Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1982, Síða 2
\
2
DAGBLAÐIÐ & VÍSIR. FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982.
Mikill samdráttur í byggingariðnaðinum á Akureyri
„DAPURLEGT’, „DODI”
EDA „STBNDAUTT’
„Útlitið er vægast sagt dapurlegt í
okkar atvinnugrein hér í bænum, þann-
ig að allt útlit er fyrir að við verðum að
leita út fyrir bæjarmörkin eftir verk-
efnum,” sagði Hörður Tuliníus, fram-
kvæmdastjóri Híbýlis hf. á Akureyri, i
samtali við DV.
Mikill samdráttur hefur átt sér stað í
byggingariðnaðinum á Akureyri sið-
ustu ár. Sem dæmi má nefna sölu i
steinsteypu. Árið 1978 seldi Möl og
sandur hf. 24.520 rúmmetra, en sl. ár
var salan komin niður í 14.732 rúm-
metra. Þó hefur Malar- og steypustöð-
in hætt starfsemi á þessum tíma, en
hún var eini samkeppnisaðili Malar og
sands hf. í steinsteypuframleiðslunni.
Má áætla að hún hafi framleitt a.m.k.
5 þús. rúmmetra 1978, þannig að sam-
drátturinn í steinsteypuframleiðslu á
Akureyri á þessu timabili er yfir 50%.
Þetta segir sína sögu enda er svo
komið að akureyrsk byggingarfyrir-
tæki eru farin að leita eftir verkefnum
út yfir bæjarmörkin. Ýr hf. hefur á
annað ár starfað við byggingar i Þor-
lákshöfn og í Mosfellssveit. Norður-
verk hf. vinnur um þessar mundir við
verkefni á vegum Hitaveitu Suðurnesja
og Híbýli hefur augastað á verkefni á
Austfjörðum og á Sauðárkróki.
Næg verkefni
fyrir sunnan
Það kom fram í samtalinu við Hörð
að fjárveitingar til opinberra fram-
kvæmda á Akureyri væru minni en ver-
ið hefði undanfarin ár.
,,M.a. þess vegna sjáum við ekki
fram á nægileg verkefni í bænum þann-
ig að við sjáum ekki annað fært en leita
út fyrir bæjarmörkin. Á sama tíma
frétti ég frá kollega mínum í Reykjavik
að þar séu byggingafyrirtæki að kafna í
verkefnum,” sagði Hörður Tuliníus.
Forsvarsmenn annarra fyrirtækia
höfðu svipaða sögu að segja. Franz
Árnason hjá Norðurverki hf. sagði, að
fyrirtækið hefði aðeins eitt verkefni
tryggt á Akureyri, sem væri viðbygging
við stöðvarhús Pósts og síma. Sagði
Franz, að aðeins tvö tilboð hefðu bor-
izt í þetta verk, frá Norðurverki og
Aðalgeiri og Viðari hf., og aðeins hefði
munað 3.000 kr. á þessum tilboðum
sem bæði voru vel yfir áætluðu kostn-
aðarverði. Þetta hefði komið á óvart i
verkefnaskortinum, þegar búast hefði
mátt við mörgum tilboðum og undir-
boðum.
Norðurverk hf. vinnur þessa dagana
að verkefni fyrir Hitaveitu Suðurnesja,
en auk þess hefur fyrirtækið boðið í
verkefni fyrir hitaveitu á Hellu og
Hvolsvelli.en þar var um slík undirboð
að ræða að tilboð Norðurverks komu
ekki til álita. Sagði Franz dæmi um til-
boð sem verið hefðu 70% undir áætl-
uðu kostnaðarverði og jafnvel lægri.
„Það er í sjálfu sér ekkert nema gott
um það að segja, að akureyrsk bygg-
ingarfyrirtæki leiti verkefna út fyrir
bæjarmörkin en einhver verkefni verða
þau þó að hafa heima fyrir, þannig að
þau flytji ekki alfarin burt,” sagði
FranzÁmason.
Af sem áður var
Fyrir nokkrum árum voru byggð 2—
3 fjölbýlishús árlega á Akureyri og
íbúðirnar seldar á frjálsum markaði.
Slíkt er nú að mestu úr sögunni, en í
staðinn hafa komið verkamannaibúð-
irnar, sem hvergi ná þó að fylla skarð-
ið.
Pan hf. og Aðalgeir og Viðar hf.
auglýstu fyrir nokkru íbúðir, sem þeir
fyrirhuga að hefja byggingu á í sumar.
