Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1981, Blaðsíða 21
20
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1981.
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1981.
21
íþróttir
Iþróttir
íþrótt
íþróttir
íþróttir
íþróttir
Áfall fyrir Stjömuna í Garðabæ:
Gunnar Ein. f rá leik
út keppnistímabilið
—Slasaðist illa í leik Breiðabliks og Stjömunnar á laugardag að Varmá.
Engar sjúkrabörur eða teppi í íþróttahúsinu
,,Þetta er kannski lán í óláni þó
meióslin séu mjög slæm. Sinin, sem
heldur hnéskelinni slitnaði, þegar ég
var í uppstökki í leiknum gegn Breirta-
bliki á laugardag. Það er víst aö ég leik
ekki meira meö á þessu leiktímabili,"
sagöi Gunnar Einarsson, þjálfari og
leikmaöur Stjörnunnar í Garöabæ,
þegar DV ræddi við hann í gær.
Gunnar var þá nýkominn heim eftir
velheppnaöa aögerö á Borgarspítal-
anum. Stjarnan er í efsta sæti í 2. deild
og þaö er mikið áfall fyrir liöiö aö
missa sinn bezta leikmann. Gunnar
hefur um árabil veriö í hópi leiknustu
manna isl. handknatlleiks.
„Þessi sin hefur verið að angra mig
síðustu árin. Upphaflega slasaðist ég í
leik með Göppingen í Veslur-Þýzka-
landi fyrir fjórum árum. Hef siðan
fengið þetta 2—3 sprautur í hnéð
árlega. Alltaf fundið fyrir meiðsiun-
um. Þegar ég kom á spítalann á laugar-
dag héldu læknarnir fyrst að hnéð væri
úr liði. Síðan kom sérfræðingur, sem
sagði að sin væri slitin. Sagðist aldrei
hafa séð slíkt áður. Mjög fágætt að
þessi sin slitni. Ég var strax skorinn og
aðgerðin heppnaðist mjög vel. Borað
var gat í hnéskelina og sinin fest. Ég
verð sex vikur í gipsi og vonast til að
geta farið að æfa eitthvað undir vorið.^
Þetta er kannski lán í óláni. Ég fæ mig
nú ef til vill góðan í eitt skipti fyrir öll
af þessum meiðslum, sem hafa angrað
mig svo mjög siðustu árin,” sagði
Gunnar og var hinn hressasti.
Gunnar Einarsson — ,,lán f óláni”.
Nú fréttum við, að þú hefðir iengi
beðið sárkvalinn í íþróttahúsinu að
Varmá eftir sjúkrabíl. Ekkert teppi,
engar sjú krabörur og annað eftir því.
,,JÚ, þaðer rétt. Það virðist ekki gert
ráð fyrir slíkum stórslysum i íþrótta-
Þórunn Kristín
hefur sett níu
met f Danmörku
Þórunn Kristín Guðmundsdóttir — dóttir Guömundar Haraldssonar, hins
kunna sundþjálfara, sem er nú starfandi sundþjálfari í Randers í Danmörku,
hefur tekið þátt í nokkrum sundmótum í Danmörku að undanförnu og sett
hvorki meira né minna en nfu íslandsmet meyja.
Hér fyrir neðan má sjá árangurinn hjá Þórunni Kristínu:
14. nóvember:
400 m skriðsund
800 m skriðsund
22. nóvember:
400 m skriðsund
200 m skriðsund
100 m skriðsund
200 m baksund
200 m fjórsund
5. desember:
100 m baksund
1500m skriðsund
Tölurnar innan sviga eru gömlu metin.
5:01,0
10:05.8
4:57.75
2:25.9
1:09.99
2:48.02
2:45.0
1:19.2
19:23,8
( 5:01.9)
(10:22.9)
( 5:01.0)
( 2:28,3)
( 1:10.2)
( 2:51.0)
( 2:49.3)
( 1:21.8)
(20:43.3)
-sos.
húsum á íslandi. í Þýzkalandi eru til
dæmis alltaf tveir menn frá Rauða
krossinum á leikjum. Ég viðurkenni að
mér leið afar illa. Miklar kvalir í hnénu
í um hálftima. Þá fóru þær að deyfast
og þá kom sjúkrabíllinn. Svo var fljótt
brugðizt við á spítalanum og ég er von-
Jóhannes St.
skoraði tvö
I upptalningu á markaskorurum í
leik KR og Víkings i handknattleiknum
f blaðinu f gær féll nafn 'Jóhannesar
Stefánssonar, KR, niður. Hann
skoraði tvö af mörkum KR f leiknum,
fallega af linu.
góður um að ég fái góðan bata. Þessi
meiðsli, sem hafa háð mér mjög undan-
farin ár, séu úr sögunni, þó tíma taki
að komast yfir þetta áfall,” sagði
Gunnar að lokum. -hsfm.
