Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Blaðsíða 7
DV. MANUDAGUR 14.FEBRUAR1983.
7
Neytendur Neytendur Neytendur Neytendur
Hægtað
endurhlaða
venjulegar
rafhlöður
— alltað5sinnum
Þeir sem nota mikiö af rafhlööum í
útvörp, leikföng eöa annaö þess háttar
hafa ugglaust bölvaö því í hljóði og
jafnvel upphátt aö þurfa sífellt að vera
aö kaupa nýjar. I leikföngum bama til
dæmis eru rafhlööumar fljótar aö
tæmast. Og þá er ekki annað aö gera
en henda þeim og kaupa nýjar. Eöa
hvað?
Nú er nefnilega nýkomið á markað
tæki sem hægt er aö endurhlaða meö
venjulegar 1,5 volta rafhlöður. Tækið
er frá sænska fyrirtækinu Laddex.
Fyrirtækiö Pálmason og Valsson flyt-
ur þaö inn og fæst þaö í verslunum
Hans Peterser. í Reykjavík og kostar
tæpar 600 krónur. Kannski finnst ein-
hverjum þaö mikiö. En venjulegar raf-
hlööur í útvarp (6 stk.) kosta 120 krón-
ur. Ef hægt er aö endurhlaða þær 5
sinnum er tækiö búið aö borga sig og
rúmlega þaö.
Þetta tæki er þannig upp byggt aö
engin hætta á aö vera á því aö rafhlöð-
urnar springi á meðan verið er aö
hlaða þær. Straumurinn er lítill þannig
aö heila nótt þarf til aö hlaða rafhlöður
sem eru alveg að veröa tómar. Hægt er
aö hlaða 4 rafhlööur í einu og slekkur
tækiö sjálft á hleöslunni fyrir hverja
þeirra þegar hún er fullhlaðin. Ljós
fyrir ofan rafhlöðurnar sýna þegar
þær eru fullhlaðnar. Þegar tómar raf-
hlööur era settar í logar ljósiö ekki en
smám saman veröur ljósiö skærara
eftir því sem rafhlööumar hlaöast. Lok
er á hleöslutækinu og vinnur þaö
aöeins ef þaö er aftur. Engin hætta á
þess vegna aö vera á því aö böm fái
straum í fingurna með því aö fikta viö
tækiö. Ljósin loga aðeins þegar tækiö
er opið því þau era knúin af rafhlöðun-
um.
Svíar hafa gert miklar tilraunir með
öryggi hleðslutækisins. Vora þeir í
fyrstu hræddir um aö rafhlöðumar
myndu springa. Tilraunir bentu hins
vegar til þess aö engin hætta væri á
því, jafnvel þó tækið væri skilið eftir í
sambandi dögum saman með sömu
rafhlööunum í.
Hverja rafhlöðu er unnt aö hlaða
aftur aö minnsta kosti 5 sinnum. Eftir
þaö hættir hún einfaldlega aö taka viö
straumi og verður aö fleygja henni.
Hægt er aö hlaða misstórar rafhlööur
saman, svo lengi sem þær era allar 1,5
volt. Tækiö er aðeins ætlaö til aö hlaöa
þaö sem við nefnum yfirleitt venjuleg-
ar rafhlööur. Þær innihalda nikkel-
kadmium. Svonefndar alkalín rafhlöð-
ur er einnig hægt aö hlaða. En þá er
aukin hætta á því aö þær fari að leka og
jafnvel springi. Ekki er því mælt meö
því aö menn reyni slíkt nema þannig
aö enginn skaöi geti hlotist af.
Eins og fyrr sagöi er hægt að hlaða
hverja rafhlööu aö minnsta kosti 5
sinnum. En Svíar mæla meö því aö
hlaðið sé áður en allur straumur er
horfinn og endast þá rafhlööumar mun
lengur. Þannig prófaöi sænskt blað aö
tæma aðeins um þaö bil helminginn úr
rafhlööu áöur en hún var endurhlaðin.
Eftir 14 endurhleðslur var rafhlaöan
enn eins og ný.
Við reyndum tækiö hér eina nótt á
rafhlööum útvarps neytendasíðunnar.
Hálfilla var farið að heyrast í tækinu
og þurfti aö skrúfa hljóðið alveg upp.
Eftir að rafhlööurnar höföu veriö í tæk-
inu yfir nótt og voru settar í útvarpið
aftur heyrðist hins vegar í því strax og
kveikt var. Ekki höföum viö aðstæður
til þess aö próf a öryggið f rekar.
DS
X-DáKent
vindlingum
Gísli Rúnar Jónsson hringdi:
Á Kent-sígarettupökkum stendur
orðið X-D á álpappírnum ofan á pakk-
anum. Mig langar aö vita af hverju
þetta er. Um daginn sagöi Jón Kjart-
ansson, forstjóri ÁTVR, í viðtali við
Þjóðviljann aö þetta væri saklaus
vörumerking. En ég sætti mig ekki aö
fullu viö þessa skýringu. Eg veit aö
vindlingar sömu tegundar, sem keypt-
ir vora í Fríhöfninni eða erlendis á
sama tíma, hafa ekki boriö þessa áletr-
Ingi Björn Albertsson varö fyrir svör-
um hjá fyrirtækinu Albert Guðmunds-
son og co sem flytur Kent sígarettur
inn: Þetta er nokkurs konar dulmáls-
lykill. Þarna er veriö að tákna fram-
leiðsludag. X þýðir 82 og D þýðir
nóvember. Núna ættu flestir pakkar á
markaðnum að vera meö stöfunum X-
L eöa X-E. Eftir nokkrar vikur veröa
þeir sem bera áletrunina X-D alveg
horfnir.
UOflLA
SILFURSKIN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 5 RvK Simi15050
un.
Síldarævintýri 11-IZfebr.
Nú er það orðinn jafnárviss atburður að drekkhlaðnir síldarbakkar
séu lagðir á borðin í Blómascdnum og að drekkhlaðnir síldarbátar leggist að
biyggju fyrir norðan og austan. Sfldin í sfldarbátunum er ósköp svipuð frá ári til árs,
en það eru alltaf einhverjar nýjungar á sfldarbökkunum:
Síldarbollur, gratineruð stld og fjöldlnn allur af öðrum Ijúffengum síldarréttum.
Að auki er svo laxakæfa, hörpuskelflskskæfa og marineraður hörpuskelflskur.
Sfldarævintýrið verður í Blómasal á kvöldin alla daga frá 11.-17. febrúar.
Borðapantanir í símum 22321 oq 22322.
VERIÐ VELKOMIN!
HÖTEL
LOFTLEIÐIR
ÍSLENSK MATVÆLI H/F