Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1982, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1982, Qupperneq 37
DAGBLAÐIÐ & VlSlR. FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982. 45 Sviðsljósið Sviðsljósið Sviðsljósið J.R. ívækkaði íverði Leikarinn Larry Hagman, sem við þekkjum bezt sem J.R. í Dallas, segist sjálfur hafa tekið mikla áhættu eftir að þátturinn sem fjallaði um morðtilraun- ina á J.R. var sendur út í Bandaríkjun- um í marz 1980. Hann notfærði sér nefnilega hinar miklu vinsældir sínar til að fara fram á töluverða kauphækkun. — Ég vissi að ég tók þarna mikla áhættu, segir hann í viðtali við banda- ríska tímaritið TV-guide. — Ef ég tap- aði átti ég ekki aðeins á hættu að missa hlutverkið heldur yrði ég líka „bann- færður” af öllum öðrum sjónvarps- stöðvum. Og í fyrstu virtist hann ætla að tapa. Framleiðendur Dallas komu þeim sög- um á kreik að í næsta þætti mundi kvikna í sjúkrabílnum sem flytti J.R. á sjúkrahúsið eftir morðtilraunina. And- lit J.R. færi svo illa af brunasárum að hann yrði að gangast undir aðgerð sem breytti honum töluvert. Auðvitað var tilgangurinn sá að undirbúa jarðveginn fyrir það að skipt yrði um leikara í hlut- verki J.R. — Ég lét samt ekki undan í neinu þar sem heilbrigð skynsemi mín sagði mér að ég væri of vinsæll til að fólk sætti sig við slíka lausn, segir Larry Hagman. Leikarinn hefur aldrei viljað viður- kenna opinberlega hversu mikla kaup- hækkun hann fékk. Heyrzt hefur þó að hún hafi numið tæplega milljón dölum og einnig fékk hann sinn hluta af gróð- anum á sölu skyrtubola með myndum úr Dallasþáttunum. Framleiðendurnir urðu sem sagt að láta í minni pokann. — Margir hafa sagt að jafnvel J.R. hefði orðið stoltur af þessum árangri, segir Larry Hagman. — Ég efast samt um það. Ég held frekar að J.R. hefði sagt við mig: — Fífl ertu. Þú hafðir þá í hendi þér, þú hefðir getað pressað meira út úr þeim. — En það er ekki minn still. Sá árangur sem ég náði nægði mér alveg. Larry Hagman: Nmstum því Jatn sJóttvgur og J.R. ■ j \ j j \\Ak Wm rj, Dómnefndln s/tur hér Hgt og auönyúkfega fyrir framan keppmnduma. an í veétfngamaöur. Nöfn keppenda em tatið i sömu röO. GuOrún Sókmsdóttir, henni eru taliO fri vinstri: „Ungfrú Hoitywood 1981" VaigerOur Gunnars- HaMa BryntMs Jónsdóttir, HUdigunnur HHmarsdóttir, KoMtrún Anna Jóns- dóttw, Þórarihn Matptússon og Ohfur Hatdtsson, ritstjórar Samútgófunnar, dóttir, Maria BJörk Sverrisdóttir og Gunnhifdur Þórarinsdóttir. Lengst til Steinn Lintsson, forstjóri Feröaskrifstofunnar Úrvai og Óhrfur Laufdal hmgri er svo Magnús Kristjinsson, skemmtanastjóri í Hol/ywood. Ungfrú HoHywood krýnd á Broadway Sex ungar, hressar og glæsilegar dömur eru það sem keppa um titilinn „Ungfrú Hollywood” að þessu sinni og styttist nú óðum í þá stóru stund, þegar hann verður afhentur. Stúlkurnar voru kynntar með pompi og prakt í Hollywodd eitt kvöldtö nú í vikunni, ásamt dóm- nefndinni, sem sannarlega á úr vöndu að ráða. Að keppninni standa sem áður SAM-útgáfu og veitingahúsið Hollywood. Og það er ekki að litlu að keppa, því sú sem hnossið hlýtur, fær glæsi- leg verölaun. Fyrst ber að telja skemmtiferð til allra helztu borga Bandaríkjanna og þar á meðal auð- vitað Hollywood. Þá fær hún 3 vikna stjörnuferð til Ibiza með Ferðaskrif- stofunni Úrval og í báðum ferðum er henni útilátinn ríflegur farareyrir. En þar með er ekki allt upptalið, því að hún fær jafnframt 10 þúsund króna fataúttekt í verzlunum Karnabæjar. Ekki geta þær allar orðið númer eitt, en hinar þurfa nú heldur ekki að kvarta. Þeim verður öUum úthlutað vikuferð til Ibiza og 1500 króna fata- úttekt hjá Karnabæ. Ekki amalegur bónus fyrir að tapa. Krýningarhátíðin fer fram á Broadway 14. maí næstkomandi. Verður hún hin glæsilegasta svo sem vænta má. Hljómsveit kvöldsins verður Mezzoforte, nýkjörin hljóm- sveit ársins af Stjðrnumessu DV, og hafa þeir félgar samið sérstakt lag fyrir krýninguna. Nefnist það Drottningardans og við það hefur Sóley Jóhannesdóttir, danskennari, samið sérstakan dans. Fjölmörg önn- ur glæsileg skemmtiatriði verða á boðstólum. Þeir sem vilja láta til sin taka í kosningunni, geta næstu vikur lagt leið sína í Hollywood, fengið þar at- kvæðaseðil og skilað á sama stað. Verður keppnin væntanlega jöfn og spennandi ef að líkum lætur. -JB „Tak for sidstÓhfur Laufdai, ve/tingameOur í Hoiiywood og