Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1982, Side 14
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1982.
Iðnaðarhúsnæði
óskast
/ Hafnarfirði eða Kópavogi
Æskileg stærð 150—200 ferm.
Lofthæð iþarf að vera 4—5 metrar og stórar innkeyrslu-
dyr. Þarf ekki að vera fullbúið. Uppl. í síma 26800 milli kl.
3 og 5 í dag og næstu daga.
JL húsið - Framtíðarstarf
Starfsmaður óskast í rafdeild.
Vinnutími: mánudaga-miðvikudaga kl. 9—18, fimmtudaga
kl. 9—20, föstudaga kl. 9—22, laugardaga kl. 9—12.
Upplýsingar gefur deildarstjóri.
Jli
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í stjórn- og
liðabúnað, rafgeyma og hleðslutæki fyrir aðveitustöðvar.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík frá og með föstu-
degi 8. janúar 1982 og kosta kr. 50.00 hvert eintak.
Tilboðum skal skila til skrifstofu Rafmagnsveitna rikis-
ins fyrir kl. 14.00 þriðjudaginn 16. febrúar 1982 merkt
RARIK 82001 og verða tilboðin þá opnuð að viðstöddum
þeim bjóðendum er þess óska.
Reykjavik 5. janúar 1982.
Rafmagnsveitur ríkisins.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu skattheimtu rikissjóðs i Kópavogi, bæjarsjóös Kópavogi,
Gjaldheimtunnar f Reykjavík, Jóhannesar Jóhannessen hdl., Gunnars
Guðmundssonar hdl., Guðmundar Jónssonar hdl., LJtvegsbanka tslands,
Gylfa Thorlacfus hrl., Brynjóifs Kjartanssonar hrl. og Tollstjórans I
Reykjavfk verða eftirtaldar bifreiðir seldar á nauðungaruppboði, sem
haldið verður við bæjarfógetaskrifstofuna í Kópavogi að Auðbrekku 57,
fimmtudaginn 14. janúar 1982 kl. 16.00. Verður uppboði sfðan framhaldið
á öðrum stöðum þar sem munir eru.
Z—1433 Y—326 Y—852 Y—924
Y—995 Y—1014 Y—1502 Y—1586
Y—2015 Y—2302 Y—2399 Y—2501
Y—2740 Y—2961 Y—3616 Y—4140
R—47495 Y—4519 Y—4680 Y—4837
Y—4947 Yd-54 R—70981 Y—5769
Y—6077 Y—7292 Y—7342 Y—7416
Y—8057 Y—8101 Y—8214 Y—8638
Y—8661 Y—8856 R—38934 Y—9302
Y—9716 Y—9755 Y—9988 Y—10015
Y—10016 Y—10070 Y—10253 E—2566
G—3869 G—11143 G—11246 1-4116
R—31345 R—36451 X—3193 R—45415
R—61905 Payloader ámokstursvél óskráð Duster ’70, fólksbifreið og ótollafgreidd Volvo ’75, fólksbifreið
skemmd eftir umferðaróhapp.
Uppboðsskilmálar liggja frammi á skrífstofu uppboðshaldara.
Greiðsla farí fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu skattheimtu ríkissjóðs f Kópavogi, bæjarsjóðs Kópavogs,
Gjaldheimtunnar f Reykjavfk, Verslunarbanka tslands, Þorsteins
Eggertssonar hdl., Hákonar H. Krístjónssonar hdl., Magnúsar Þórðar-
sonar hdl., Þorvaldar Lúðvfkssonar hrl., Gunnars Guðmundssonar hdl.,
Ásgeirs Thoroddsen hdl., Páls A. Pálssonar hrl., Benedikts Sigurðssonar
hdl., Jóns Finnssonar hrl., Ólafs Thoroddsen hdl. og Gylfa Thorlacius
hrl., verða eftirtaldir lausafjármunir seldir á nauðungaruppboði, sem
haldið verður á bæjarfógetaskrifstofunni f Kópavogi að Auðbrekku 57,
Kópavogi, fimmtudaginn 14. janúar 1982 kl. 14.00.
Verður uppboði sfðan framhaldið á öðrum stöðum, þar sem munir eru.
