Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1982, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1982, Blaðsíða 23
DV. — HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982. spreyta sig á. Allar frægustu ballerínur sögunnar hafa dans- að hlutverkið: Crisi, Karsav- ina, Spessivtsea, Markova, Fonteyn.. . Hlutverk Al- brechts hefur einnig verið við- fangsefni og draumur karl- dansara frá upphafi og meðal þeirra sem hafa dansað það má nefna Anton Dolin, John Gilpin og Helga Tómasson og þessir þrír leggja nú Þjóðleik- húsinu lið svo um munar eins og komið hefur fram í fréttum. Þar eru samankomnar þrjár kyn- slóðir Albrechts, eins og Dolin skemmti sér við að rifja upp á blaðamannafundi fyrr í þessari viku. Anton Dolin dansaði m.a. á móti Markovu, fyrst ár- ið 1934. John Gilpin dansaði einnig á móti öllum helztu ballerínum sinnar samtíðar, kunnastar þeirra hér munu vera Markova, Fonteyn og Toumanova. Af Helga Tómassyni segjum við ekki mikið, hann stendur nú á há- tindi frœgðar sinnar og telst með beztu dönsurum bæði vestanhafs og austan. Þess má geta að Anton Dolin gerði nýlega sjónvarpsþátt um átta frægustu Gisellurnar, eins og hann orðaði það á blaða- mannafundinum, og fékk þá Helga til liðs við sig í þeim til- gangi að rabba um hlutverk Gisellu ogAlbrechts... Nú, en það er allur íslenzki dansflokkurinn sem kemur fram, auk nokkurra leikara og gesta. Meðal gestanna má nefna Einar Svein Þórðarson, sem Helgi Tómasson tók með sér til New York eftir að hafa séð hann dansa í Hnetubrjótn- um fyrir 4 árum. Verður spennandi að sjá hvernig Einar Sveinn hefur nýtt sér dvölina vestra. Hann dansar tvídans I fyrri þættinum á móti Ólaflu Bjarnleifsdóttur. Hlutverk Myrthu drottningar dansa þær á víxl, Guðmunda Jóhannes- dóttir ogBirgitta Heide. Ballettinn var frumsýndur í gærkvöldi við mikinn fögnuð áhorfenda og næsta sýning er annað kvöld. Gert er ráð fyrir fleiri sýningum en gengur og gerist með danssýningar I Þjóðleikhúsinu, en þó verður að teljast ráðlegra að tryggja sér miða frekarfyrr en seinna! Ms Margrét Guðmundsdóttir fer með stærsta leikhlut- verkiO / sýningunni. flsa'fe soSI ...» 4 % llllí illi SsHr* „is »»l&f 3Mai» , 1 “r 1,»i : 111 JH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.