Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Side 5
DV. MÁNUDAGUR 14.FEBRÚAR1983.
S
Kaupfélags-
stjóraskipti
á Selfossi
Frá Regínu Thorarensen, fréttarit-
ara DV á Selfossi: Selfossbúar kveðja
sinn góða og athafnasama kaupfélags-
stjóra, Odd Sigurbergsson, sem er
búinn að stjóma Kaupfélagi Árnesinga
undanfarin sextán og hálft ár af mikl-
ummyndarskap.
Oddur lét byggja stærsta kaup-
félagsverslunarhús sem er hér á landi
og var flutt í það fyrir rúmu ári. Oddur
kaupfélagsstjóri er mikill athafnamað-
ur og hörkuduglegur sjálfur, enda ætl-
ast hann til mikils af sinu starfsfólki.
Er starfsfólk hans enda til mikillar
fyrirmyndar.
Oddur er giftur Helgu Einarsdóttur
frá Reykjavík og eiga þau eina dóttur.
Þau hjónin flytja nú að Eiðstorgi 1 á
Seltjamarnesi. Kaupfélagsstjórinn
hlakkar mikið til að flytja að sjónum,
enda er hann fæddur á Eyri við
Fáskrúðsfjörö. Oddur er 65 ára og
hefur hann þrisvar sinnum tekið sér
sumarfrí á ævinni. Hans mesta ánægja
er að vinna og koma kaupfélaginu á
réttan kjöl, en hann er nú búinn að
vera kaupfélagsstjóri i áratugi.
Sigurður Kristjánsson tók við KÁ
þann 4. febrúar síðastliðinn. Sigurður
kemur frá Þingeyri en þar hefur hann
verið kaupfélagsstjóri síöastliöin sex
ár við góöan orðstír. Hann er giftur
Kristínu Fjólmundsdóttur og eiga þau
fimmböm.
Eg spurði Sigurð kaupfélagsstjóra í
gær hvemig honum litist á að taka við
KÁ. Hann svaraði: „Það er alltaf gam-
an að byrja á nýjum og stómm störf-
um. Mér líst vel á fólkið og héraðið og
ég vonast til að hér verði gott að
starfa.”
Sigurður útskrifaðist úr Samvinnu-
skólanum 1962 og er hann 41 árs. Eg
óska Sigurði allra heilla í starfi sínu og
vona að hann haldi hinni einu og sönnu
samvinnustefnu. Mér finnst samvinnu-
stefnan komin út fyrir sinn verkahring
í mörgu. Eg vil aðsamvinnustefnan sé
fyrir allt réttsýnt fólk en ekki aðeins
fyrir nokkra hálfblinda framsóknar-
menn.
Regína/Selfossi
HuUJ&yHÆ- SAHARA
Segulband og útvarp meö
FM — MW — LW.
Vegna hagstæöra samn-
inga bjóöum viö þetta vin-
sæla tæki á aöeins kr.
3.990,- meö tveimur
Sendum
í póstkröfu
um allt
land.
KREDITKORT
.. N
VELKOMIN
hátölurum. Þeir sem
kaupa tæki í bílinn hjá
okkur frá 8/2—22/2 fá 50%
afslátt á ísetningu.
Einnig mikið úrval
bílhátalara, tónjafnara,
kraftmagnara o.fl. í bíl-
inn.
D i. .
Kdaiö
ARMULA 38 (Selmúla megin) - 105 REYKJAVIK
SIMAR: 31133 83177- POSTHOLF 1366
Hjálparsveitir
skáta með full-
trúaráðsfund
— leggja áherslu á gerð leitar- og
björgunarskipulags íslands
Landssamband hjálparsveita skáta
hélt fulltrúaráðsfund í janúar. Helstu
mál, sem til umræðu voru á þessum
fulltrúaráðsfundi, voru: Samþykkt
fjárhagsáætlun fyrir árið 1983,
nefndarálit um drög að stefnuskrá
Landssambandsins, starfsemi og
áætlanir Björgunarskóla Landssam-
bandsins og starfsáætlun ársins 1983.
I f undarlok var samþykkt ályktun og
segir þar meðal annars aö fundurinn
beini þeim eindregnu tilmælum til Al-
mannavamaráðs ríkisins að áfram
verði haldið vinnu við gerð leitar- og
björgunarskipulags Islands. Fundur-
inn telur einnig að samræmt skipulag á
leitar- og björgunarmálum, þar sem
farið sé eftir gildandi lögum og reglu-
gerðum svo og þeim samstarfssamn-
ingum sem Almannavarnir hafa þegar
gert við björgunaraðila í landinu, muni
veröa til góðs og gera öll viðbrögð við
slysum og áföllum öruggari.
JBH
Samband ís-
lenskra kaup-
skipaútgerða
Undirbúningsvinnu við að stofna
samtök kaupskipaútgerða lauk 18.
janúar með stofnfundi SlK, Sambands
íslenskra kaupskipaútgeröa.
Að stofnfundi stóðu eftirtaldar út-
gerðir: Hf. Eimskipafélag Islands/
Hafskip hf., Skipafélagið Nes hf., Nes-
skip hf., Skipadeild Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga, Skipafélagið
Víkur hf., Skiparekstur Gunnars Guð-
jónssonarsf.
A vegum þessara útgerða eru 45
kaupskip í siglingum og starfsmanna-
fjöldi er um 1400—1500 manns. Helstu
verkefni þessa félags eru að vinna að
sameiginlegum hagsmunamálum út-
geröanna og efla samstarf milli þeirra
um ýmis mál sem ekki eru tengd þjón-
ustu ogsamkeppni.
Einnig verður reynt að auka al-
menna þekkingu á kaupskipaútgerö
svo sem með menntun í fagskólum og
fræðslu starfsmanna hjá kaupskipaút-
gerðum. Formaður var kjörinn Ragn-
ar Kjartansson og varaformaður Axel
Gíslason. I stjórn eru sjö menn, einn
fráhverriútgerö.
ÞS/starfskynning.
Brœðraborgarstíg
Simi 14879