Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1981, Blaðsíða 22
22
DAGBLAÐIÐ & VlSIR. ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1981.
Hvað bióða bíóin upp á?
Sú hefð hefur haldist / gegnum órín, að kvikmynda■
húsin í Reykjavík, og stundum nokkurúti ó iandi, hafa
frumsýnt nýjar kvikmyndir á annan ijóium. Engin breyt-
ing virðist ætia að verða á þviíór og er ýmis/egt gott á
boðstóium. Eini munurinn ó frumsýningu jóiamynd-
anna í ór og í fyrra er sá að þeim hefur heidur nú
fækkað. Ástæðan er aug/jós- kvikm yndahúsunum
hefur fækkað um þrjú frá því 6 jólunum í fyrra. Þetta eru
Hafnarbíó, Gam/a bíó og Borgarbíó i Kópavogi. Heyrzt
hefurþó að Borgarbíó opniaftur — jafnvelnú á millijóla
og nýárs — og þá undir nafninu Bióbær. En hvað um
það, það er úr mörgu að velja fyrír kvikmyndahúsagesti
oghórsegjum við frá þvi helzta...
TÓNABÍÓ... „ffre/f-Ge/ri"
Hvell-Geiri er
kari í krapinu
Tónabíó býður upp á mynd sem
vakið hefur mikla athygli i Evrópu að
undanförnu. Er það kvikmyndin
„Flash Gordon” eða Hvell-Geiri eins
og Indriði G. Þorsteinsson skýrði
hetjuna þegar hann var ritstjóri Tim-
ans hér á árum áður.
Sjálfsagt þekkja margir mynda-
söguna af ,,HveII-Geira” en hún
hefur skreytt síður dagbl. Tímans i
áraraðir og notið þar vinsælda bæði
eldri sem yngri lesenda.
Það er Sam J. Jones sem leikur
Hvell-Geira í myndinni en Melody
Anderson leikur kærustuna hans,
Dale Arden. Sá sem stelur þó senunni
í myndinni er Max von Sydow, sem
leikur Ming keisara.
Myndin fjallar um ferðalag Hvell-
Geira, Döllu og hálf ruglaðs vísinda-
manns út í himingeiminn til að koma
í veg fyrir að hinn vondi Ming
sprengi jörðina í tætlur. Þar lenda
þau í hinum mestu ævintýrum en allt
fer þó vel að lokum því Hvell-Geiri er
mikill karl.
Hin fræga hljómsveit „Queen” sér
um alla tónlist í myndinni, og þar er
m.a. titillagið „Flash” sem náði hátt
á vinsældalistum heimsins fyrir
nokkru.
-klp-
óaldartýð hans.
KEFLVÍKINGARNIR
FLOTTIR Á ÞVÍ!
— Bæði bíóin þar með f rumsýningar á nýjum
kvikmyndum á annan í jólum
Þeir sem stjórna bíóunum I Kefla-
vík, þeir Óli Þór Hjaltason og Árni
Samúelsson eru óhræddir við að
koma með nýjar kvikmyndir á
jólunum. Því i þeirra húsum, Nýja
bíói og Félagsbíói verða frumsýndar
tvær nýjar myndir á annan í jóluin.
í Nýja bíói verður frumsýnd
myndin „Endless Love” með þeim
Bruce Seelds og Martin Hieldt í aðal-
hlutverkum en það er mjög umtöluð
mynd.
Félagsbíó frumsýnir aftur á móti
ísraelsku grinmyndina „Bubble
gum”, eða „Heitt kúlutyggjó” eins
og hún heitir á íslenzku. Þar leikur
sama liðið og var í myndinni „Hvað
á að gera um helgina” sem Tónabíó
sýndi fyrir skömmu.
Borgarbió á Akureyri frumsýnir
islenzku myndina „Jón Odd og Jón
Bjarna” en önnur kvikmyndahús úti
á landsbyggðinni verða með sýningar
á myndum, sem hafa verið sýndar
áður í kvikmyndahúsunum í
Reykjavík. -klp-
Jón Oddur og Jón Bjami, eftir að sá síöamefndi haföi gengist undir augnaðgerö. Þ6 Jóna feika tvíburabræö-
urnirPállog Wilhelm Sœvarssynir.
