Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Page 3
DV. MÁNUDAGUR14. FEBROAR1983.
3
Frá ráttarhöldunum i Gamla biói. Prófessor Gunnar G. Schram dómsforseti lengst til vinstri, Jón Steinar
Gunniaugsson hlustar áprófessor Sigurð Lindalbera vitni. Aöbakiþeim situr kviðdómurinn. DV-mynd: E.Ó.
Réttarhöld Lífs og lands:
Sjö kviðdómendur
guldu jáyrði sitt
— við spurningunni um jöf nun atkvæðisréttar
Réttarhöld samtakanna Líf og land
fóru fram í Gamla bíói í gær og voru
þau vel sótt. Sjö af tólf kviðdómendum
sögðu já við spurningunni: „Telur
dómurinn að atkvæði allra kjósenda
skuli vega jafnt í alþingiskosningum,
án tillits til búsetu?” Fimm sögðu nei.
Dómsforseti var Gunnar G. Schram,
Jón E. Ragnarsson var verjandi
rikjandi meginviðhorfs og Jón Steinar
Gunnlaugsson sótti málið með tilliti tii
fulls jafnaðar atkvæðisréttar. Vitni
voru Halldór Blöndal, Bjami Einars-
son, Sigurðúr Líndal, Stefán Friðfinns-
son, Már Pétursson og Jónas Elíasson.
Kviðdómur var sérstaklega valinn úr
þéttbýli og dreif býli.
Sækjandi, Jón Steinar Gunnlaugs-
son, sagði i lokaræðu sinni að málið
væri í raun einfalt, stjómarskrár
annarra lýöræðisríkja og
mannréttindayfirlýsing Sameinuðu
þjóðanna kvæðu á um jafnan atkvæðis-
rétt. Öll efnisrök og önnur rök hnigju
aö því aö taka upp þessa reglu og rök
þeirra sem væru því mótfallnir væru
rök hinna ráðþrota manna sem héldu
fast í ríkjandi misrétti. Aðstöðumunur
skipti engu máli i þessu samhengi þó
vissulega væri hann f yrir hendi.
Jón gagnrýndi andstæöing sinn fyrir
að blanda kjördæmaskipan inn í málið,
slíkt væri reginfirra. Því væri haldið
fram að jöfnun atkvæðisréttar næðist
aldrei nema með þvi að gera landið að
einu kjördæmi; en reynsla margra
annarra landa sýndi hið gagnstæða.
Verjandi, Jón E. Ragnarsson,
varaði við öfgafullum skoðunum sem
styðjast við ófrávíkjanlegar reglur.
Hann ásakaði andstæðing sinn um ó-
sveigjanleika og að í þessu máli yrði að
taka tillit til ríkjandi aðstöðumunar í
landinu. Núverandi fyrirkomulag
komst á með vilja meirihluta
þjóðarinnar, sagði Jón, og röskun á því
mun leiða til enn meira flokksræðis og
miðstýringar. Hann gagnrýndi
einhliða túlkun andstæðingsins og
sagði að þó meginreglan væri sú að
stuöla bæri að sem jöfnustum at-
kvæðisrétti yrði sú jöfnun ekki nema
landið yrði eitt kjördæmi. Slíka röskun
vildi ekki meirihluti þjóðarinnar.
-PÁ
Smurbrauðstofan
BJORNINN
Njálsgötu 49 — Sími 15105 ]
Gjafavöruverslun
I miklu
úrvali
Orkusparandi
eldunaráhöldir
POSTSENDUM. OPIÐ LAUGARDAGA
Leikarar, leikskáld, leikstjórar og
kvikmyndagerðarmenn:
Mótmæla niður-
skurði til lista- og
skemmtideildar
Fimm félög hafa mótmælt
harðlega þeirri 50% lækkun
ráðstöfunarfjár lista- og
skemmtideildar sem fyrirhuguð er
fyrir þetta ár. Þessi félög eru Félag
íslenskra leikara, Félag leikstjóra á
Islandi, Félag kvikmyndagerðar-
manna, Leikskáldafélag Islands og
Leiklistarráö Islands.
I mótmælunum kemur fram að
miðað við líklega verðlagsþróun á
árinu 1983 verði ráðstöfunarféð að
raungildi tæplega 30% af áætluðu
ráðstöfunarfé ársins 1982. Niður-
skurðurinn nemur því um 70%.
I mótmælum félaganna segir að
það skjóti skökku við aö á sama tíma
og fyrirhuguð er lenging útsending-
artíma sjónvarps skuli vera gerð
áætlun sem felur í sér mikinn
samdrátt í framleiðslu innlends
efnis. 1 henni er ekki gert ráð fyrir
neinu fé til almennra skemmtiþátta
fyrir utan fasta liöi (þ.e. Stundin
okkar, Glugginn, Jólastund,
Skonrokk).
Ennfremur segir í mótmælunum
að afleiðingar af þessum niðurskurði
muni ekki aðeins snerta listgreinar
og listamenn heldur landsmenn alla
og fyrst og síðast muni þær grafa
undan Ríkisútvarpinu sjálfu og
stöðu þess í menningarlífi
þjóðarinnar. .pÁ.
&THE
SILVER BULLET BAND
_______THE DISTANCE
i
ÞRIGGJA ÁRA BIÐIN
eftir nýrri Bob Seger plötu var vel þess virði.
The distance er jafnvel enn betri en Against the
Wind.
Inniheldur m.a. lögin:
Shame on the Moon, Even Now,
Roll me away og Boomtown Blues sem öll njóta
mikilla vinsælda í Bandaríkjunum nú þegar.
Gefðu sjálfum þérgóða tónlistargjöf.
Sendum í póstkörfu. Sími 84670
FÁLKIN N
Suðurlandsbraut 8 S: 84670
Laugavegi 25 S: 18670
Austurveri S: 33360