I. Yamaha hljómflutningstæki, Spectra sjónvarpstæki, 2 sófasett,
Kenwood hljómflutningstæki, Sanyo litasjónvarp, Hitachi lita-
sjónvarp, Sony og Marantz hljómflutningstæki, Grundig
plötuspilari, Superscope seguiband.
II. Vohlenberg þrískeri, Polograf saumavél, Rafha hitaskápur, Egg plast-
formunarvél, bandsög, rafsuðuvél, loftpressa, 2 hjólsagir, Silver-Reed
rafmagnsrítvél, King gráðusög, frystikista, peningakassi,
spónlagningarpressa, 2 þykktarheflar, spónsög, bandslfpivél, sildar-
flökunarvél, kæUklefi, þvottavél, rafmagnsritvél, reiknivél, bókhalds-
vél, 13 fjölrítarar, 2 4000 Utra stáltankar, sprautuklefi, 3 Sharp
peningakassar, afréttarí, fræsarí, pússvél.
III. Margskonar barna- og dömufatnaður.
Uppboðsskilmálar Uggja frammi á skrifstofu uppboðshaldara.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn f Kópavogi.
Menning Ménning Mennin
Um jarðnesk öfí
og ójarðnesk
Erlendar bókmenntir á árinu
Áramót eru tími uppgjörs á sem
flestum sviðum. Við stillum okkur
upp fyrir framan spegilinn, bókstaf-
lega eða í huganum, spyrjum okkur
sjálf samviskuspurninga og heitum
því að hætta hinu og þessu sem ku
vera lífshættulegt: að reykja, drekka
og borða feitt kjöt. Að þvf loknu
getum við e.t.v. leyft okkur að líta á
bjartari hliðar þess árs sem er senn
hlaupið frá okkur, — ef einhverjar
eru.
Meðal okkar sem þykjumst hafa
það að köllun eða atvinnu að lesa
bækur, eru ánægjulegustu stundir
liðins árs oftar en ekki nátengdar
góðum bókum.
Á þessum vettvangi verður ekki
reynt að gera úttekt á íslenskri bóka-
útgáfu á því herrans ári 1981, enda
varla tímabært. Hins vegar er undir-
ritaður fús til að gera upp við sig hér
og nú hvaða erlendar bækur veittu
honum mesta ánægju á árinu, telji sig
einhver hafa gagn eða gaman að
slíkri upptalningu.
Líklegt þykir mér að hver og einn
reyni að „fylgjast með” á sínu sviði,
þótt í sumum tilfellum sé það nánast
ógjörningur. Ekki bætir úr skák
þegar lesandinn, t.d. sá sem þetta
skrifar, er haldinn óstjórnlegri for-
vitni um hin ólíkustu málefni sem
lofsöng en gagnrýni. 1 Menningar-
stofnun Bandarikjanna er einnig að
finna glæsilega myndabók um aðra
ágæta listakonu, Louise Nevelson, en
því miður með gagnslitlum texta.
Umfram allt
ævisögur
Fyrir þá sem kunna að meta vel
skrifaða sagnfræði, get ég heilshugar
mælt með bók bandaríska rithöfund-
arins Robert Massie um Pétur mikla.
Massie, sem áður skrifaði um þau
hjónin Nikulás og Alexöndru, hefur
sannast sagna lítið nýtt fram að færa
Bókmenntir
Aðalsteinn Ingólfsson
um hinn stórbrotna rússneska jöfur,
en samantekt hans um ævi Péturs er
hreint afbragð og beinlínis hörku-
spennandi. Þeir sem áhuga hafa á
„alvöru” njósnasögum, gætu gert
margt verra en aö lesa bók Josephs E.
Perslco, Piercing the Reich, um tilurð
fyrstu leyniþjónustu Bandaríkjanna,
einnig sérstök að sínu leyti, m.a.
sökum þess að sá sem fjallað er um
varð ekki langlífur, tæplega hálf-
fertugur, og lét lifið með heldur
óhugnanlegum hætti. Sambýlis-
maður hans barði hann í köku, með
hamri í afbrýðiskasti, og fyrirfór sér
eftirá. Lahr byrjar á því að rekja að-
dragandann að þessu morði, en
vindur sér út í æviferil Ortons að því
loknu. Sá ferill var enginn dans á
rósum og einkenndist mjög af fremur
ruddalegri kynvillu sem höfundur
skirrist ekki við að Iýsa.
