Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1982, Blaðsíða 16
16
Spurningin
Hvað fer mest í
taugarnar á þór?
DAGBLAÐIÐ & VtSlR. FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982.
Lesendur
Lesendur
Lesendur
Lesendur
HUGLEMHNGAR
AÐ LOKINNI
RÁÐSTEFNUUM
LÍKAMSRÆKT
—hvet byrjendur til ýtrustu varkámi við
æfingar, segir Magnús B. Einarsson
læknir
Magnús B. Einarsson, læknir, skrifar:
Ráðstefna sú er nýverið var haldin á
vegum fþróttakennarafélags íslands og
fjallaði um fþróttir og heilsurækt var á
margan hátt gagnleg. f Ijós kom að mikil
þörf var á umræðum um þessi mál og
skein í gegn að þetta væri aðeins
byrjunin. Rætt var m.a. um íþrótta-
kennslu 1 skólum nú til dags og
menntun íþróttakennara. Af þeim
mörgu framsöguerindum sem þarna
voru fiutt fannst mér erindi Laufeyjar
Steingrímsdóttur um mataræði íþrótta-
manna hafa mest fræðslugildi og væri
fengur að fá erindi hennar birt á prenti
1 styttri mynd. Hin erindin voru meira
hugsuð til að koma af stað umræðum
og skoðanaskiptum.
Mér fannst allt of langur tími fara í
að ræða nýja íþróttagrein sem er kölluð
líkams- eða vaxtarrækt (body
building). Virtist sem vaxtarræktar-
menn væru að boða nýja trú, eitthvað
sem allir ættu að freúast af sér til
heilla. Notuðu þeir mikinn tíma í aö
vitna og verja sína grein með ýmsu
móti.
Vaxtarrækt er iþrótt sem hefur ákaf-
lega litla hollustu í för með sér. fþróttin
er í því fólgin að auka vöxt allflestra
vöðva í líkamanum með þjálfun.
Miklar umræður urðu um að við slika
þjálfun án eftirlits sérfróðra manna
mætti búast við alls kyns seinkomnum
kvillum vegna rangra þjálfunaraðferða
á byrjunarstigi, a.m.k. hjá þeim sem
væru orðnir óvanir líkamlegu erfiði.
Vöruðu framsögumennirnir Páll B.
Helgason endurhæfingarlæknir og
Kristín Guðmundsdóttir sjúkraþjálfi
og Páll Ólafsson iþróttakennari við
þessu í erindum sínum.
Það er þó ekki mín skoðun að menn
eigi aö láta líkama sinn afskiptalausan.
þvert á móti. Ég tel að það sé æskilegt
að hafa vöðvabyggingu um eða yfir
meðallag eins og hún gerist almennt
þannig að maður geti auðveldlega
tekizt á við algengustu vcrkefni í dag-
lega lífinu, svo sem að skipta um dekk,
ýta bíl, flytja húsgögn o.s.frv. án þess
að verða sér að skaða. Auk þess á
fallegur og heilbrigður likami stóran
þátt í að bæta sjálfsmynd fólks og auka
þannig andlega líðan. Hér koma skilin
milli almennings og vaxtarræktar-
manna. Þegar farið er að rækta
vöðvana eingöngu til þess aö horfa á þá
stækka og stælast má segja að iþróttin
„Hfi rikisstfóminni Mgu fyrir umsóknk fri örium stfómmilafiokkunum en
ekki öörum framboösaOMum. Þær umsóknir voru efgrekldar sem slikar, af
rikisstjóminni," sagöi S teingrimur Hermannsson. samgönguriöherra, vegna
iesandabrifs um afsiáttinn af kosningasímum ffokkanna.
„Vaxtamakt ar Qwótt æm hefur ikaftega ttÍB haMustu í för með sir. jþróttsi er i þvi
fólgki aö asÉta vöxt aUtestra vöðva í Hcamemm með þfHhm," segr Magnús B.
Ektarssonlæknknte. íbrHisktu.
sé oröin lúxus og gagnslitil fyrir likam-
lega heilsu en þetta má að vísu segja um
ýmsar aðrar iþróttagreinar.
Það sem vantaði í fyrrgreindar
umræður og sem að mínu mati ber að
leggja mesta áherzlu á í iþróttauppeldi
þjóðarinnar eru íþróttagreiar er auka
þol eöa úthald hjarta- og æðakerfisins
þannig að möguleiki verði á sem mestri
súrefnisnýtingu líkamans. Þannig eykst
viðnámsþróttur líkamans við ýmsum
áföllum og sjúkdómum. Líkur á lang-
lífi aukast og likur á hjartasjúkdómum
minnka og sé maður svo óheppinn að
fá kransæðastfflu samt sem áður eru
minni líkur á að fá slæma útreið.
Ég vil í raun og veru ekki mæla á
móti hóflegri líkamsrækt að öðru leyti,
en hvet byrjendur til ýtrustu varkárni
við æfingar og auðvitað eru ýmsir sem
alls ekki ættu aö æfa nema undir
leiðsögn sjúkraþjálfa eða íþróttakenn-
ara og sumir reyndar eingöngu undir
eftirliti sjúkraþjálfa.
