Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1982, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1982, Side 18
18 DV. MÁNUDAGUR13.DESEMBER1982. TILKYNNING tilsöluskattsgreiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, aö gjalddagi söluskatts fyrir nóvembermánuö er 15. desember. Ber þá aö skila skattinum til innheimtumanna ríkissjóös ásamt sölu- skattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið, 8. desember 1982. TILKYNIMING TIL LAUNASKATTSGREIÐENDA Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því aö eindagi launaskatts fyrir mánuðina ágúst, september og október er 15. desember nk. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiöa dráttarvexti til viöbótar því sem vangreitt er, talið frá og meðgjalddaga. Dráttarvextir eru 5% á mánuði. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leið launa- skattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið. Lux: Time gæðaúr á ótrú/ega iágu verði! Eins árs ábyrgð! Góð þjónusta! Aðeins vegna ótrúlega hagstæðra innkaupa getum við boðið Lux.time tölvu quartz úr á verði sem enginn getur keppt við! ALARM CHRONO 24 t. úr, sýnir stundir, mínútur og sekúndur Dagatal m. mánaðardegi og vikudegi. Vekjari/viðvörun- artónn getur verið á föstum tíma á hverjum morgni. Auðvelt að breyta. Heimsúr 241., hægt að stilla á klukkuna hvar sem er í heim- inum. Skeiðklukka með 1/10 úr sek.f ná- kvæmni og millitíma. Laglegur og góður stálkúlu- penni með tölvuklukku sem sýnir klukkust. minútur og við létta snertingu, sekúndur, mán- uð og mánaðardag. Núllteljari frá 24.00 til 0.00 m. viðvör- unartón. 'ð Vatnshelt. Lux:Time stúlku/dömuúr í fjórum litum: hvitt, rautt, blátt eða svart. Sýnir klukkust., min- útur og við létta snertingu sek- úndur, mánuð og mánaðardag. Skoðið og kaupið úrin hjá CARL BERGMANN, úrsmið Skóla- vörðustíg 5 eða pantið beint hjá BATIhf. Hringið og pantiö í síma 91-79990 eöa fyllið seðilinn út og sendið. Pantanir afgreiddar samdægurs. - stk. Lux: Time Crono Alarm á kr. 485,- _stk. kúlupennar með úri ákr.276,- . stk. stúlku/dömuúr Litur: I hvítt I irautt □blátt í svart kr. 276,- _____stk. aukarafhlöður ákr. 90.- 1 Eg óska að fá pöntunina senda i póstkröfu, kostnaður pr. pöntun kr. 40,- D Eg borga fyrirfram með yfir- strikaðri ávísun, sendingarkostn- aður pr. pöntun kr. 20,- Sendið til BATI hf. Skemmuvegi 22 400 Kópavogi, sími 91-7 99 90. Menning Menning Menning BOKIN UM RAGNAR í SMÁRA —glæsileg listaverkabók I vaxandi kreppu og báglegu efna-, hagsástandi þjóðarinnar leggur ný forlagssamsteypa Listasafn ASI/Lögberg út í það stórvirki að láta rita um íslenska myndlist og gefa út í umfangsmiklum bókaflokki. Þegar eru komnar út hjá fyrirtækinu tvær bækur, sú fyrsta um Ragnar Jónsson í Smára og önnur um Eirík Smith listmálara. Bókin um Ragnar er aö hluta til samtalsbók þar sem Ingólfur Mar- geirsson hefur skráð viðtöl við nokkra helstu listamenn og menning- arfrömuði þjóðarinnar. I síðari hluta bókarinnar eru svo 48 heilsíðulit- myndir af málverkum úr frumgjöf Ragnars til Alþýðusambands Is- lands. Mecene Ragnar í Smára er eflaust einn merkasti Mecene í íslensku menn- ingarlífi. Hann hefur komið víða við og stutt ötullega allt í senn tónlistina, málverkiö og ritlistina. Þetta kemur vel fram í bókinni um Ragnar þar sem rætt er við listamenn sem lagt hafa stund á ólíkar listgreinar, en eiga þaö þó allir sameiginlegt að hafa notið stuönings og vináttu Ragnars. Þannig er þessi velgjörðar- maður islenskra lista skoöaður sam- tímis frá mörgum hliðum og lesand- inn fær í senn fræðandi og umfram allt skemmtilega heildarsýn. Jú, bókin um Ragnar er vissulega skemmtileg aflestrar og jafnvel bráðfyndin á köflum. Saf n í bók En það sem lýsir kannski best per- sónuleika Ragnars eru litmyndir af málverkum sem hann gaf Listasafni Alþýðu. Þetta er í raun einstakt safn sem hefur aö geyma hluta af stór- kostlegustu listaverkum íslenskrar listasögu. Hér ægir saman ólíkum stíltegundum, landslagi