Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1982, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1982, Síða 13
DV. MÁNUDAGUR13. DESEMBER1982. verðlagið (neikvæð greiðslustaöa 'Landsvirkjunar á þessu ári um ca 145 Mkr.). Hin raunverulega Krafla kemur hér hvergi við sögu, en hún hefur tíð- ast verið notuð í ljótabarnshlutverk- ið af stjómmálamönnum, fjölmiðla- mönnum og ýmsum steinblindum Eræðimönnum, þegar rætt er um óarðbærar framkvæmdir í þeim til- gangi einum að villa um fyrir al- menningi eða upplýsa eigin fávisku. En þessir sömu aðilar horfa fram hjá öllum Kröfhmum sem engla- bamið Landsvirkjun er að burðast með (fyrirtæki sem forsjálir Reyk- víkingar komu á fót), en Kröflumar þar eru hreint ekki svo fáar og stöð- ugt unnið að fleiri. Til aö skoða dæmið nánar skulum við sjá áhrifin sem þetta okur Lands- virkjunar hefur á smásölugjaldskrá Rarik, núgildandi gjaldskrá frá 5. nóv. 1982 og reikna á ársgrundvelli. Dæmi um Jón Jónsson Jón Jónsson sem notar á heimilis- taxta A14000 kwh/ári og hitataxta Q 36000 kwh/ári. Meöalverð á A1 miöaö við þessa notkun er 2,243 kr /kwh, á C10,701 kr /kwh óniðurgreitt af ríkis- sjóði, en 0,561 kr /kwh niðurgreitt. Reiknað saman A1 + C1 miðað við 40000 kwh/ári er óniðurgreitt verð 0,855 kr/kwh en niðurgreitt 0,729 kr /kwh. Jón Jónsson þarf því að greiða fyr- ir raforku á ársgrundvelli 40000 X 0,729 = 29160 kr /ári, Rarik fær 40000 X 0,855 = 34200 kr /ári, Landsvirkj- un fær 40000 x 0,53 = 21200 kr /ári plús 0,53 x dreifitöpin í kerfi Rarik, eða frá afhendingarstaö Landsvirkj- unar að notanda, en við getum sleppt þeim hér, dæmið er nóguslæmt fyrir. Samantekið: HeUarkostnaður: 34200 kr/óri eða 100% Landsvirkjun fær 21200 - - 62% Rarikfær 13000 - - 38% Samt. 34200 100% Jón Jónsson groiðir < 29160 kr/ðri eða 85.3% Ríkissjóður greiðir 5040 - - 14,7% Af hluta Rarik eða 13000 kr. fara 2690 kr. í verðjöfnunargjald og sölu- skatt til baka til ríkissjóðs. Hvaö verður um niðurgreiðslumar eftir áramót 82/83 veit enginn en þær eru ekki á f járlögum næsta árs. Sama dæmi og að ofan tekið í nóvember 1978 eða fyrir 4 árum. HeiidarkostnaAur: 40000 x 0,104 =4160 kr 'ári - 100 % landsvirkjun fær 40000 x 0,04562=1824,8 kr/ári - 43,9% . Rarikfær 23352.2 kr lári - 56.1% Samt. 4160 kr/ári - 100 % Þá voru engar niðurgreiðslur og Jón Jónsson greiddi alla súpuna. Að lokum skulum við s já hvað þarf mörg kíló þorsks til að greiða þessa orku. 1 nóvember 1978 var skiptaverð 1,26 kr /kg sem þýðir að 4160 : 1,26 = 3301 kg/ári þarf þá til greiðslu á raforku á ársgrundvelli, en nú þarf 34200 : 6,37 = 5368 kg/ári til greiðslu á sama orkumagni eða 62,6% aukning. Núverandi verð raforku til allra al- mennra nota er óviðunandi fyrir alla raforkunotendur, hreint okur. Ef spáin um 3-ja þorskinn hér að framan til Landsvirkjunar á tveim næstu árum rætist getum við alveg eins lagt niður alla búsetu úti á landi ef landsbyggðinni er ætlað að búa við gjaldskrá Landsvirkjunar í stað þess aö fá að virkja sjálfir fyrir kostnað sem er innan við helmingur af núver- andi gjaldskrá Landsvirkjunar, hvað þá verður er þriðji þorskurinn hefur bæst við. Er ekki kominn timitii: a) að stjóm Landsvirkjunar segi af sér og efstu yfirmenn líka. Endurskoðendafyrirtælíjp verði gert að rannsaka starfsemina alla og grundvöll ákvarðanatöku hinna ýmsu framkvæmda á Þjórsársvæði. Hér gæti verið um framhalds- verkefni að ræða hjá hinu breska endurskoðendafyrirtæki sem iðnaöarráðuneytið fékk í álmáliö. b) að Alþingi Islendinga endurskoöi afstöðu sina með útþenslu Lands- virkjunar yfir landsþyggðina. c) að stjóm Laxárvirkjunar aidur- skoði afstöðu sina til sameiningar Laxárvirkjunar og Landsvirkjun- ar 1. júlí 1983 ög þar með fríi Akureyringa og seinna aðra Norðlendinga við ævarandi okri á raforku. d) að rannsaka þátt verkfræðistofa í ákvarðanatöku um ýmsar raf- orkuframkvæmdir, en æði oft em stofurnar bæði með frumhönnun og síðan lokahönnun verksins þannig að ákvarðanataka er þeirra hagur, en ábyrðin engin. e) að rannsaka þátt orkustofnunar í ákvarðanatöku valkosta orku- mála, en ég get ekki betur