Van der
Elst til
West Ham
Lundúnaliöið West Ham festi kaup á
belgíska landsliösmanninum Francois
van der Elst i gærkvöldi. Félagiö
borgarði New York Cosmos 400 þús.
pund fyrir þennan þekkta leikmann,
sem hefur verið einn ar beztu knatt-
spyrnumönnum Belgfu undanfarin ár.
Þá keypti Stoke miðvallarspilarann
Robert Prytz frá sænska liðinu Malmö
FF á 80 þús. pund. -SOS.
Barcelona
vill Briegel
og Pezzey
Barcelona er nú á höttum eftir leik-
mönnum frá V-Þýzkalandi, eftir aö
Bernd Schuster meiddist á dögunum,
en hann verður frá í þrjá mánuði vegna
meiösla. Barcelona hefur áhuga á aö fá
v-þýzka landsliðsmanninn Hans-Peter
Briegel, sem leikur meö 1. FC Kaiser-
slautern og Austurríkismanninn Bruno
Pezzey, sem leikur meö Frankfurt.
Það verður erfitt fyrir spánska liðið
að fá þessa leikmenn, þar sem þeir eru
samningsbundnir félögum sínum, sem
hafa örugglega ekki mikinn áhuga á að
láta þá fara frá sér á miðju keppnis-
tímabili.
-SOS.
BJARNILEIKUR
SINN100. LANDS-
LEIK GEGN DÖNUM
Handknattleikskappinn Bjarni Guð-
mundsson, sem leikur með Nettelstedt f
V-Þýzkalandi, leikur sinn 100. iands-
leik fyrir ísland, þegar íslendingar
mæta Dönum i fyrsta landsleiknum
(27. desember) af þremur á milli jóla og
nýárs. Þetta er mjög góður árangur hjá
Bjarna, sem er aöeins 24 ára.
Steindór Gunnarsson úr Val, leikur
sinn 80. landsleik gegn Dönum, þannig
að þeir félagar leika báðir btómaleiki.
Fimm handknattieiksmenn hafa
leikið yfir 100 leiki fyrir ísland, en það
eru þeir: Ólafur H. Jónsson — 138,
Geir Hallsteinsson, — 118, Björgvin
Björgvinsson — 112, Víðar Simonar-
son — 103 og Ólafur Benediktsson —
102.
Bjarni verður því sjötti leikmaður-
inn, sem kemst í „100 landsleikja
klúbbinn”.
-sos.
SESTA
ELDHÚSHJÁLPIN
ICENWOOD
Einar Bollason landsliösþjálfari, sést hér ræða við nýliðana f landsliðinu á æfingu i gær.
DV-mynd: Friöþjófur.
Sjö landsleikir gegn
Hollandi og Portúgal
Körf uknattleikslandsliðid æf ir af fullum krafti
Jón Sigurðsson leikur sinn 100. landsleik
gegn Portúgal
Körfuknattleikslandsliöiö undirbýr sig nú á
fullum krafti fyrir fjóra landsleiki gegn Hollend-
ingum, sem veröa á milli jóla og nýárs og þrjá
landsleiki gegn Portúgölum, sem verða hér á
landi eftir áramót. 17 manna landsliðshópur var
f æfingabúöum á Selfossi á sunnudaginn —
undir stjórn Einars Bollasonar, landsliðsþjálf-
Landsliðið æfir nú daglega i Laugardalshöll-
inni og er mikill hugur I Ieikmönnum liðsins.
Tveir landsliðsmenn hafa forfallazt og geta þeir
því ekki tekið þátt í undirbúningnum. Það eru
þeir Þorvaldur Geirsson úr Fram, sem fær sig
ekki lausan úr vinnu og Gisli Gíslason, sem
meiddist I leik með Stúdentum gegn Valsmönn-
um. Gtsli meiddist á baki og verður hann frá
keppni um tíma.
Fyrsti landsleikurinn gegn Hollendingum
verður í íþróttahúsinu í Kefiavík 27. desember
kl. 15. og síðan verður leikið á Akranesi, Vest-
mannaeyjum og Reykjavík. Landsleikirnir gegn
Portúgölum verða leiknir í Njarðvík, Borgarnesi
og Reykjavík.