og abstrakt, sem vitnar fyrst og fremst um margbreytilegan og óvenju þroskað- ,an listsmekk Ragnars. En bókin um Ragnar er einnig bók um gróskumikið tímabil í íslenskri menningarsögu þar sem m.a. er dregiö fram hlutverk einstaklings- ins, safnarans í hinum „frjálsa” Smára hefur í gegnum árin verið líkt og óopinber „listastofnun” eða kannski öllu heldur „list-fabrika”. Bókmenntir GunnarB. Kvaran listaheimi. Og viö sjáum þá stað- reynd að listaverkasalar og safnarar eru algerlega nauðsynlegur hlekkur í markaðsfærslu listaverka þegar ríkissöfn hafa hvorki dug né fjár- magn til að versla og koma á fram- færi list liðandi stundar. Ragnar í Glœsilegt upphaf Bókin um Ragnar er að vissu leyti „endurreisn” listverkabókaútgáfu á Islandi. Hún er glæsilegt upphaf af spennandi listævintýri þar sem allt virðist gert til að skapa listaverka- bækur í sem hæstum gæðaflokki. Ovenju vönduð fagvinna, uppsetn- ing, litgreining og prentun kemur vel til skila þeirri stórbrotnu mynd sem hér hefur verið dregin upp af Ragn- ari JónssyniíSmára. GBK SAFNIÐ FÆR UF Tónleikar: Musica Antiqua f Þjóöminjasafninu 4. des. Flytjendur: Camilla Söderberg, Michael Shelt- on, Helga Ingólfsdóttir og Ólöf Sesselja Óskarsdóttir. Efnisskrá: Georg Philipp Telemann: Trfósónata í d-moll og Sónata f b-dúr; Georg Friedrich Johann Sebastian Bach: Sónata f E-dúr BWV 1016. Otrauð heldur Musica Antiqua sínu striki og um helgina hélt hún tónleika í anddyri Þjóðminjasafnsins. Einn af forsprökkum félagsskaparins Helga Ingólfsdóttir hafði áður fært mönn- um heim sanninn um að þar væri að finna fyrirtaks tónleikasal, þ.e.a.s. fyrir þann tónlistarflutning sem hér um ræðir. Hún vígði á sínum tíma konsertsembal Tónlistarskólans þar og nú lék hún í fyrsta sinn opinber- lega á nýjan kjörgrip, smíöaðan af Mark nokkrum Stevenson sem ein- mitt mun skýra hinar aöskiljanlegu náttúrur sembalsins á Háskólatón- leikum með henni þann fimmtánda þessa mánaðar. Tekinn á orðinu Kjami Musica Antiqua liggur sannarlega ekki á liði sínu. Honum hefur vaxið ásmegin með hverjum tónleikum. Einkar athyglisvert er hversu mjög Olöf Sesselja Oskars- dóttir sækir sig með gömbuna. Kjarninn er orðinn mjög vel fram- bærilegur og nú er þess eins að bíða að við bætist góðir liðsmenn. Raunar hefur einn þegar bæst í hópinn. Michael Shelton heitir hann og leikur á fiölu. 1 vor lék hann með Musica Antiqua á nútimalega fiðlu með góð- Tónlist Eyjólfur Melsted um árangri. Oskaði undirritaður þess þá í umfjöllun að mega heyra Shelton leika á hljóðfæri sambæri- legt hinum. I ljós kom að piltur átti slíkan grip í fórum sínujn, en haföi tæpast reiknað með tækifæri til aö nota hann hér úti á klakanum. Læt ég hér með í ljós ánægju yfir að fá óskir mínar uppfylltar og samfagna með- limum Musica Antiqua aö fá þar ágætan liðsauka. Ég var Shelton aö vísu ekki alveg sammála um leik- mátann á E-dúr sónötu Bachs, sér- staklega allegroköflunum. En hann var vissulega samkvæmur sjálfum sér og víst er fróðlegt að heyra hvernig verkið verður að allt öðru stykki en þegar það er leikið á píanó eða sembal og nútímafiðlu. Saman- burðurinn verður í flestu uppruna- legu myndinni í hag. Nýtt og spennandi Annað athyglisvert stykki var B- dúr sónata Telemanns sem hér var leikin á blokkflautu með gömbu- continuo. Ekki er ég nógu kunnugur til að segja um hvort upphaflega sé ætlast til að gamban s jái ein um með- leikinn, en þar gafst gömbuleikaran- um upplagt tækifæri til að brillera, hvaðvelvarnýtt. Það er jafnan eitthvað nýtt og spennandi við tónleika Musica Antiqua. Félagsskapurinn hefur „uppgötvað tvo nýja” tónleikasali í höfuðborginni. Samvinna þeirra við Þjóðminjasafnið hefur gert það að lifandi safni. Væntanlega færir stofn- unin sér þekkingu þeirra í nyt til að hljóðfæri í hennar eigu fái hljóm á ný þó vart sé meö því að reikna að þar sé um jafnauðugan garð að gresja og í ýmsum nágrannalöndum okkar. EM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.