séð en að sú stofnun sé verri en engin í þeimefnum. f) að skipta um yfirmann orkumála á Islandi, iðnaðar- og orkuráð- herra, Hjörleif Guttormsson, og gert að skilyrði að arftaki hafi smá-innsýn í orkumál, og láti ekki eiginhagsmunaseggi og steinblinda reykvíska fræðimenn stjórna sínum ákvörðunum. Að síöustu, þá hefur gengi dollars gagnvart íslenskri krónu 18, 28 fald- ast frá 1. jan. 1972 til 5. nóv. 1982, en gjaldskrá Landsvirkjunar hefur 61,37 faldast á sama tima, eöa 3,35 faldast gagnvart dollar. Fiskverð er hins vegar mjög svipað í dollurum talið 1. jan. 1977 og 15. sept. 1982 eða 7,67 faldast, en dollar 7,62 faldast á sama tíma. Heimir Sveinsson tæknifræðingur Egilsstöðum. HARHARA -« g,artland Ástin blómstrar á XIIiiim al#li iMclrAÍ Ai im ÞÆR ERU SPENNANDI í ÁR, SKEMMTISÖGURNAR FRÁ SKUGGSJÁ! Barbara Cartland Ástin blómstrar á öllum aldursskeíðum Eftir lát konu sinnar segir Malcolm Worthing- ton skilið við starf sitt í utanríkisþjónustunni og fer til Miðjarðarhafsins í þeim tilgangi að gleyma fortíðinni og hefja nýtt líf. Þar verða tvær konur á vegi hans og þær eru ólíkar eins og dagurinn og nóttin. Elísabet er fínleg, lífsglöð og óeigin- gjörn og kennir honum að elska á ný. Marcia er há og grönn, fögur og fönguleg, en Malcolm metur hana einskis. En þegar Marcia er að því komin að hverfa að fuliu úr lífi hans, ske óvæntir atburðir, sem Malcolm hafði ekki séð fyrir... Theresa Charles við systurnar Althea er fögur, alvörugefin og mjög gáfuð og stjórnar yngri systur sinni, full afbrýðisemi og öfundar. Rósamunda er lífsglöð og skemmtileg, aðlaðandi og kærulaus, en full af mannlegri hlýju. Adrían er aðstoðarprestur föður þeirra og þær eru báðar ástfangnar af honum. Hann kvæn- ist Altheu. Cecil er frændi Adríans, glæsilegur og sjálfsöruggur. Hann kvænist Rósamundu. Þessar systur voru mjög ólíkar, en áttu þó svo margt sameiginlegt í fari sínu, að mennirnir, sem urðu á vegi þeirra hrifust af þeim báðum. vlO,<3Ufe sysfurnar Sigge Stark Skógarvörðurinn Anna frá Hlíð var sautján ára og mjög þögul og fáskiptin. Hún tjáði engum hug sinn, heldur hélt sig út af fyrir sig, rölti ein um skóginn með hundinum sínum, sem í raun var hennar eini félagi. En einn indælan sumardag, þegar sólin hellti geislum sínum yfir skóginn, fjöllin og mýr- arnar, hitti hún skógarvörðinn nýja. Þessi sumar- dagur festist henni í minni sem einn mesti hamingjudagurinn í lífi hennar, enda þótt hann bæri í senn með sér sorg, biturleika og tár... Else-Marie Nohr Hver er ég? Eva Birk er að undirbúa brúðkaup siti og Henriks Borg, þegar hún fær þær óvæntu upp- lýsingar, að af vígslunni geti ekki orðið, þar sem hún sé þegar gift öðrum manni. Eva verður að sjálfsögðu skelfingu lostin. Hún hafði orðið fyrir bifreiðarslysi og þjáðst af minnisleysi um tíma, en þegar hún tekur að kanna málið, kemst hún að því að hún er þegar gift, og það manni sem henni er ákaflega ógeðfelldur, — og að með þessum manni á hún þriggja ára gamla dóttur... Erik Nerlöe Hvítklædda brúðurin Karlotta var á leið til kirkjunnar þar sem Jesper og veizlugestirnir biðu hennar. Hún var klædd i brúðarkjólinn hvíta, með fagran brúðarvönd i fanginu og fyrir brúðarvagninn voru spenntir tveir fagrir gæðingar. En hún komst aldrei alla leið til kirkjunnar, — og enginn vissi um mennina tvo, sem í brúðarvagninum sátu og óku á brott með Karlottu, tvo illskeytta menn, sem til alls voru vísir. Og þar með fékk Benedikta Liljen- krona möguleika til að vinna ástir Jespers á ný... ,Erik Nerlöc HVITKLÆDDA BRUÐURIN Francis Durbridge Meö kveðju frá Gregory Fáir útvarpsþættir hafa vakið jafnmikla spennu meðal íslenzkra útvarpshlustenda sem Gregory-þættirnir sæliar minningar. Með kveðju frá Gregory er sagan sem þessir æsilegu þættir voru byggðir á, — og sagan er ekki síður spennandi. Hver var hann þessi leyndardómsfuili glæpamaður, sem skildi eftir orðsendinguna „Með kveðju frá Gregory," ritaða með rauðu bleki, sem minnti óhugnanlega á blóð, og festi á fórnarlömb sin? — Það kostar vökunótt að byrja lestur þessarar bókar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.