvött (75 músik), 3
hátalarar, hátíðni, miðtóna og bassi.
SH-553
Viðarskápur á hjólum og með glerhurð.
Verð aðeins
kr. 11.674 staðgr.
GREIÐSLUKJÖR
JAPIS
BRAUT ARHOLTI2. — SlMI 27133
SÉRHÆFÐ HLJÓMTÆKJAVERSLUN