„Þetta er steindautt, það er aðeins
ein íbúð seld af 10,” sagði Sigurður
Jakobsson hjá Pan hf. Sigurður sagði
að mikið hefði verið spurt eftir þessum
íbúðum fyrst eftir að þær voru auglýst-
ar. Það væri því ljóst að það væri
markaður fyrir þessar íbúðir. Kaup
hefðu hins vegar strandað á peninga-
hliðinni, fólk treysti sér einfaldlega
ekki til að kljúfa fjárhagshliðina með
þeim lánakjörum sem í boði væru.
Fólk vildi frekar reyna að komast inn í
„verkamannaíbúð”, þar sem ekki
þyrfti að greiða nema 10% af íbúðar-
verðinu i upphafi. Fólk hugsaði hins
vegar minna um afborganirnar sem
væru verulegar næstu áratugi.
Þau verkefni sem byggingaverktakar
á Akureyri horfa einkum til í sumar eru
bygging brúar yfir Glerá, bygging verk-
smiðjuhúss fyrir Sjöfn og innréttingar í
fyrsta áfanga Verkmenntaskólans. Þá
gera menn sér vonir um að stjórn
verkamannabústaða kaupi 24 ibúðir. en
ekki er ljóst enn hvort úr því getur
orðið þar sem byggingarsjóður er fjár-
vana. Það ríkir því ekki mikil bjartsýni
hjá mönnum í byggingariðnaöinum á
Akureyri.
„Ég er svartsýnn á að næg atvinna
-voru þau orðsem
forsvarsmenn
byggingarfyrir-
tækja höf ðu um
ástandið
verði t byggingariðnaðinum á Akureyri
í vetur, ef svo fer í sumar sem horfir.
Finnst mér andvaraleysi bæjaryfirvalda
undarlegt í þessum efnum því bæjar-
stjórn hefur nánast ekkert gert til að
sporna við þeirri þróun sem átt hefur
sér stað í byggingariðnaðinum á Akur-
eyri undanfarin ár,” sagði Tryggvi
Pálsson, framkvæmdastjóri Smárans
hf„ og við látum hann hafa lokaorðið
umþessiefni.
GS/Akureyri
Húsgagnasýning
sunnudag
kl. 14—17.
Einnig nýkomið úrval eininga í Senator veggsam-
stœður. Pan tanir óskast staðfestar.
G.Á-húsgögn
SKEIFANS. - SÍMI39595V **
Opið til kl. 19 í kvöld.
Lokað laugardag 1. maí.
Hollenzkur dans
stiginn á Torginu
Hvort þeir eru á einhverjum sér-
samningi við veðurguðina, hollenzku
listamennirnir sem staddir eru hér þessa
dagana, skal ósagt látið. Það benti þó
allt til þess þegaf þeir tróðu upp á
Lækjartorgi nú í vikunni. Þá stund
stytti allt í einu upp og dró frá sólu,
nokkuð sem er sjaldgæf sjón á þessu
nýbyrjaða sumri.
Hollendingarnir eru hér annars
staddir til að skemmta með músík og
dansi á hollenzkum dögum sem nú fara
fram að Hótel Loftleiðum. Þar er fram
á sunnudagskvöld boðið upp á hol-
lenzkan mat, spilað happdrætti um
Hollandsferðir og ýmislegt fieira til
kynningar á landi og þjóð.
Shermer Dansers heitir þjóðdansa-
flokkurinn, er skipaður 18 körlum og
konum sem allt er áhugafólk. Er til-
gangur þess að endurvekja áhuga á
þjóðdönsum og þjóðbúningum, og
hafa þau farið víða í því skyni.
Jón Ingimarsson
Minningarskákmót
um lón Ingimarsson
haldið á Akureyri
Minningarmót um Jón Ingimars-
son sem lézt á sl. ári hófst í skák-
heimili Skákfélags Akureyrar í gær-
kvöldi. Margir af sterkustu skák-
mönnum landsins eru á meðal kepp-
enda enda vegleg verðlaun i boði.
Jón Ingimarsson var í áraraðir einn
helzti forvígismaður Skákfélags
Akureyrar. Hóf hann starf með fé-
laginu 1935 og var virkur félagi allt til
dauöadags. Var Jón því heiðursfélagi
Skákfélags Akureyrar. Hann var einn-
ig í áratugi formaður Iðju á Akur-
eyri. Hefur félagið gefið verðlaun til
mótsins, aö upphæö 7.000 kr. sem
skiptast millli 5 efstu manna á niót-
inu. Auk þess fá vinningshafar vcrð-
launagripi,-
Tefldar verða 7 umferðir sam-
kvæmt Monrad kerfinu og lýkur
mótinu með kaffisamsæti og verð-
launaafhendingu á sunnudagskvöld-
ið. Meðal keppenda á mótinu eru dr.
Ingimar Jónsson, núverandi forseti
Skáksambandsins, sonur Jóns Ingi-
marssonar. GS/ Akureyri