Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1982, Qupperneq 36
44
DAGBLAÐIÐ& VÍSIR. FÖ5TUDAGUR 30. APRlL 1982.
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Sviðsljósið
Dmttn/hgin hmfxw sklpað mð hann rýótl angrrn fonéttkxlmþrinvm!þátt titátakm koml — mn hmhw auOvHmð mtna og
hvmr önmr móðk mMthr ihyggfur mf wyn! sknwn.
Andrmw prtnt mr akm mfþotufíugmönmMtum um borð í HMS Invkttdbla.
Drottnmgm hefur
áhyggjur af Andrew
Elísabet Englandsdrottning hefur
líka sinar persónulegu ástæður til að
hafa áhyggjur af deilu Argentínu-
manna og Breta um Falklandseyjar,
því að næst-elzti sonur hennar —
Andrew prins — er einn af þyrluflug-
mönnunum um borð í flugvéla-
móðurskipinu HMS Invincible.
Andrew er nú orðinn 22 ára og
drottningin hefur sjálf beðið um það
að hann njóti engra forréttinda —
ekki einu sinni þótt ti! átaka komi.
Og þeirri skipun hennar er fylgt út í
yztu æsar. i
— Auðvitað yrði hann sendur í
bardaga eins og allir aðrir flugmenn
um borð hjá okkur ef til slíks kæmi,
segir yfirmaður hans, Ralph Wykes-
Sneyd. — Hann er að vísu það ungur
og óreyndur að við mundum ekki láta
hann sinna erfiðustu verkefnunum.
En hann er duglegur og mjög hæfur
flugmaöur og nýtur engra forréttinda
fram yfir aðra unga liðsforingja um
borð hjá okkur.
Óralangt er síðan að nokkur af
erfmgjum brezku krúnunnar hefur
barizt í stríði. George VI — sem þá
hét Albert og var prins — var með í
bardaganum við Jótland í heims-
styrjöldinni fyrri og slapp naumlega
undan sprengju.
Hertoginn af Windsor — sem þá
var prins af Wales — heimsótti víg-
stöðvarnar í Flandern. Hann var að
vísu ekki sjálfur í herþjónustu en
lenti samt í lífsháska. Bílstjórinn
hans lét lifið af völdum hand-
sprengju.
Englandi
tilheiðurs
Síðasti Englandskonungur sem
raunverulega barðist í styrjöld var
George II. sem rak Frakka á flótta i
bardaganum við Dettingen 1743. Og
George II. var að ýmsu leyti dálitið
fyndin hetja. Hesturinn hans fældist
við drunur frönsku fallbyssanna og
kastaði knapa sinum af sér í forar-
pytt. Er hinum lágvaxna, sextuga
konungi hafði teldzt að koma sér aft-
ur á fætur heyrðist hann tauta:
— Talið ekki um hættu við mig.
Ég skal sýna þeim í tvo heimana.
Svo dró hann sverð sitt úr slfðrum
oghrópaði:
— Jæja strákar, skjótiö nú til
heiðurs Englandi. Sýnið kjark og þá
flýjaFrakkarnir. . .
Konunginum og hermönnum hans
til mikillar undrunar var það einmitt
það sem Frakkarnir gerðu.
Og nú er bara aö vona að gæfan
verði Andrew prins jafn hliðholl og
forfeörum hans ef til átaka kemur.
Jacobi leikur
Pétur Gaut
The Royal Shakespeare Company
hefur ákveðið að leika Pétur Gaut eftir
Ibsen á Stratford-on-Avon í sumar. Fer
Derek Jacobi með titilhlutverkið, en
við íslendingar minnumst hans sem
hins fatlaða rómverska keisara í fram-
haldsþáttum sjónvarpsins, Ég, Kládíus.
Jacobi hefur haft meira en nóg að
gera siðan hann lék Kládíus við góöan
orðstir. Hann hefur nú nýlega lokið við
að leika Hitler 1 kvikmynd sem byggist
á minningum Alberts Speers um for-
ingja Þriðja ríkisins.
Það á að frumsýna Pétur Gaut í júní.
Um þessar mundir er Jacobi að leika i
Shakespearleikritinu Mikil læti út af
engu (Much Ado about Nothing) í
London og býr sig jafnframt undir
hlutverk i öðru leikríti eftir sama höf-
und, Storminum.
Tónlistin sem verður notuö i ensku
uppfærslunni á Pétri Gaut verður ekki
eftir Grieg, heldur Steven Olivers.
~Smknmmtanmmmvmrðb6lgunnmr,''*mglrJ6hmnnm*,*mninúmrkomlnnáfiw-
DV-mynd GVA.