Ég vil enn einu sinni undirstrika að
íþróttir eins og skokk, sund,
skíðaganga, fjallgöngur og aðrar
gönguferðir o.s.frv. eru íþróttir sem
krefjast mikillar orku og á þann hátt
mikillar vinnu hjarta og æðakerfisins
og stuðla þannig að auknu úthaldi og
súrefnisupptöku líkamans.
Fyrrnefndar iþróttagreinar eru meðal
þeirrasem hollastar eru.
Afsláttur veittur þeim
sem um hann sóttu
Steingrímur Hermannsson svarar bréf i um kosningasímaaf stáftinn:
Krtetin Matthíasdóttir húsmóðlr: Ég
veit það nú ekki, ætli það sé ekki mikil
umferðíbænum.
Hjalti Gunnlaugsson sðlumaður:
Geðvondir bílstjórar í umferðinni eru
þaö Ieiðinlegasta sem ég þekki.
Nanna Guðmundsdóttir nemi: Ætli
það sé ekki bara það, þegar mig langar
að vera úti, en fer ekki því veðrið er
vont.
Bjamveig Gunnarsdóttir húsmóðir:
Éljagangur og snjókoma.
Arni Hjálmarsson kennari: Ofneyzla
mannsins.
Krtotin Pilsdóttir húsmóðir: í dag
hefur ekkert farið I taugarnar á mér en
þaö getur verið misjafnt frá degi til
dags.
Gunnar Hjaltason, 3361—9669, skrifar
frá Reyðarfirði:
Það verð ég að segja eins og er að
ekki fæ ég með nokkru móti skilið
hvernig ráðherra símamála í þessu
landi getur látið hafa það eftir sér, án
þess að skammast sín íyrir, að sér
finnist það eðlilegt að flokkarnir fái
slíkan afsiátt af síma sinum í kosninga-
baráttunni.
■ Það er mín skoðun að þetta sé svo
langt gengið að við það verði ekki
unað. Mig langar til að setja fram
nokkur atriði sem nauðsynlegt væri að
fá svör við. Hvernig eiga þeir sem eru
að bjóða fram til sveitarstjórna út um
allt land, og eru ekki með flokk á bak
við sig, að njóta þess afsláttar?
Ég fæ ekki séð hvernig það getur
orðið í framkvæmd. Mér finnst að með
þessu sé verið að mismuna mjög þeim
sem að framboðsmálum vinna.
Ég skrifa þessar línur vegna þess að
ég hef sjálfur verið að vinna við
framboðsmál hér á Reyðarfirði og
ekki fer hjá því að sími er mikið
notaður.
Steingrímur, á ég að koma með
reikning til þín, sem þú skrifar upp á að
Póstur og simi eigi aö gefa mér afslátt
af? Hver á þessu landi getur vitað hvað
satt kynni að vera af þvi sem áhonum
stæði? Enginn. Þaö sem annað er, ég
ætlast ekki til þess að mér verði veittur
afsláttur á nokkurn hátt. Eöa á að
túlka þetta sjónarmið þitt á þann hátt
að ekki sé æskilegt að aðrir bjóði fram
til sveitarstjóma en pólitískir flokkar?
Ég set fram þá kröfu að ef þetta á að
ganga í gegn i raunveruleikanum þá
sitji allir við sama borð.
Nú, svo er það tiliaga, að ef Fram-
sóknarfiokkurinn er svo fjárvana að
ráðherra þurfi að gefa út slíkar yfirlýs-
ingar honum til stuðnings, þá segi ég
við hann.
Farðu niður í Austurstræti og biddu
alla þá framsóknarmenn sem framhjá
fara að gefa í símasjóð Framsóknar-
flokksins. Ég vona að á einum eftir-
miödegi hafi safnazt saman það sem til
þarf og næsta morgun geti ráðherra
gefið út yfirlýsingu um að þetta hafi
allt verið mistök.
Að lokum enn og aftur: Hvernig
ætlar þú að láta alla sem vinna í fram-
boðsmálum sitja við sama borð ef þetta
áaðstandaí raun.
Ætíð verttur afsláttur
afkosningasknum
„Eftir því sem ég bezt veit hefur ætíð
verið veittur afsláttur af kosningasím-
um,” svaraði Steingrímur Hermanns-
son samgönguráðherra. ,,Hjá ríkis-
stjóminni lágu fyrir umsóknir frá
öUum stjórnmálaflokkunum en ekki
öðrum framboðsaðilum. Þær umsókn-
ir voru afgreiddar sem slikar, af rikis-
stjóminni, og ég fól Pósti og síma að
koma þvi i framkvæmd.
Formlegar umsóknir frá öðrum
framboðsaðilum hafa ekki borizt svo
mér sé kunnugt um. Ef slíkar umsóknir
berast mun ég að sjálfsögðu leggja þær
fyrir ríkisstjórnina eins og hinar fyrri,”
sagði ráðherra að lokum.
-FG.