En ekki get ég að því gert að ein
þessara bóka er mér minnisstæðari en
hinar, nefnilega The Duke of
'Deception eftir Geqffrey Wolff.
Þessi falsgreifi sem titillinn vísar til er
faðir höfundar sem alla tíða var syni
sínum hinn mestu öðlingur. Hins
vegar var hann einnig landsþekktur
svikahrappur, flagari og fjárglæfra-
maður og í bók sinni reynir höfundur
að horfast í augu við föður sinn eins
og hann var, með öllum sínum
kostum og göllum. Það uppgjör
reynist býsna sársaukafullt, ekki síst
fyrir það að sonurinn kemst að því að
hann er óþægilega likur föðurnum.
Krimmar
og grín
Það eru fáir sem ekki grípa til reyf-
ara eða æsibókmennta einhvern
tímann á árinu og undirritaður er þar
engin undantekning. Nýjustu bók
meistara Erics Ambler, The Care of
Time, las ég upp til agna, sömuleiðis
nýja bók annars snillings á þessu
sviði, Patriciu Highsmith, og nefnist
hún The Boy who followed Ripley.
Ég komst í kynni við ágætan höfund
sem ég ekki þekkti til áður, Ross
Thomas að nafni, og las allt sem ég
komst yfir eftir hann. Það er snertur
af Raymond Chandler í þessum
Thomas, þar að auki vaða uppi
skrýtilegar sögupersónur og óprúttn-
ar í bókum hans. En allt gengur þetta
upp.
Ég veit ekki hvort það hefur
nokkuð upp á sig að flokka grín sér-
staklega, en þó verð ég að nefna tvær
bækur sem kitluðu svo á mér hlátur-
taugarnar að ég var ekki í húsum
hæfur nokkur kvöld, eða þangað til
ég lánaði konunni þessar bækur.
önnur var ritgerðasafn Woody
Allens, Side Effects, ekta New York
húmor, hin var sjálfsævisaga breska
menningarvitans Clive James, Unre-
liable Memoirs, en þar segir höfund-
ur frá uppvaxtarárum sínum í Ástra-
líu og hlær mest að sjálfum sér.
I
1
hægiega kemur i veg fyrir sérhæf-
ingu.
Fræðimennska
og skautahlaup
Satt að segja las ég ekki nema tvær
nýlegar bækur listsögulegs eðlis á ár-
inu, en ég get fullyrt að hafi opnað
fyrir mér nýjar gáttir. Önnur þeirra
var Romanticism eftir breska list-
fræðinginn Hugh Honour (Penguin)
sem inniheldur fersk sjónarmið um
einkenni rómantikur i myndlist og
hefur það ennfremur til síns ágætis
að hún fjallar um þessa „stefnu” i
heild sinni, en ekki eftir landa-
mærum. Hin bókin er gjörólík, meira
í ætt við listsögulega blaðamennsku
og heitir Off the wall eftir Calvin
Tompkins. Fjallar hún um ævi og
feril bandaríska málarans Robert
Rauschenberg og opinberar ýmsar
merkilegar staðreyndir um marga þá
sem innvígðir eru í bandarískt listalíf.
Þótt höfundur skauti mikið á yfir-
borðinu, er engu að síður gagn og
gaman að bókinni og umfram allt er
hún lipurlega skrifuð.
Fyrir þá sem hafa áhuga á konum í
listum get ég bent á bók eftir banda-
ríska blaðakonu, Laurie Lisle, um
listakonuna Georgia O’Keefe, en vil
þó taka lesandanum vara fyrir því að
höfundur hefur ívið meiri áhuga á
OSS, og þátttöku hennar í síðari
heimstyrjöld.
