Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1981, Blaðsíða 35
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. ÞRIÐJUDAGUR 22. DESEMBER 1981.
35
Andlát
Guðmundur Jóhannesson læknir lézt
13. desember 1981. Hann var ’fæddur
27. janúar 1925 á Seyðisfiröi. Eftirlif-
andi kona hans er Guðrún Þorkelsdótt-
ir. Þau eignuðust 5 börn. Guðmundur
lauk prófi frá læknadeild Háskóla fs-
lands árið 1955. Siðan hefur hann
starfað sem sérfræðingur á kvensjúk-
dómadeiid Landspítalans og yfirlæknir
leitarstöðvar B. hjá Krabbameinsféiagi
íslands. Guðmundur verður jarðsung-
inn í dag, 22. desember, frá Dóm-
kirkjunni kl. 15.
Halldór Elnarsson frá Kárastöðum í
Þingvallasveit lézt 15. desember 1981.
Hann var fæddur 6. desember 1913,
sonur Einars Halldórssonar og Guð-
rúnar Sigurðardóttur. Halldór kvænt-
ist Margréti Jóhannsdóttur og eignuð-
ust þau þrjú börn. Lengst af var hann
leigubílstjóri, en árið 1962 var hann
ráðinn verkstjóri við fyrirtækið Björg-
un h/f og starfaði þar til dauðadags.
Halldór var jarðsunginn í morgun kl.
10.30 frá Fossvogskirkju.
Axel Bjarnason vörubifreiðarstjóri lézt
12. desember. Hann var fæddur 13.
október 1911. Árið 1937 kvæntist Axel
Sigurjónu Jóhannsdóttur, þeim varð
ekki barna auðið, en þau áttu einn
kjörson og eina uppeldisdóttur. Útför
Axels fer fram í dag kl. 15.00 frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík.
IJnnur Þorvaldsdóttir lézt 18. þ.m.
Áslaug Halldórsdóttir frá Keflavík í
Rauðasandshreppi, andaðist í Land-
spítalanum laugardaginn 19. des.
Guðbjörn G. Konráðsson, Laufásvegi
60 Reykjavík, sem lézt sunnudaginn 13.
desember sl., verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni í dag, þriðjudag 22.
desember, kl. 13.30.
Guðrún Kjartansdóttir, Laugavegi 98,
lézt á heimili sínu 20. desember.
Gunnlaugur Jósefsson, fyrrverandi
hreppstjóri, Sandgerði er iátinn.
Katrín Þórarinsdóttir, Hjarðarhaga48,
lézt 19. þ.m.
Leifur Rúnar Helgason andaðist 19.
desember.
Lýður Kristinn Lýðsson, Hringbraut 52
andaðist 19. desember.
Ólafur Hafsteinn Sigurjónsson, Kára-
stíg 6, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju miðvikudaginn 23. desem-
berkl. 10.30.
Ragnhildur Þorvaldsdóttir, Melabraut
61 Seltjarnarnesi, lézt í Borgarspítalan-
um 20. desember.
Sigursveinn Óli Karlsson lézt 17.
desember. Jaiðaiförin fer fram frá
Fossvogskirkju 29. desember, kl.
10.30.
Sveinsina Bergsdóttir, Suðurgötu 5
Sauðárkróki, andaðist í sjúkrahúsi
Sauðárkróks 20. desember.
Happdrætti
Kiwanisklúbburinn
Hekla
Jóladagatalahappdrættið
Vinningsnúmer
1. des. no. 574, 2. des. no. 651, 3. des. no. 183, 4.
des. no. 1199, 5. des. no. 67, 6. des. no. 943, 7. des.
no. 951, 8. des. no. 535, 9. des. no. 1004, 10. des.
no. 2344, 11. des. no. 172, 12. des. no. 1206, 13.
des. no. 593, 14. des. no. 2308, 15. des. no
2103, 16. des. no. 382, 17. des. 1997, 18. des. no.
459, 19. des. no. 950, 20. des. 1000, 21. des. 2255,
22. des. 175, 23. des. no. 2000, 24. des. no. 2,
Happdrætti Sambands ungra
framsóknarmanna
Vinningsnúmerin eru í réttri röð frá 1 .-24. desember:
4498; 1983; 1647; 3933; 4346; 2118; 4964; 2122;
4379; 4133; 3067; 3066; 3927; 4656; 3241; 3409;
4189; 3424; 1030; 3842; 4634; 2858; 4825 — 24.
desember var 2794.
Happdrætti karlakórs
Reykjavíkur
Dregið hefur verið út hjá Borgarfógeta í happdrætti
Karlakórs Reykjavíkur og komu eftirtalin númer
upp:
1.2570 Ferð til Ítalíu.
2. 2734 Ferð og dvöld í sumarhúsi 1 Danmörku.
Tilkynningar
Ferðafélag íslands
Áramótaferð í Þórsmörk kl. 07,31. des.-2. Jan.