Broad- way, smaHir hór vmntanlega elnum hufHttum i ValgerOi Gunnarsdóttur, enhún var kosin, „Ungfrú HoBywood"í fyrra. „Þarfjafnvel að kenna fóikinuað borða fiskinn" — segir Jóhannes Guðmundsson sem nú er farinn tiiBurma á vegum FAO Þeir eru sennilega ekki margir íslend- ingarnir sem lagt hafa leið sína til Burma, hvað þá heldur dvalizt þar um lengri eða skemmri tíma. Einn slíkur hélt þó af landi brott nú í vikunni. Jóhannes Guðmundsson, heit- ir hann, er skipstjóri að starfi, fæddur og uppalinn í Reykjavík. Erindi hans á svo fjarlægar slóðir er að hleypa nýju blóði í fiskveiðar landsmanna þar, auka á tækni þeirra og þekkingu í öllu því sem að fiski og fiskvinnslu lýtur. Fer hann á vegum FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, en verkefnið fellur undir þróunaraðstoð stofnunarinnar. Hafa íslendingar lagt æ þyngri hönd á plóg- inn við þá aðstoð siðari ár. ,,Ég er lítið kunnugur þessu verkefni sem þama bíður mín, en veit þó að ætlunin er að stunda nótaveiðar, reyna að þróa upp frekari tækni á því sviði,” sagði Jóhannes í samtali við DV, skömmu áður en hann fór. „Þetta er búið að vera í gangi í einhvern tíma en það vantaði skyndilega mann til við- bótar og því var ég kallaður til starfa næstu mánuðina.” Jóhannes hefur áður starfað hjá FAO, dvaldi um sex ára skeið í Norður- og Suður Yemen á þeirra vegum. „Þessar þjóðir eru mjög frumstæðar í öllu er lýtur að fiskveiðum, og á al- gjöru fornaldarstigi, miðað við það sem þekkist hér á norðurslóðum. Það er því mjög varasamt að fara of hratt i breytingar í atvinnuháttum, fólkið er hreinlega ekki tilbúið að taka við nein- um stökkbreytingum. Aðstoðin þarf að koma jafnt og þétt, hægt og sígandi, helzt án þess að nokkur uppgötvi að breytingar séu á ferðinni.” „í Yemen vorum við með íslenzkt skip, Barða frá Neskaupstað, við veið- arnar og það gekk bærilega. Þó er það dæmigert fyrir ólíka vinnuhætti þarna suður frá, að á skipinu var tæplega 30 manna áhöfn, en hér heima eru aðeins um 11—12 menn á slíkum báti. Fólkið fer sér hægt við vinnu og hefur hrein- lega ekki líkamlegt þrek og burði á við okkur hér á Islandi. En það er þó alls ekki latt.” Jóhannes sagði aðstoð FAO vera mjög fjölþætta. Það væri ekki einungis veiðitækni sem kennd væri. Leiða þyrfti þessum þjóðum fyrir sjónir hvaða aðstaða þarf að vera fyrir hendi þegar fiskurinn kemur í land, hafnar- skilyrði, kæligeymslur, flutningatæki, nú, eða bara vegir til að koma aflanum á markað. Og síöast en ekki sízt þyrfti að kenna fólkinu að borða fisk, en það væri óþekkt fyrirbæri víða inni i landi. „Þaðtókstnú betur en búizt var við í Yemen. Ég man til dæmis að einu sinni lögðum við af stað með fullan bil af fiski langt inn í landið. Þegar við vorum komnir um 200 km, hittum við kaupmann sem var heldur tregur að kaupa þennan varning. Féllst hann þó á að taka af okkur þrjá kassa. í næsta skipti tvöfaldaði hann skammtinn. Og þá virðist fólkið hafa komizt á bragðið, þvi að í þriðju ferðinni vildi hann fá fullan bíl af nýjum fiski. Á þeim slóðum var aðalatríðið að koma aflan- um á markað um leið og landað var, þvi aö kæligeymslur voru engar og fisk- urinn úldnaði fljótt í öllum hitanum. En hvað er það sem freistar íslend- ings til að leggja upp í slíka langferð? „Það er sennilega ævintýraþrá mikið til, löngun til að kynnast fjarlægum þjóðum og ólíkri menningu. Maður kynnist landinu á allt annan hátt með því að starfa þar, heldur en að renna í gegn á skömmum tíma eins og ferða- menn gera. Og svo dregur sjálfsagt ekkert úr að launin eru mjöggóð.” Eitthvað sérstakt sem saknað er frá fslandi? „Ég held að maður sakni nú flestra hluta héðan, nema ef vera skyldi verð- bólgunnar. Jafnvel veöurfarsins. Ég vildi heldur búa við rigninguna og sval- ann hér heima, en hitana og þurrkinn sem er þarna suður frá. Verst að geta ekki fengið hvort tveggja í bland.” Hefurðu trú á að þú ílengist eitthvað í þessu fjarlæga landi? „Nei, varla. Verkefnið sem ég er ráð- inn til nær aðeins til sex mánaða, svo að væntanlega kem ég heim að því loknu. Annars er aldrei að vita.” Nú, Jóhannes er sennilega kominn langleiðina til Burma þegar þetta birt- ist. Héðan flaug hann til Luxemborgar og Rómar, þar sem dvalizt skyldi í þrjá daga. Siðan liggur leiðin beint til Burma og við óskum honum góðs gengis, hvar sem hann er staddur nú. -JB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.