Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1982, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1982, Page 7
dur Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur Það er mjög gagnlegt að færa minnisbók. Sama í hvaða starfi þú ert. Með því sleppur þú við áhyggjur og ótta, auk margvíslegra leiðinda og jafnvel hárra aukaútgjalda. Auk þess eru minnisbækur gagnlegar til uppsláttar síðar meir. í Pennanum er eitt mesta úrval dagbóka við hæfi allra. Nýttu vel tímann þinn, notaðu minnisbók. cm> Hallarmúla 2, Laugavegi 84, Hafnarstræti 18 DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1982. Mismunur á raf magni og hita á Selfossi og á Eskifirði: Okkur hjónunum finnst við borga smáaura - segir Regína og telur mismuninn svakalegan á þessum tveimur stöðum „Okkur hjónunum finnst þaö smáaurar sem við borgum fyrir rafmagn og hita miðað við á Eskifirði,” sagði Regína, fréttaritari DV á Selfossi, í spjalli við Neytenda- síðuna. ,,Ég bý hér í 130 fermetra íbúð og borga 953 krónur fyrir rafmagn og hita í tvo mánuði. Sonur minn sem býr í piparsveinablokkinni á Eskifirði sagði mér hins vegar að þau hefðu þurft að greiða 3.630 krónur fyrir 108 fm íbúð í jafnlangan tíma. Sonur minn og kona hans eru barnlaus og vinna úti allan daginn. Drekka bæði morgun- og eftir- miðdagskaffi í vinnunni. Og ég held að piparsveinablokkin sé vel einangruð,” sagði Regína. „Þetta er alveg svakalegur munur og þó er þetta ekki stærsta dæmið sem ég veit um. Ég fór á fund með Steingrími og fleiri ráðamönnum þegar ég var á- Ströndum og þá stóð upp ráðsettur maður, Guðmundur Valgeirsson. Hann sagðist hafa hlakkað mikið til að fá rafmagnið. Núna sæi hann ekki fram á annað en loka fyrir það. Rafmagnið væri of dýrt til að nota það. Ég held að það sé alveg rétt sem einhver verkalýðsforingi á Vest- fjörðum sagði að það ætti að koma upphitunarkostnaði úti á landi inn í samningana,” sagði Regína. Þá sagði hún að ennþá væri unnið af fullum krafti í fiskinum á Selfossi og væri ekki annað að sjá en allt gengi vel. -ELA. .Kegina er onress meö verðmismuninn á rafmagninu á Selfossi og á Eskifirði. Myndin sýnir lagningu rafmagnslinu. Hvaó þurfti ég aðgetaídagr Fisksalar i Reykjavfk vinna nótt og dag við að aka milli Reykjavfkur og hafnarstaða úti á landi, i þeirri von að fá nýjan fisk fyrir viðskiptamenn sfna. Slegizt um hverja ýsu á höfnunum hér í kring: EINN FISKSALINN SÆKIR FISK VESTUR A SNÆFELLSNES —og konumar hamstra í f rystikisturnar Nýr fiskur er sjálfsagt aldrei ljúf- fengari en einmitt eftir stórhátíðar. Það var því hálfgert áfall fyrir margar fjölskyldurnar þegar í ljós kom að flestallar fískbúðir í bænum eru lokaðar þessa dagana. Þó deyja ekki aUir fisksalar ráðalausir og sumir gátu boðið upp' á glænýjan fisk þrátt fyrir verkfaU og fiskleysi. Fiskbúðin Hafrún í Skipholti auglýsti t.d. mikið úrval af nýjum fiski 1 fyrra- dag og einstaka fleiri verzlanir. Eigandi Hafrúnar, Magnús Sigurðsson, gerði sér líka ómak til að ná í fiskinn. Hann ók sem leið lá vestur á Snæfellsnes eftir honum. Þá munu einhverjir físksalar hafa farið á hafnirnar hér 1 kring, Þorlákshöfn, Sandgerði og viðar, en á þeim stöðum var að sögn slegizt um hverja ýsu. Fisksalar þeir sem DV ræddi við voru á einu máli um að á næstu dögum yrði erfiðara að ná í nýjan fisk og margir físksalar myndu því neyðast til að loka búðum sínum. { þeim fískbúðum sem opnar voru í fyrradag og í gær hefur yerið stanzlaus ös. Var á mörgum að sjá að frystikistuna ætti að fylla af fiskinum meðan hann fengist. -ELA. DANSSKOLI Siguróar Hákonarsonar ALLIR ALMENNIR DANSAR ATH. einnig rock — stepp — dömubeatog fleira KENNSLUSTAÐIR: Félagsheimili Víkings v/Hæöargarð Þróttheimar v/Sæviðarsund Félagsheimili Kópavogs v/Fannborg 2 Kennsla hefst frá og með 11. janúar. Innritun og upplýsingar í símum 41557 og 74651 milli kl. 10 og 19. SÍÐASTIINNRITUNARDAGUR DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS DSÍ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.