Háskólabíó og Borgarbíó, Akureyri:
Frumsýning á Jóni
Oddi og Jóni Biama
Ný íslenzk kvikmynd, „Jón Oddur
og Jón Bjarni”, verður frumsýnd
annan jóladag í Háskólabiói og i
Borgarbíói á Akureyri.
Kvikmyndin er byggð á sögum
Guðrúnar Helgadóttur og fjallar um
tviburana Jón Odd og Jón Bjarna og
fjölskyldu þeirra. Aðalhlutverkin
leika tvíburarnir Páll og Wilhelm
• Jósefs Sævarssynir. Foreldrana leika
Steinunn Jóhannesdóttir og Egill
Ólafsson. Herdís Þorvaldsdótir
leikur ömmu dreka og Sólrún Yngva-
dóttir leikur Soffíu. Gísli Halldórs-
son leikur Kormák afa, en alls fara
um 30 leikarar með hlutverk i mynd-
inni og um 200 aukaleikarar koma
fram.
„Jón Oddur og Jón Bjarni” er
breiðtjaldsmynd í litum, og var
heildarkostnaður við gerð hennar um
þrjár milljónir króna.
Tónlist er eftir Egil Ólafsson, kvik-
myndatöku annaðist Baldur Hrafn-
kell Jónsson, hljóðupptöku Friðrik
Stefánsson, klippingu Kristín Páls-
dóttir, búninga Sólveig Eggertsdóttir
og ieikmynd er eftir Þorgeir
Gunnarsson, Guðjón Pedersen og
fleiri. Aðstoðarleikstjóri er Tinna
Gunnlaugsdóttir, en um handrit,
kvikmyndastjórn og leikstjórn sá
Þráinn Bertelsson. Framkvæmda-
stjóri er Helgi Gestsson en framleið-
andi er Norðan 8 hf.
-klp-
Flóttitilsigurs”
Knattspyman í hávegum höfð
Lawgarásbíó sýnir um jólin mynd-
ina Flótti til sigurs með þá Syl-
vester Stallone og Michael Caine í
aðalhlutverkum. Raunar byrjaði
Laugarásbíó að sýna þessa mynd
fyrir helgina, og vakti hún þá þegar
umtal eins og annars staðar í heimin-
um.
Fyrir knattspyrnuáhugamenn er
þessi mynd sjálfsagt mjög kærkomin,
þvi í henni fá þeir að líta margar af
hetjum sinum. í myndinni kemur
nefnilega fram „úrvalslið” sem
skipað er mörgum af þekktustu
knattspyrnumönnum heims.
Þar má sjá menn eins og t.d. Pele
frá Brasilíu, Bobby More, Englandi,
Osvaldo Ardiles, Argentínu, Paul Van
Himst, Belgiu, Mike Sumerbee,
Englandi, Kazimierz Deyna, Pól-
landi, og marga fleiri heimsfræga
knattspyrnumenn.
Myndin fjallar um heldur dauflega
vist í fangabúðum nasista í stríðinu.
Þar eru geymdir ýmsir foringjar úr
herjum bandamanna og hafa þeir sér
fátt annað til afþreyingar en að leika
knattspyrnu. Þjóðverjunum dettur
það eitt sinn í hug að efna til knatt-
spyrnuleiks á milli úrvalsliðs úr
fangabúðum og úrvals úr þýzka
hernum.
Myndin snýst að miklu leyti um
undirbúning þess leiks svo og flótta-
tilraun sem fangamir ætla að gera
um leið og leikurinn fer fram. Þar fer
fremstur í flokki Sylvester Stallone
og fer mikið fyrir honum að vanda.
Leikstjóri er John Hudson en
knattspyrnuatriðin í myndinni eru
samin af Pele sjálfum.
•klp
KnattspymusnHllngurinn fri Brasifíu, Pele Mkur listir sýnargegn„úrvaHÞýzka hersins". Á myndinnimá elnnlg
sjá Bobby More fyrrum fyrirliða enska landsliðsins og Mike Sumerbee.