Gönguerðir eftir því sem birtan leyfir, áramóta-
brenna, kvöldvökur. Ef færð spillist svo, að ekki
yrði unnt að komast í Þórsmörk, verður gist í
Héraðsskólanum að Skógum. Upplýsingar og
farmiðasala á skrifstofunni, Öldugötu 3.
Úthlutun úr Minningar-
sjóði Theodórs Johnson
Úthlutað veröur 22. janúar nk. tveimur styrkjum.
5.000 kr. hvorum, úr Minningarsjóði Theodórs
Johnson í samræmi við skipulagsskrá sjóðsins.
í 4. gr. hennar segir m.a.:
,,Tekjum, sem ekki skal leggja við höfuðstól,
skal varið til að styrkja efnilega en efnalitla
stúdenta, einn eða fleiri, til náms við Háskóla
íslands eða til framhaldsnáms erlendis að loknu
námi viö Háskóla íslands.”
Umsóknir með upplýsingum um námsferil og
efnahag skulu sendar til háskólaráðs fyrir 1. janúar
1982.
Tónleikar á
Hótel Borg,
Næstkomandi þriðjudagskvöld, þann 22. desember
verða haldnir tónleikar á Hótel Borg.
Þá kemur fram hljómsveitin Mezzoforte ásamt
söngvaranum og lagasmiðnum Jóhanni Helgasyni.
Hann hefur nýlega sent frá sér hljómplötuna TASS
og verður hún kynnt ásamt hljómplötu Mezzoforte
„Þvílíkt og annað eins”.
Hljómleikarnir á þriðjudagskvöldið hefjast kl.
22.00.
Fíladelffukirkjan
Jólaguðsþjónustur
Aðfangadagur: Aftansöngur kl. 18.00. Ræðumaöur
Sam Glad. Kór kirkjunnar syngur. 1. jóladagur:
Hátíða-guðsþjónusta kl. 16.30. Ræðumaöur Óli
Ágústsson, kórinn syngur. 2. jóladagur: Utvarps-
guðsþjónusta kl. 11.00. Umsjá dagskrár og
söngstjórn Árni Arinbjarnarson. Ræðumaður Einar
J. Gíslason. Kór kirkjunnar syngur. 2. jóladagur kl.
16.30: Æskylýðs-guösþjónusta. Æskufólk talar og
syngur. Kærleiksfórn fyrir starfið á Akureyri. 3.
jóladagur: Almenn guðsþjónusta kl. 20.00.
Ræðumaður Jóhann Pálsson. Kór kirkjunnar
syngur. Kærleiksfórn til minningarsjóðs Guðrúnar
Halldórsdóttur og Bjarna Vilhelmssonar frá
Norðfirði. Sjóðurinn styrkir starfsemi Barna-
heimilisins í Kornmúla.
Hættum að nýta
fangaklefana
sem neyðarþjónustu
fyrir geðsjúka
Eins og alþjóð veit hefur það viðgengizt hér á landi
að geyma geðsjúklinga i fangelsum, okkur
íslendingum til vansæmdar. Þessir menn hafa ekkert
brotið af sér, heldur eru þeir veikir og hjálparþurfi
Það er i senn brýnt heilsugæzlumál og mikið mann-
réttindamál að tryggja þeim eðlilega aðhlynningu.
Geðhjálp, félag geðsjúklinga, aðstandenda þeirra
og velunnara, vill leggja sitt af mörkum til að þessir
menn fái annan dvalarstað en fangelsi og fanga-
geymslur. Því ætlar félagið að fara af stað með fjár-
söfnun meðal almennings í trausti þess aö hún geti
orðið kveikjan að raunhæfum aðgeröum til úrbóta.
Félagið mun dreifa söfnunarbaukum á ýmsa staði á
næstunni, og heitum við á alla að leggja okkur liö.
Líka förum við bónarveg tilannarra félagasamtaka
og biðjum fólk á vinnustöðum að taka sig saman.
Margt smátt gerir eitt stórt. Þeir, sem vilja veita okk-
ur aðstoð við framkvæmd söfnunarinnar, eru beðnir
að hafa samband við eftirtalda aðila, sem munu
veita allar nánari upplýsingar.
Andrea Þórðardóttir sími 52451
Ingibjörg Snæbjörnsdóttir — 32852
Nanna Þorláksdóttir —81118
Jólatónleikar kórs Lang-
holtskirkju
Jólatónleikar kórs Langholtskirkju verða í Foss-
vogskirkju 27. des. kl. 16og 28. og29. des. kl. 20.
I gærkvöldi
I gærkvöldi
NÚ B0RDA MENN 0RMA
Þetta hef ég vitað síðan ég var lítill
polli þegar það var eitt helzta sportið
að þora að borða ánamaðk. Ormarn-
ir eru vel hæfir til manneldis.
En nú eru það ekki bara hraust-
menni í krakkahópi sem þorá að
borða ánamaðka. Nú er verið að
vinna að því að gera ormana að al-
mennri fæðu. Það var efni myndar-
innar sem var síðust á dagskrá sjón-
varps í gærkvöldi.