Á árinu 1981 las ég umfram allt
margar ágætar ævisögur: Charmed
Lives eftir Michael Korda, Camus
eftir Herbert Lottmann, The Duke of
Deception eftir Geoffrey Wolff, ævi
leikritahöfundarins Joe Orton eftir
John Lahr, ævi Samuel Becketts eftir
Deidre Blair, rithöfundarins John
Dos Passos eftir Hunter Ludington
og W. Somersets Maugham eftir Ted
Morgan. öllum þessum bókum get ég
mælt með af öllu hjarta, svo ólíkar
sem þær annars eru. Ævisögur þeirra
Camus, Becketts, Johns Dos Passos
og Maughams eru með tiltölulega
hefðbundnu sniði og fylgja
viðteknum háttum í gagnasöfnun og
uppsetningu. Bók Michaels Korda er
sérstök fyrir það að hún fjallar um
þrjá bræður og náfrændur höfundar,
sem áttu stóran þátt i því að gera
Bretland aö stórveldi í kvikmynda-
gerð á árunum fyrir síðara stríð.
Stórbrotnastur þessara bræðra var án
efa „mógúllinn” Alexander Korda,
síðar „Sör” Alexander, sem ávallt
virtist hafa lag á að lifa eins og
kóngur, jafnvel þótt hann ætti ekki
grænan eyri á stundum.
Bókin um
falsgreifann
Bók Johns Lahr um Joe Orton er
Nýuppgötvaðir
höfundar og nýir
Hvað svo um alvörubókmenntir
ársins? Ja, hvað um þær? Margt af
því sem hér hefur verið nefnt mundi
ugglaust flokþast undir slíkar bók-
menntir. Merkur höfundur og nú
látinn var dreginn fram í dagsljósið í
Bretlandi fyrir tveim árum síðan,
Barbara Pym heitir manneskjan og
nokkrar bækur hennar las ég á árinu
og hafði mikla ánægju af. Ekki hafði
ég heldur hugboð um hve firnagóður
rithöfundur J.G. Farrell var, fyrr en
ég las allar þær skáldsögur hans sem
til eru í pappírskilju á miðju vori.
Minnir mig að ég hafi lofsungið þær í
DB um svipað leyti. Ungur Banda-
rikjamaður, Ambrose Clancy, skrif-
aði nýlega einhverja bestu skáldsögu
sem ég hef lesið um vargöldina á ír-
landi, Blind Pilot heitir hún. í seinni
tíð minnist ég heldur ekki betri bókar
um Borgarastyrjöldina í Bandaríkj-
unum en þeirrar sem ástralskur höf-
undur, Thomas Keneally, hefur
skrifað og kallast Confederates.
Ég skammast mín fyrir að hafa
ekkert lesið eftir Walker Percy fyrr
en á árinu 1981. Þá barst upp í hend-
urnar á mér afburða góð skáldsaga
eftir hann er nefnist The Second
Coming og er á yfirborðinu um náið
samband lífsþreytts bisnissmanns
og ungrar hippastelpu. Grannt
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 1982.
15
Menning Menning Menning f§ CASIO BASIC-TÖLVA
Bankastræti 8 — Sími 27510
Til forráðamanna grunnskóla — héraðsskóla og annarra sem hug hafa á að fá danskennslu í
sitt byggðarlag. Við tökum að okkur danskennslu — námskeið eftir samkomulagi. Leitið
nánari upplýsinga.
NÝl bMMÓUNN
Ý
Dans
Getum bætt við okkur fáeinum nemendum í Reykjavík
og Hafnarfirði núna í næsta kennslutímabil, sem hefst í
janúar.
Takmörkum nemendafjöida
íhvern tíma
Innritun þessa viku kl. 12—18 í síma jj^2996
Kennum
barnadansa — gömlu dansana — samkvæmisdansa —
rokk- og diskódansa.
breska rithöfundarins D.M. Thomas
áður en bandarískir gagnrýnendur
hófu hann til skýjanna fyrir rúmu ári
fyrir bókina The White Hotel. Mér
segir svo hugur að ekki hafi þeir verið
margir. Áður hafði Thomas gefið úr
tvær skáldsögur, Birthstone og The
Flute-Player og fjórar ljóðabækur,
auk þess sem hann hefur þýtt mikið
af skáldskap rússnesku skáldkonunn-
ar önnu Akhmatovu. The White
Hotel er gjörólík öllum öðrum skáld-
sögum sem ég hef lesið, í rauninni
nær ljóði en sögu. Eins og Burgess
notar Thomas raunverulega atburði
og þekktar persónur til að hengja
söguþráð sinn á, aðallega sjálfan
föður sálarfræðinnar, Sigmund
Freud. Og ef bregða ætti mælistiku
raunsæis á þessa einstöku bók, mætti
segja að hún „gerðist” á árunum
1910—1942.
