Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1982, Síða 3
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1982.
3
Enn þjarkað um söluna
á Biff reiðastöð
Steindórs:
Hvað
segja bíl-
stjórarnír?
Sala Bifreiðastöðvar Steindórs hef-
ur vakið mikla athygli og umtal.
Rætt hefur verið um að salan sé ólög-
leg eins og að henni hefur verið
staðið. Stendur samgönguráðherra
frammi fyrir þvi áð taka ákvörðun
um hvort viðskiptin skulu ógilt eða
látin standa.
Formaður Félags atvinnubílstjóra,
Úifur Markússon, hefur látið stór
orð_falIa um sölu stöðvarinnar._
Hefur Tiann nefnt hana „óprúttna
fjárplógsstarfsemi”, sagt fyrrverandi
eigendur hennar vera þarna að losa
sig við gamalt útgengið drasl á topp-
véfði,' þar sem atvinnuleyfin séu not-
uð sem agn.
En hvað segja bílstjórarnir sem
keyptu stöðina. DV hitti þrjá þeirra
að máli í gær. -JSS
„HELBER OG RAKALAUS ÓSANNINDI”
— segir Kristján Benediktsson bifreiðastjóri um fullyrðingar formanns Frama
”Margt af því sem sagt hefur verið
vegna sölu Bifreiðastöðvar Steindórs
eru helber og rakalaus ósannindi,”
sagði Kristján Benediktsson bifreiða-
stjóri er DV leitaði álits hans.
„Aðalatriði málsins er að þarna er
ekki verið að selja leyfi. Bifreiðastöð
Steindórs tilheyra 45 atvinnuleyfi. Við
göngum inn í þetta starfandi fyrirtæki.
Leyfin eru skráð á stöðina og verða það
áfram en tilheyra okkur ekki sem ein-
staklingum. Þaðan af síður fylgja þau
bílunum. Þetta vil ég undirstrika ræki-
lega.
Verð bilanna var metið af sérfróðum
aðilum. Þeir voru siðan keyptir á mats-
verði. Gjaldmælar og talstöðvar sem
ekki teljast fullnægjandi samkvæmt
nútímakröfum, fylgdu með án endur-
gjalds.
Síðan greiddum við ákveðið fyrir
viðskiptavild, sem einnig var metin af
sérfróðum aðilum á sínu sviði. En eins
og ég sagði áður eru leyfin sem slík ekki
seld. En að sjálfsögðu eru þau forsenda
fyrir rekstri stöðvarinnar.
Víst er rétt að töluverður hluti bíl-
anna þarfnast endurnýjunar. Hún
verður framkvæmd sem allra fyrst. Við
greiddum fyrir þá bíla miðað við
ástand og aldur. Hins vegar má ekki
gleyma því að álíka margir bilar eru í
þokkalegu eða góðu ástandi.
Vegna þess sem haft hefur verið eftir
Úlfi Markússyni, formanni Bifreiða-
stjórafélagsins Frama, vil ég taka það
fram að margt af því sem hann hefur
fullyrt um Bifreiðastöð Steindórs eru
helber ósannindi. Ég ítreka að atvinnu-
leyfi á stöðinni eru 45 talsins. Þessi tala
breytist ekkert við sölu stöðvarinnar.
Það verður því hvorki um fjölgun né
fækkun að ræða á leyfum í Reykjavík.
Því er þessi berserksgangur sem Úlfur
hefur gengið, alveg óskiljanlegur.
Hvað nú gerist get ég ekkert sagt um.
Við munum standa fast á okkar rétti.
Þarna er um að ræða atvinnu 34
manna. Við tókum frekar þann kostinn
að kaupa fyrirtækið, sem starfað hefur
frá 1914 en að missa atvinnuna. Við
berjumst þvi réttlætisbaráttu.
Salan er að okkar mati fullkomlega
lögleg. Við Iétum kanna itarlega hvort
svo væri. Víst eru til staðar ákveðin
ágreiningsefni. Okkur þykir eðlilegast
að dómstólar verði látnir skera . lúr um
þau frekar en að óbætanlegt tjón
hljótist af gerræðislegum aðgerðum,”
sagði Kristján að lokum.