Ormarnir eru ræktaðir í sérstökum
ormagryfjum og aldir á fæðu sem
hæfir þeim. Þeir dafna vel, verða
fljótt stórir og feitir. f þokkabót
fjölgar þeim ört.
Slátrunin er einföld. Hellt er á þá
sjóðandi vatni.
Áður hafa þeir verið látnir liggja í
sólarhringsvatnsbaði til að ná mesta
skítnum af þeim.
Þarf þá nokkurn að furða þó litl-
um strákum hafi fundizt vera smá
moldarbragð af möðkunum þegar
þeim var sporðrennt? Þeir höfðu í
mesta lagi skolað þá lauslega í drullu-
polli.
Nú finnst mér að forráðamenn ís-
lenzkra landbúnaðarmála séu komnir
,með mál til að hugsa um. Ég sé ekki
betur en hér sé komin ágætis hliðar-
búgrein, eins og það heitir á tizku-
máli.
íslenzkir bændur ættu að geta far-
ið út í ormarækt. Þá ætti kannski að
vera hægt að draga úr rolluræktinni
sem sögð er koma í veg fyrir að gróð-
urlendi íslands sé of blómlegt.
Til að slátra ormunum er upplagt
að nýta okkar ágætu auðlind, jarð-
hitann.
Við ormaræktun eykst væntanlega
fjölbreytni borgara. Auk hamborg-
ara borðum við ormaborgara. Og
kannski verða loðnuborgararnir
komnir á markað líka.
Kristján Már Unnarsson
Vcrkefni kórsins að þessu sinni er Jólaóratoría
Bachs. Futtir verða fjórir fyrstu hlutar hennar og
upphaf þess fimmta.
Einsöngvarar með kórnum eru: Ölöf Kolbrún
Harðardóttir, Sólveig Björling, Jón Þorsteinsson og
Kristinn Sigmundsson. Þess má geta að Jón Þor-
steinsson, sem nú er fastráðinn við óperuna i
Amsterdam kemur heim um jólin sérstaklega til að
syngja á þessum tónleikum með kór Langholts-
kirkju.
Athygli styrktarfélaga er vakin á að styrktarfé-
Iagskort gilda ekki á jólatónleikana. Ennfremur er
vert aö itreka, sökum þess að þessir tónleikar verða
ekki endurteknir og að húspláss er takmarkaö, að
fólki er bent á aö tryggja sér miða tímanlega. For-
sala aðgöngumiða er í Langholtskirkju og hjá Úr-
smiðnum Lækjargötu 2.
Hver tók gulu luktina?
Bragi Jónsson hringdi:
í síöustu viku var brotizt inn i kartöflugeymslu
mína og stolið þaöan oliulukt sem er gul aö lit. Ég
skora hér með á viðkomandi að skiia luktinni ef
honum eða þeim er ekki sama um andlega heilsu sína
og sinna nú um jólin.
Keflavfkurkírkja:
Jólaguösþjónustur:
Aðfangadagur: Aftansöngur kl. 18. Jólavakakl. 23.
Jólasálmar sungnir.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta í sjúkrahúsinu kl.
10.30. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.
Annar jóladagur: Skírnarguösþjónusta kl. 14. Há-
tíðarguðsþjónusta á Hlévangi kl. 17.
Sóknarprestur.
Kirkju Óháða safnaðarins
Aöfangadag: aftansöngur kl. 18.
Jóladag: hátiöarmessa kl. 14.
Gamlárskvöld: áramótamessa kl. 18.
Sr. Árelíus Nielsson messar. Safnaðarstjórnin.
Jólamarkaður
við Hafnarfjarðarveg
Allt til jólaskrauts og gjafa, rétt við blómabúðina
Fjólu Garðabæ, opið alla daga frá kl. 10—21.
Síminn er 44160.
Btondie í Keflavik
Útibú frá verzluninni Blondie var opnað fyrir
skömmu i Keflavik, að Hafnargötu 16. Verzlunar-
stjóri er Sólveig Þorsteinsdóttir og er hún til vinstri,
en Sigrún Sigvaldadóitir til hægri.
(DV-mynd: Heiðar Baldursson)
iTLOKÍtCL
Rafmagns-
handverkfæri
ótrúlega
hagstætt verð.
ÞÚRP BllVll B1Baa-ARIVILII.An
HEMLALJÓS í AFTURGLUGGA
Opiðtilkl. 24
á Þorláksmessu.
GABEL
Siöumúla 77
Simi 37140
Pósthólf 5274 125Reykjavik
+
Sigursveinn óli Karlsson
lézt 17. desember. Jarðarförin fer fram frá Foss-
vogskapellu þriðjudaginn 29. desember kl. 10.30.
Jenný Sigurbjartsdóttir og börn
Kari Sæmundarson,
Jón Óttarr Karlsson,
María Valgerður Karlsdóttir,
Særún Æsa Karlsdóttir,
Fanney Magna Karlsdóttir,
Ragna Freyja Karlsdóttir.
AUKALJÓS
HANDLJÓS12 v
Cucaracha"