Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1982, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1982, Qupperneq 3
DV. LAUGARDAGUR11. SEPTEMBER1982. 3 Ekki verður rými fyrir alla f Vesturbœjarskólanum, fyrr en settar hafa verið upp lausar kennslustofur. DV-mynd GVA. SEINAGANGURIKERFINU: Nemendur sendir heim vegna byggingaframkvæmda — Þetta er auðvitaö ákaflega baga- legt og framkvæmdirnar hefðu alls ekki þurft að dragast svona, sagði Kristín G. Andrésdóttir, skólastjóri Vesturbæjarskólans, vegna tæplega tveggja vikna frís sem nemendur skólans frá vegna bygginga- framkvæmda. — Börnuin hefur fjölgað mjög í þessu hverfi miöað við stærð skólans og við höfum jafnt og þétt vakiö athygli yfirvalda á þeirri staðreynd. Nú er svo komið að við höfum ekki rúm fyrir alla og getum ekki hafið kennslu 9,10 og 11 ára barna fyrr en búið er að segja upp lausar stofur við skólann. — Máliö hefur verið rúmt ár í umfjöllun hjá fræðsluráði og það var ekki fyrr en í júlíbyrjun sem borgarráð tók loks ákvöröun um að láta loka Hrannarstígnum og staðfesti leyfi til aö koma stofunum upp. Heföi máliö verið afgreitt í vor, væri framkvæmd- um lokið og við hefðum losnaö viö allar tafir, sem koma sér auðvitað afar illa, bæði fyrir böm og kennara. — En nú er þetta allt að smella saman hjá okkur og við getum sennilega hafið kennslu þessara bama í næstu viku. Hér er um 95 böm að ræða en alls stunda 250 nemendur nám viðskólanní vetur. JJÞ. Helgarferöir-vikuferöir AMSTERDAM - eina sarma ..Evrópuhiartað Amsterdam er óumdeilanlega í sviðsljósinu um þessar mundir - jafnt hér- lendis sem erlendis. Þessi fallega stórborg hefur í æ ríkara mæli tekið við hlutverki hins eina sanna „hjarta Evrópu" og í borginni finnur þú tækifæri til nær allra þeirra hluta sem hugurinn girnist. Einstaklingsferðir Brottför alla föstudaga í 5 daga ferðir. Brottför alla þriðjudaga eða föstu- daga í vikuferðir. Innifalið f verði: Flug, gisting með morgunverði. Hópferðir aðildarfélaga 5 daga ferðir (hægt að framlengja) Október: 1, 22, 29 Nóvember: 12, 26. Desember: 10. Gisting á lúxushótelunum Marriott og Hilton eða á hinu stórskemmtilega og vingjarnlega Parkhotel. Allt einstaklega vel staðsett hótel. Verð er sama og f einstaklings- ferðunum en auk flugs og gistingar með morgunverði er eftirfarandi innifalið: Ferðir til og frá flugvelli erlendis, íslensk fararstjórn og skemmtisigling um síki Amsterdam. Næturlífið er fjölskrúðugt og eldfjörugt, verslanirnar í sérflokki, veitingastað- irnir hver öðrum skemmtilegri og listheimurinn óviðjafnanlegur. Síðast en ekki síst mætir þér hvarvetna glaðvært og hlýlegt viðmót sem Flollendingar hafa löngum verið annálaðir fyrir. Hvað er gert í Amsterdam? Verslun Glæsilegar verslanir af öllum tegundum. Verðlagið er engu líkt. Veitingahús Veitingahúsin eru frá öllum heims- hornum enda gjarnan sagt að í Amsterdam sé hægt að „borða á öllum tungumálum". Líflegir barir og notaleg kaffihús að auki. Næturlífið Diskótek, næturklúbbar og skemmtistaðir skipta hundruðum. Myndlistin 50 listasöfn, t.d. Rembrandt- og Van Gogh söfnin, Rijksmuseum, Stede- lijks Museum, vaxmyndasafnið N/ladame Tussaud's, hús Önnu Frank o.fl. Tónlistin Klassík, popp, jazz, kirkjuorgel og margt fleira. Snjöllustu íistamenn heims troða upp f hverri viku. Gleymum heldur ekki ballettinum og 50 kvikmyndahúsum með allar nýjustu myndirnar með ensku tali. Knattspyrnan Deildarkeppnin, Evrópuleikir, lands- leikir. Verð frá kr. 4.950 Nánari upplýsingar á skrífstofunni. Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 Verð miftast vift flug og gengi 1.9.1982 3» 0982-2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.