Jón með 100 landsleiki
Jón Sigurðsson, körfuknattleikskappinn
snjalli úr KR, sem er fyrirliði landsliðsins, leikur
sinn 100. landsleik fyrir Ísland, þégar íslenzka
liðið leikur síðasta leik sinn gegn Portúgölum —
6. janúar í Reykjavík. Jón hefur nú leikið 93
landsleiki, sem er mjög góður árangur hjá körfu-
knattleiksmanni.
-sos.
Jón Sigurösson fyrirliði landsliðsins.
NU HEFST LEITIN AÐ
LANDSUÐSÞJÁLFURUM
Rmm „stjórar” með landsliðin í knattspymu
Verkaskipting hefur fariö fram
hjá Knattspyrnusambandi ís-
lands. Fimm „stjórar” veröa
með landsliðin i knattspyrnu.
Helgi Danielsson verður áfram
formaöur landsliðsnefndar,
Gunnar Sigurðsson veröur áfram
formaöur kvenn^fiefndarinnar,
Árni Þorgrímsson formaður
landsliösnefndar — landsliðsins,
sem er skipað leikmönnum 21 árs
og yngri, Gylfi Þóröarson for-
maður unglingalandsliðsins —
skipað leikmönnum undir 18 ára
og Helgi Þorvaldsson formaður
unglingalandsliðsins — skipað
leikmönnum undir 16 ára.
„Stjórarnir” fá nóg að gera á
næstunni því að nú hefst leitin af
landsliösþjálfurunum fyrir lands-
liðin fimm.
Þá má geta þess að verkaskipt-
ingin innan stjórnar K.S.Í. er
þannig: Ellert B. Schram, for-
maður, Árni Þorgrímsson, vara-
formaður, Gylfi Þórðarsson, rit-
ari og Friðjón B. Friðjónsson,
Bjarnl Guömundsson sést hér skora mark i landsleik.
„Stjörnulið” Hermanns til
Manchester og Glasgow
Miklar Ifkur eru nú á því aö
„Stjörnulið” Hermanns Gunn-
arssonar i knattspyrnu, bregði
sér út fyrir landsteinana i apríl
á næsta ári og taki þátt i þriggja
liða móti á Bretlandseyjum —
með Celtic og Manchester Uni-
ted. Eins og menn muna, þá
komu gömlu kapparnir úr
Celtic hingað til lands i sumar
og léku gegn „Stjörnuliði”
Hermanns i Keflavík.
Leikmenn Celtic vilja endur-
gjalda þessa heimsókn, með því
að fá „Stjörnuliðið” til Skot-
lands og nú er unnið að því að
fá gömlu kappana hjá
Manchester United — Bobby
Charlton og co. til aö taka þátt í
móti, sem færi væntanlega
fram í Manchester og Glasgow.
-sos.
gjaldkeri.
Gunnar Steinn Pálsson er for-
maður Aganefndar, Helgi Þor-
valdsson, formaðurMótanefndar,
Sveinn Sveinsson, formaður
Dómaranefndar, Friðjón B.
Friðjónsson, formaður Fjáröfl-
unarnefndar og Gylfi Þórðar-
son, formaður Laga- og reglu-
gerðarnefndar.
-sos.
Páll handar-
brotinn
Eins og við sögöum frá f gær
meiddist Páll Ólafsson, lands-
llðsmaður i handknattleik úr
Þrótti, i leik Þróttar gegn FH.
Þegar Páll fór i læknisskoðun
kom I Ijós að hann er handar-
brotinn og mun hann verða frá
keppni um tíma. Páll leikur þvi
ekki með landsliðinu gegn Dön-
um. -SOS.
K
JOLAGJAFIR
RAFMAGNS- GRÆNMETIS- OG AVAXTAKVARNIR
HANDÞEYTARI Verð kr. 709.- Verð kr. 621.- Verð kr. 399.-
1 Verð kr. 565.-
DJÚPSTEIKINGARPOTTUR CHEFETTE HRÆRIVÉL
Verð kr. 1.862.-
Verð kr. 1.182.-
K
RAFHLÖÐUÞEYT ARI
Verð kr. 123.-
(Öll verð eru miðuð við gengi 11.12.'8:
RAFEEKJADEILD
HF
Laugavegi 170-172 Simar 21240-11687