En það er fleira líkt með doðrant-
inum hans Burgess og verki Thomas-
ar, nefnilega skýlaus trúnaður höf-
unda við siðferðileg lögmál húman-
ismans. Þeir stilla upp góðleika
mannsins og lifsþorsta annars vegar,
hins vegar nær takmarkalausri
eyðingar- og sjálfseyðingarhvöt hans
á þessari öld og reyna að grafast fyrir
um hvernig þetta tvennt geti farið
saman. Burgess gefur í skyn að hið
„illa” hafi gegnsýrt nútímann og
stjórni gerðum mannsins, sem er allt
að því trúarleg útskýring, en Thomas
leitar svars í manninum sjálfum.
Maðurinn hefur ætíð haft jafn
sterkar hvatir til lífs og dauða, segir
Thomas, hins vegar hefur nútíminn
gert honum kleift að svala þessum
hvötum með áhrifameiri hætti en
áður var hægt.
Söguþráður The White Hotel er í
sjálfu sér ekki flókinn. Freud fær til
meðferðar unga konu af Gyðingaætt-
um, Lísu Erdmann, og það er að
hluta til i hugarheimi hennar sem við
ferðumst gegnum bókina. í sál
hennar (sem er e.t.v. sjálft hvíta hót-
elið) togast á ást og losti, blíða og
ruddaskapur, raunsæi og óstjórnlegt
hugarflug og það er í þeim spegli sem
lesandinn neyðist til að horfast í augu
við eigin hvatir. En sögu Lisu lýkur
ekki þótt leiðir þeirra Freuds skilji.
Hún á sér langan feril sem óperu-
söngvari, giftist rússneskum söngv-
ara og flytur til Kiev með honum. Þar
er það sem sturluð veröld nasismans,
eyðingarmáttur mannsins, heldur
innreið sína og í næstum óbærilegum
kafla fylgjumst við með endalokum
Lísu og stjúpsonar hennar við Babi-
Yar. En aftan við þann kafla eru
gefin fyrirheit um endurlausn: við
erum aftur stödd í námunda við
hvíta hótelið, á ódáinsökrum þar sem
lífið hefu haldið gildi sínu.
AI/Lundi.
LAUSAR STÖÐUR
Tvær styrkþegastöður víð Stofnun Árna Magnússonar eru lausar til umsóknar.
Laun samkvsmt launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrrí störf sendist mcnntamálaráðuneytinu
Hverfisgötu 6,101 Reykjavik, fyrír 1. febrúar nk.
M enn tamálaróðuneytiö, 4. janúar 1982.
Útboð - innanhússfrágangur
Tilboð óskast i innanhússfrágang tveggja parhúsa úr timbri
í Vík í Mýrdal. Um er að ræða innveggi, innréttingar, lagn-
ir, tæki, málun, gólfefni o.fl.
Útboðsgögn eru afhent á teiknistofunni Óðinstorgi,
Óðinsgötu 7 Reykjavík, og hjá Hvammshreppi, gegn 2000
kr. skilatryggingu og verða tilboðin opnuð fimmtudaginn
21. janúar.
Stjóm verkamannabústaða, Vík.
Vegna
50ára
afinœlisHf. Skallagríms
þann 23. janúar nk. hefur stjóm félagsins ákveðið að láta
skrifa sögu þess.
Þeir sem kunna að eiga í fórum sínum myndir af skipum
félagsins eða atburðum tengdum rekstri þeirra eru vinsam-
lega beðnir að lána þær félaginu.
Skrifstofa félagsins er að Vesturgötu 50, Akranesi, póst-
hólf 34,300 Akranesi, sími 93-1095.
Stjórn félags Hf. Skallagríms.
