Dagblaðið Vísir - DV - 14.02.1983, Side 11
DV. MÁNUDAGUR14. FEBRUAR1983.
11
Jóhannes Siggeirsson hagfræöingur. DV-mynd: Einar Ólason.
VOKA AÐ BANKANUM
VAXIÁSMEGIN
— segir Jóhannes Siggeirsson er í vor verður
aðstoðarbankasf jóri Alþýðubankans
Jóhannes Siggeirsson hefur verið
ráðinn aðstoðarbankastjóri viö Al-
þýðubankann hf. frá 1. apríl næst-
komandi. Þá tekur hann við starfi
Halldórs Guðbjartssonar, sem hefur
verið ráðinn bankastjóri við Utvegs-
bankann.
Jóhannes er 35 ára og hefur verið
hagfræðingur ASI frá árinu 1978.
Hann lauk stúdentsprófi frá Kenn-
araskóla Islands 1969 og prófi frá við-
skiptadeild Háskóla Islands 1973. Að
því loknu stundaði hann síðan, um
eins árs skeið, framhaldsnám í þjóð-
hagfræði við Háskólann í Uppsölum í
Svíþjóð.
„Það að fólk skiptir um starf á sér
ekki alltaf neina beina skýringu” —
sagöi Jóhannes. — „Eg hef starfað
á skrifstofum Alþýöusambands Is-
lands í nær fimm ár og þar að auki í
tvö ár hjá Kjararannsóknarnefnd.
Öll þessi ár hafa kjarasamningar,
túlkun þeirra og annað sem tengist
launum, verðlagi og kaupmætti,
verið uppistaðan í minu starfi.
Þegar aðstoðarbankastjórastaðan
losnaöi var ég hvattur til þess að
sækja um og nú hefur verið ákveðið
að ég taki við henni. Ætli það hafi ekki
verið óskin um tiíbreytingu sem réð
þvíaðsvofór.
Eg hef átt mjög gott samstarf við
miðstjóm ASÍ, forystumenn í verka-
lýðsfélögum yfirleitt svo og starfs-
fólk ASI. Hér er mjög samhent lið
sem ég vonast til að eiga gott sam-
starf við áfram, þótt ég færi mig um,
set.
Eg vona að ég geti orðið að liði í Al-
þýðubankanum. Eg þekki nokkuð til
mála í bankanum, vann þar 1976 —
1978, og veit að hann hefur góöu
starfsliði á að skipa. Frá árinu 1980
hef ég síöan verið skipaður endur-
skoðandi bankans af hálfu viðskipta-
ráðherra. Eg tel mig þvi þekkja
nokkuð til þar og kvíði engu í því
sambandi.
Og sem starfsmaður ASl hef égi
kynnst vel baráttumálum verkalýðs-
hreyfingarinnar og vonast til þess að
geta í starfi minu hjá bankanum auk-
ið tengsl hans við eigendur sína,
verkalýðsfélögin og félagsmenn
þeirra.
Tildrögin aö stofnun bankans vora
þau að gerðar höfðu verið samþykkt-
ir á nokkram þingum ASl um að
verkalýðshreyfingin kæmi sinni eig-
in peningastofnun á laggirnar. Hinn
12. mars 1966 fékkst svo samþykkt
ríkisstjómarinnar fyrir stofnun
Sparisjóðs alþýðu — ásamt fyrir-
heiti um að honum yrði breytt í
banka síðar.
Sparisjóður alþýöu tók tilstarfa 29.
apríl 1967. Lög um Alþýðubankann
hf. vora samþykkt 12. maí 1970 og
hann hóf starfsemi sína 5. mars 1971.
Verkalýðshreyfingin er eigandi
bankans og markmið hans hljóta að
fara saman við markmið hennar á
hverjumtíma.
Sem peningastofnun er bankanum
meðal annars ætlað að efla menning-
arlega og félagslega starfsemi
verkalýðshreyfingarinnar og auka
áhrif hennar í baráttunni fyrir at-
vinnuöryggi og bættum lífskjörum
launþega í landinu.
Þannig hefur bankinn m.a. lánað
til bygginga orlofsheimila og til
Listasafns ASI. Því miður er bank-
inn hins vegar það lítill, enn sem
komið er, að áhrif hans eru lítil á
lánamarkaðinum. Þess er hins vegar
að gæta að það eru aðeins sextán ár
síðan Sparisjóður alþýðu tók til
starfa. Við skulum þó vona að bank-
anum vaxi ásmegin á komandi árum
og geti orðið er fram líða stundir það
afl sem stefnt var að með stofnun
hans.”
-FG.
Til sölu
BMW 520i 1982
BMW 520 1980
BMW 518 1982
BMW518 1980
BMW 323i 1981
BMW 320 1982
BMW 320 1981
BMW 320 1980
BMW 320 auto 1977
BMW 320 1977
BMW 318i 1982
BMW 318: 1981
BMW 318 1978
BMW 316 1982
BMW 316 1978
BMW 315 1982
RENAULT20TS 1979
RENAULT 20 TL 1978
RENAULT12 TL 1978
RENAULT12 TL 1975
RENAULT 5 TL 1980
RENAULT 4TL 1980
RENAULT 4 van F6 1980
RENAULT 4 van F6 1979
OPIÐ LAUGARARDAG FRÁ KL. 1-6.
EINSTÖK GÆÐI
* Stór hitaplata meö
teflonhúö (ekki dúkur).
* Hitastillir.
* Hitahnífur (ekki vír).
HAGSTÆTT VERÐ
Masfms hF
BÍLDSHÖFÐA 10 SÍMI 82655
' iH.....O □ □
IB8 |g|
maapai jawgmctt
13 iHf iEif |q| gg
ES IPH psS IPli KSI
wm sm §gg iii s
m Q| B Bl Q
0* 'i-
CASIO v M
Kr. 1.150
Kr. 785
BG-15
Kr.990
1 □ ® “ UMBOÐIÐ ÞINGHOLTSSTRÆT11 (BANKASTRÆTISMEGIN)
Sími 27510
Sendum í póstkröfu
Ref. LM 320 Ref. LB 317 L
Kr. 2.140 Kr.895