Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1982, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1982, Blaðsíða 18
DV. — HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982. MimMBWBmwmiriiir Það brakar í stiganum þegar haldið er upp gamlan tréstiga upp í stofu á efri hæð rauða hússins við Bókhlöðu- stiginn. Borðið er hringlaga og unnið úr tré og margar hillur eru fullar af bókum. Ein þeirra heitir Ljóð og fékk menningarverðlaun blaðsins á dögunum. Höfundur hennar Vilborg Dagbjartsdóttir er í helgarviðtali. Landslagið „Ég er orðin hundgömul, enda ólst ég upp í fornöld og gerði mér skó úr blásteinslituðu sauðskinni og átti gráa klukku með marglitum randa- bekk að neðan. Ég fæddist á Vestdalseyri við Seyð- isfjörð árið 1930, dóttir Erlend- ínu og Dagbja.is á Hjalla. Nú er Vestdalseyri konun í eyði. Á bernsku- dögum minum var þar fallegt þorp. Á Seyðisfirði er hrikafagurt. Landslagið þar hefur greypzt mér svo í minni að allir mínir draumar gerast þar. Það er sama hvar þeir gerast, umhverfið er alltaf þaðan. Kannski er þetta ekkert undarlegt, ég var orðin tólf ára þegar ég fyrst kom út úr firðinum. Ég var svo hissa að ég trúði ekki minum eigin augum. í rauninni hélt ég að ekkert væri á bak við fjöllin. Litlar stúlkur risla sér heima. Þær fara ekki langt, ef til vill upp i árgil að tína blóm, á berjamó, niður í fjöru að fleyta kerlingar ellegar inn í dal að færa engjafólkinu kaffi. Aftur á móti fara strákarnir í göngur og á rjúpnaveiðar upp um öll fjöll, þeir sjá yfir Héraðið. Svo fara þeir á sjó og þekkja miðin. Þeir venjast þvi frá blautu barnsbeini að kanna heim- inn i kringum sig. Það er engin furða þó karlmenn- irnir eigi betra með að henda reiður á hlutunum! Stjömumar Ég er svo heimsk að ég hef aldrei getað lært áttirnar, segi bara upp eftir, niður eftir, út eftir og inn eftir. Svona er að ala aldur sinn í þröngum firði.Jafnvel himirminn og stjörnurn- ar hérna fyrir sunnan eru mér fram- andi. Ég hef ekkert til að miða við, fjöllin eru svo langt í burtu. Má rekja upphaf skáldskapar þíns til hins þrönga landslags á Aust- fjörðum? „Já, það hlýtur að mega gera það. Enginn hlutur sprettur af sjálfum sér. Umhverfið og uppeldið hefur áhrif á allar gjörðir manns. Ég ólst upp við sagnaskemmtun í eldhúsinu. Móðir min vay mikill fræðasjór og kunni ókjör áf kveð- skap. Amma min, Guðríður Páls- dóttir, fædd 1859, var á heimilinu. Hún dó þegar ég var sjö árá. Það var gaman þegar amma var að spinna að fá að halda ,i smalann og hlusta á hana segja frá. Mig langaði einlægt til að þóknast ömmu minni, en henni gramdist að ég hét ekki í hennar ætt. Hún kallaði mig slettireku eða skelli- bjöllu. Svona hugsaði gamla fólkið þá. Forfeður Pabbi var fæddur á Hjalla en for- eldrar hans komu frá Vestmanna- eyjum. Forfeður þeirra flýðu undan eldinum 1783. Eins og ég sagði áðan, þá er ég alin upp í fornöld við lifandi minningu um Tyrkjaránið og móðu- harðindin. Pabbi sagði ævinlega þegar ég vildi ekki borða grautinn: „Guð hjálpi þér, Bogga, i móðuharð- indunum átu menn skóbætur!” Mér er minnisstætt atvik sem gerðist þegar ég var litil. Það var um sumar í dandalaveðri. Föðursystur minar voru að þvo stórþvolt. Allt i einu datt á biindþoka og sjáum við þá ekki hvar kemur ógurlega stórt skip út úr þokunni. Frænkur mínar urðu skelfingu loslnar og ein fórnaði höndum og hrópaði upp yfir sig: ,,Guð almáttugur, þetta er þó ekki Hundtyrkinn!” Mikið urðum við öll fegin þegar skipið kom nær og við sáum að það hafði uppi Danabrók. Menntun Lífið á Vestdalseyrinni var svipað því lífi sem fólkið i landinu hafði lif- að i þúsund ár. Þangað kom aldrei rafmagn og vatnið var sótt í brunna.” Menntun? „Það var náttúrulega ekki auðvelt fyrir Austfirðinga að verða sér úti um skólamenntun á þessum árum, nema þeir væru af efnuðu fólki eða dug- miklu sem gat drifið börn sín i burtu. Ég var litið i barnaskóla, af því að árið sem ég varð sjö ára var skólinn lagður niður á Vestdalseyrinni. Það var of langt að sækja skóla inn i Bæ og oft ófært á veturna vegna snjó- flóðahættu úr Bjólfinum. Svo fór ég til Norðfjarðar, þegar ég var tólf ára. Á Nesi var gagnfræðaskóli. Ég fór i hann.” Einhver hvíslaði þvi að mér að þú hafir unnið alla ævi mjög mikið og lengi dags. „Rétt svona eins og gengur og ger- ist með fólk af minni kynslóð. Menn tóku þá vinnu sem til féll. Stelpurnar fóru í vist en strákárnir á sjóinn. Þegar ég var sautján ára fór ég til Reykjavíkur. Ég vann á veitinga- húsum og i vistum og mér tókst að drusla mér í gegnum Kennaraskól- ann.” HversdagsBfíð Hvenær byrjaðir þú að yrkja að ráði? „Það veit ég ekki. Ég held ég hafi aldrei ort neitt að ráði.” Kannski ekki gefið þér tima til þess? „Ætli ég hafi ekki þetta kvenlega viðhorf að finnast aðrir hlutir svo mikilvægir — hversdagslifið sjálft — að menntun og bókmenntir og jress háttarhafi frekarsetiðá hakanum.” Hvers eðlis eru ljóð þin að þér finnst. Fæstu meira við náttúrulýrík- ina en ádeiluljóð ef.dæmi eru nefnd? „Það er vist ekkert leyndarmál að ég hef Iengi verið kommúnisti og hef tekið drjúgan þátt i róttæku starfi. Ég er sátt við alþýðlegan uppruna minn og hef enga löngun lil að klifra upp i samfélaginuoggerast stéttsvik- ari. Mér finnst sjálfsagt að taka til máls á fundum og skrifa í Blaðið um dægurmálin, en Ijóðið er galdur og ekki nein brúkskúnst.” Þú segist vera mikil draumamann- eskja. Ráða draumarnir einhverju um þinn Ijóðstíl? Kvennaljóð „Nei ekki vinn ég alveg ómeðvitað. Hins vegar getur verið að sum Ijóðin eigi rætur sínar i draumi.” Hvað um svonefndar kvennabók- „Hef enga V klifra upp í s og gerast s —segir Vilborg Dagb jartsdótl verðlauna DV fyrir I Texti: Sigmundur Ernir Rúnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.