En væri mér stillt upp við vegg og
ég neyddur til að láta í ljós skoðun á
þvi hver eða hverjar væru bestu
skáldsögur sl. árs, mundi ekki standa
ámér:
Earthly Powers eftir Anthony
Burgess og The White Hotel eftir
D.M. Thomas, sem báðar eru
komnar út i Penguin. Varla gerist
þörf á að rekja feril Burgess sem er
einhver mesta hamhleypa sem nú
skrifar, ekki bara á ensku. Frá 1960
hefur hann skrifað á þriðja tug
skáldsagna, kvikmynda og sjón-
varpshandrit, kennnslubækur um
bókmenntir og er þar að auki tón-
skáld og reglulegur bókmenntagagn-
rýnandi blaða og tímarita í Englandi.
Þekktastur var Burgess lengi vel fyrir
A Clockwork Orange sem Kubrick
kvikmyndaði, en nú eru flestir á
þeirri skoðun að með Earthly Powers
hafi hann markað sér bás innan
enskra bókmennta svo um muni.
Bókin er allt í senn, saga tuttugustu
aldar þar sem fyrir koma Mussolini,
Himmler, Gertrude Stein, T.S. Eliot
og aðrir þeir sem settu mark sitt á
vora tíma, saga hins kynvillta rithöf-
undar Kenneth Toomey (sem minnir
um margt á W. Somerset Maugham)
og tengsl hans við þá persónu sem
framar öðrum mótar söguna, séra
Carlo Campanati, síðar páfi (og
minnir á hans heilagleika, Jóhannes
23ja). En hér er ekki tæpt á sagn-
fræðinni einni, heldur og öðrum
þeim fræðum sem nútímamaðurinn
verður að burðast með: sálarfræði,
fagurfræði, mannfræði, málvísindi
o.s.frv. Öll eru þessi fræði eðlilegur
partur af textanum, eru til umræðu
persónanna á meðal eða bregður fyrir
i hugskoti sögumanns, Toomey. Þó
er varla hægt að láta sér sjást yfir
hrygglengjuna í verkinu, díalóginn
um efnið og andann og einkum og
sérílagi hugleiðingar höfundar um
eðli góðs og ills, þar sem hið illa er á
góðri leið með að ná yfirhöndinni,
sjá Auschwitz. í ofanálag er svo bók-
arskrattinn bráðfyndinn.
Nær Ijóði
en sögu
Ekki veit ég hve margir þekktu til
BASIC forritunarmál, GOTO, IF, FOR NEXT, GSB,..
ÖU algengustu roiknrföll innbyggð.
pw Allt að 1680 forrttunarskref og 226 minni.
rA— /UZr Þægileg í notkun: DEL, INS,...
Möguleiki á tengingu við kasettuminni-
og FP-10 prentara.
Minniskubbar (ROM) fáanlegir
á næstunni.
Rafhlððumar endast 1240 klst.
D. M. Thomas.
skoðuð er þessi bók öllu heldur um
leit tveggja örvinglaðra sálna að and-
legri endurlausn i brjáluðum heimi.
Leiðinlegasta
bók ársins
Og lítt þekktur breskur höfundur,
Margaret Forster, sem reyndar er
höfundur bókar sem varð að kvik-
mynd: Georgy Girl, skrifaði ágæta
skáldsögu, Mother, dan you hear me,
um efni sem nú er mikið í tísku, sam-
band móður og dóttur. í höndum
þessa höfundar gerir þetta samband
næstum út af við þær báðar.
Hvað annað rak svo á fjörur
mínar? Jú, tvær nýjustu skáldsögur
Beryl Bainbridge, Another Part of
the Wood (sem er reyndar gömul
skáldsaga, endurskrifuð) og Winter
Garden, báðar sneisafullar af íróníu
þeirri og meinfyndni sem þessi ágæti
höfundur er þekktur fyrir. Þó ekki
sambærilegar við fyrri skáldsögur
hans. Svo að ég var næstum búinn að
gleyma mikið umtalaðri bók sem ég
vil endilega útnefna leiðinlegustu bók
ársins á enskri tungu, Thy Nigh-
bour’s Wife eftir Gay Talese. Það
þarf mikla vöntun á kímnigáfu til að
steypa sér út í efni af þe$su tagi, kyn-
lífsbyltinguna í Bandarikjunum
síðastliðin 30 ár, og sjá ekki í henni
svosem einn lítinn brandara. En þetta
tekst Talese.
Saga
nútímans