Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1982, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1982.
11
„Prestsstörfin eru
köllun hjá mér’
—segir sr. Sigurður H. Guðmundsson, p* to
Víðistaðasóknar og formaður Öldrunarráðs
„Meginmarkmiðið með stofnun
öldunarráðs var að skapa samstarfs-
vettvang fyrir þá aðila sem vinna að
málefnum aldraðra, þannig að vinnan
nýtist betur og kraftarnir sameinist,”
sagði séra Sigurður H. Guðmunds-
son, formaður nýstofnaðs öldrunar-
ráðs.
öldrunarráð íslands samanstendur
af 28 félagssamtökum og stofnunum,
sem á einhvern hátt vinna þjónustu-
störf við aldraða og starfa með
öldruðum. Það var stofnað síðastliðið
haust.
„Afskipti mín af málefnum
aldraðra hófust fyrir alvöru eftir að ég
fór með séra Páli heitnum Þórðarsyni
til Skotlands 1978. Sr. Páll var þá að
kynna sér málefni aldraðra og
æskulýðsmál í Skotlandi og í ferðinni
fékk ég mikinn áhuga á þessum mála-
flokki. Nú, svo hafði ég skrifstofu og
mína aðstöðu sem prestur Víðistaða-
sóknar í Hrafnistu í Hafnarfirði.”
Að loknu landsprófi fór sr.
Sigurður í Samvinnuskólann. Að
námi loknu þar fór Sigurður heim til
Sauðárkróks, en Sigurður er fæddur á
Króknum.
,,Ég kenndi í tvö ár og vann
jafnframt við bæjarútgerðina á
Sauðárkróki, en ákvað svo að fara i
menntaskóla haustið 1961.
Það var svolítið erfitt á þessum
árum að hafa sig upp í að hefja nám á
nýjan leik — hafa sig upp úr
straumnum, kominn þetta á þrítugs-
aldurinn. Ég sat meira að segja á skóla-
bekk með nokkrum gömlum
nemendum mínum.”
— Ætlaðirðu þér þá að verða
prestur?
„Nei, til að byrja með stefndi ég að
því að fara út í nám í raunvisindum. Ég
kenndi til að mynda stærðfræði meðan
ég var í Menntaskólanum á Akureyri.
Svo má segja að ég hafi fengið köllun
og ákvað að fara í guðfræði.”
Sigurður lauk prófi úr
guðfræðideild Háskóla íslands árið
Sr. Sigurður H. Guðmundsson, prestur i Vfðistaðasókn og formaður öldrunarráðs.
vinnudag. Frístundir gefast helzt inn á
milli þjónustustarfa. Þá les ég mikið
eða vinn að félagsstarfsemi.”
Séra Sigurður H. Guðmundsson býr
'í Hafnarfirði ásamt konu sinni,
Brynhildi Ósk Sigurðardóttur, og
þremur börnum þeirra.
-ATA
1970 og viku seinna vígðist hann til
Reykhóla. Að Reykhólum var sr.
Sigurður í tvö ár, en fór þaðan til
Eskifjarðar og sat þar í fímm ár. Siðan
hefur sr. Sigurður verið prestur í
Víðistaðasókn.
— Hvað gerir þú f tómstundum?
„Prestar hafa langan og óreglulegan
VIÐTALIÐ:
„Sultarlaun” íatvinnuleysinu:
Fullar bætur eru
253.52 kr. á dag
„Það er óskað eftir þessari at-
vinnuleysisskráningu til að fá heildar-
mynd af ástandinu. Sjómannaverk-
falliö kemur við það marga að það
gjörbreytir öllum tölum og áætiunum
sem við höfðum,”sagði Óskar Hall-
grlmsson hjá Vinnumálad’eild félags-
málaráðuneytisins í viðtali við DV i
gær.
Flestir hafa þegar látið skrá sig á
atvinnuleysisstyrk af þeim sem sagt
var upp hjá frystihúsunum fyrir ára-
mót. Eiga þeir von á fyrstu greiðsium
nú i lok þessarar viku.
Við spurðum Óskar að þvi hvað
hver maður ætti rétt á miklum bót-
um.
„Þaö fer eftir því hvað mörgum
vinnustundum viðkomandi hefur
skilað á siðustu 12 mánuöum, ” sagöi
hann. „Sá sem hefur unnið 1700
stundir eða meir á rétt á fullum bót-
um. Þær eru 253,52 krónur á dag.
Minnstu bætur eru fjórðungar af
þeirri upphæð, en til þess að fá þær
verður viðkomandi að hafa skilað
minnst 425 vinnustundum á síðustu
12 mánuðum.
Almenn skerðingarákvæði voru
felld niður á miðju siöasta ári. Nú fá
hjón bæði fullar bætur og auk þess
10,14 krónur á dag með hverju barni
undir 17áraaldri.”
Óskar taldi að það þyrfti að leita
aftur til áranna 1968 til 70 til aö finna
hliðstæður i þeim bótagreiðslum sem
nú yrði að inna af hendi. Ef verk-
fallið myndi dragast á langinn mætti
búast við enn fleirum i hópinn. Neta-
gerðamenn, vörubílstjórar, flutn-
ingaverkamenn og fleiri aðilar tengd-
‘ir fískiðnaði um allt land yrðu þá at-
vinnulausir og þeir yrðu iíka að fá
styrk úr atvinnuleysistryggingasjóði.
-klp-
Grund greiðir uppbót
um miðjan mánuðinn
,, Við höfum aldrei neitað að borga jng j fréttum á aðfangadag. Ég vissi
þetta. Annað er ekki rétt. Aðalheiður ekki að þetta stæði til. Samninginn sá
Bjarnfreðsdóttir hlýtur að hafa mis- ég fyrst i gærmorgun og skrifaði þá
skilið eitthvað,” sagði Guðrún Gísla- undir. Það stóð aldrei á okkur.
dóttir, starfsmannastjóri elliheimilis- Ég veit ekki til þess rikið né borgin
ins Grundar í gær vegna fréttar í hafí greitt þetta ennþá en býst við þvi
blaðinu um desemberuppbót tii að þau geri það fljótlega. Við munum
Sóknarkvenna. Nemur uppbótin greiða þetta um miðjan mánuðinn,”
1.825 krónum. sagði Guðrún Gísiadóttir.
„Ég heyrði fyrst um þennan samn- -KMU-
Nýr f lugvöllur við Hvammstanga
Hönnun nýs flugvallar við
Hvammstanga er nú langt komin.
Vindmælingar hafa staðið yfir og
hefur þegar verið mælt fyrir 800
metralangri braut.
I Nýi flugvöllurinn verður rétt
norðan við þorpið. A hann að koma í
staöinn fyrir flugvöll á Krókstaða-
melum i Miðfirði, sem þjónað hefur
sem flugvöllur fyrir Hvammstanga.
Sá flugvöllur er hins vegar í um 20
kUómetra ijarlægð frá þorpinu.
Þessi mikia fjarlægð hefur án efa
átt sinn þátt í þvi að reglubundnu
áætiunarflugi er ekki haldið uppi til
Hvammstanga. Arnarflug hefur sér-
ieyfi á flugleiöinni Reykjavík-
Hvammstangi. -KMU-
Hveijir .
veroo
eii
eppnu
• ISUZU GEMINi
DREGIÐ 27. JANÚAR
VERÐ KR. 102.000,-
• OPEL KADETT
DREGIÐ 28. JÚLÍ
VERÐ KR. 132.000,-
• SUZUKIJEPPI
DREGIÐ 28. APRÍL
ÁSKRIFTASfMI 27022