Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1982, Page 22
22
DV. — HELGARBLAÐ. LAUGARDAGUR 13. MARZ 1982.
AÐALFUNDUR
Iðnaðarbanka íslands hf. árið 1982 verður haldinn í
Súlnasal Hótel Sögu kl. 14.00 laugardaginn 27. marz 1982.
Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf í sam-
ræmi við ákvæði 18. gr. samþykkta bankans.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum
eða umboðsmönnum þeirra í afgreiðslu lögfræðideildar
bankans dagana 22. marz til 26. marz að báðum dögum
meðtöldum.
Reikningar bankans fyrir árið 1981 ásamt tillögum þeim
sem fyrir fundinum liggja eru hluthöfum til sýnis á sama
stað.
Roykjavík 15. fobrúar 1982
Gunnar J. Friðriksson,
form. bankarððs
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í 1150 tré-
staura fyrir Suðurlínu. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu
Rafmagnsveitna ríkisins Laugavegi 118,105 Reykjavík frá
og með þriðjudeginum 16. mars nk. og kostar hvert eintak
kr. 100.
Tilboðum skal skila til skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis-
ins fyrir kl. 14.00 föstudaginn 30. apríl 1982 merkt
RARIK 82015 og verða tilboðin þá opnuð að viðstöddum
þeim bjóðendum er þess óska.
Reykjavík 12. mars
Rafmagnsveitur ríkisins
Bókhald
Veitum alhliða bókhaldsþjónustu
allt árið. Útskrift bók-
halds til viðskiptamanna eftir óskum.
Söluskattskýrslur, mánaðarleg þjónusta.
Tollskýrslur,
alhliða þjónusta við gerð tollskýrslna,
úttekt beiðna á Tollvörugeymslu o.s.frv.
Tölvuúrvinnsla
Fjárhags-, viðskipta-
og launabókhald.
Leitið upplýsinga í síma 82027 og 83860
Ármúfísf.
sérhæft þjónustufyrirtæki.
Ármúla 11
Ballettinn um Giselle er í
tveimur þáttum. Sá fyrri gerist
í sveitaþorpi í Rínardalnum
þar sem Gisella á heima með
mömmu sinni. Gisella er trú-
lofuð Hilarion skógarverði en
veit ekki að Albrecht, hertogi
af Silesíu, er ástfanginn af
henni. Albrecht er annars heit-
bundinn Bathilde nokkurri
prinsessu. En vegna ástarinnar
á Gisellu, dulbýr Albrecht sig
sem sveitastrák og fer á fjör-
urnar við hana þrátt fyrir að-
varanir Hilarions skógarvarð-
ar. Og elskendurnir Gisella og
Albrecht dansa með þorpsbú-
unum. Tignir gestir koma í
þorpið og í glaðværðinni tekst
Hilarion loks að segja Gisellu
hver Albrecht er í raun. og
veru. Hún verður harmi slegin
og deyr í lok fyrsta þáttar.
Annar þáttur gerist við gröf
Gisellu úti í skóginum þar sem
unnusti hennar, Hilarion, syrg-
ir heitmey sína ákaft. Þá kem-
ur til hans Myrtha, en hún er
drottning hinna svonefndu
Vilia, anda framliðinna
stúlkna, sem voru heitbundnar
en létust fyrir brúðkaup sitt.
Þær leita hefnda á öllum karl-
mönnum sem koma í skóginn
þeirra með því að tæla þá í
dansinn og ofgera þeim svo
þeir örmagnast. Og nú kallar
Myrtha þær fram til að hefna
sín á Hilarion. Albrecht kemur
líka að gröfinni og Viliurnar
leggja snörur sínar fyrir hann.
En ást Gisellu á honum bjarg-
að lífi hans og hann sleppur lif-
andi eftir að hafa syrgt Gisellu
mjögvið gröfina.
Ballettinn Giselle var frum-
sýndur í París árið 1841 og í
London þ. 12. marz 1842.
Síðan má segja að ballettinn
hafi verið á efnisskrá allra
dansflokka um allan heim allar
götur fram að þessu og enn er
hlutverk Gisellu líklega það
sem ballerínur þrá mest að
Joyn Gi/pin og Anton Dofín með örn Guðmundsson á mfífí s/n.
V