-JSS
„Bjartsýnn á að þetta blessist á endanum”
— segir Þórður Valters brfreiöastjóri
„Ýmislegt sem fram hefur komið í
sambandi við söluna á Bílastöð Stein-
dórs er þvílík endaleysa að engu tali
tekur,” sagði Þórður Valters bílstjóri.
”Við, bílstjórarnir á stöðinni, höfum
ákveðið að svara ekki stórum orðum
með öðrum stærri. Hins vegar er ýmis-
legt sem þarf greinilega leiðréttingar
við. Við kaupum bilana til dæmis á
gangverði, eða því verði sem fengizt
hefði fyrir þá á bílasölum. Því er ekki
að neita að sumt af því dóti sem þeim
fylgir er orðið lélegt, svo sem gjald-
mælar. Fyrir gömlu mælana borgum
við ekkert. Sama gildir um talstöðvar
sem eru úr sér gengnar. Þá þarf varla
að taka fram að lögð verður áherzla á
að endurnýja þessa gömlu hluti sem
allra fyrst.
Mér finnst fjölmiðlar í sjálfu sér ekki
hafa farið illa að ráði sínu í þessu máli.
Hins vegar hafa aðrir aðilar látið alltof
stór orð falla og stundum hefur verið
um hreinar rangfærslur að ræða. Við
hér á stöðinni höfum á hinn bóginn
reynt að sýna skilning og vinna að
þessu máli i rólegheitum.
Mér kemur í hug eitt atriði sem
mætti gjarnan leiðrétta. t fjölmiðlum
hefur verið talað um að reynsluleysi
okkar bílstjóranna í akstri. Þetta er
alveg út í loftið. 95% þeirra manna sem
hér starfa hafa unnið þessa vinnu í
fjölda ára. örfáir hafa verið í
akstrinum af og til. Það er þvi ekki
hægt að tala um reynsluleysi í þessu til-
viki.
Þrátt fyrir öll þessi læti er ég bjart-
sýnn á að þetta blessist allt á endanum.
Verði svo heldur fyrirtækið áfram eins
og áður. Á því verður engin breyting. ”
-JSS
Kari Karlsson bifreiðastjóri:
„BJÓST ALLTAF VIÐ EINHVERJUM LÁTUM”
-• '.$0*
... .... j*, -x ,
í,x
xíi ■- 'b.-w V
Ein af bifreiðum Steindórsstöðvarinnar.
DV-myndir Bjarnleifur.
”Ég bjóst alltaf við að það yrðu
einhver læti út af þessari sölu. Það Iá
einhvern veginn í loftinu,” sagði Karl
Karlsson bílstjóri.
„En hitt er annað mál að hún er
gjörsamlega lögleg. Það gilda sér-
stakar reglur um bifreiðastöð Stein-
dórs. Það er anzi hart ef ekki má selja
hana sem venjulegt fyrirtæki.
Víst eru bílarnir gamlir, sumir
hverjir en flestir eru þeir i sæmilegu
eða góðu standi. Þá lélegustu er fyrir-
hugað að endurnýja við fyrsta tæki-
færi eða eins og gerist og gengur í til-
fellum sem þessu. Við höfum þegar
farið í nokkur umboð og leitað eftir
tilboðum í þá. Okkur hefur alls stað-
ar verið tekið vel og við vitum alveg
að hverju við göngum.
Þetta sem fram hefur komið í
blöðum um gangverð bílanna er alls
ekki rétt, gangverðið er töluvert
meira.
Eg vil aðeins segja að iokum að
vonandi verður salan ekki ógild. Það
er mikið í húfi fyrir þá sem vinna hér,
svo mikið, að það verður að láta
reyna á þetta,” sagði Karl að iokum.
-JSS.
Verd frá kr. 99,-
Flauelsbuxur
Verð frá kr. 159,-
Flannelsbuxur
Verðfrá kr. 180,- Laugavegi 37 Laugavegi 89
kr.99,-
Skyrtur Veró frá kr. 69,-
Verðfrákr.49,-
Verðfrákr.99,-
Kuldajakkar
Verðfrákr.390,-
Bolir
Peysur
Komið og fáið mikið fyrír lítið